Skip to main content

Víkurfréttir 48. tbl. 43. árg.

Page 1

ÁRAMÓTAKVEÐJA! Hver er Suðurnesjamaður ársins 2022? Hver verður maður ársins á Suðurnesjum 2022? Ábendingum um verðuga einstaklinga til að hljóta nafnbótina „Suðurnesjamaður ársins 2022“ má senda á tölvupóstfangið vf@vf.is. Á síðasta ári hlutu Björgunarsveitin Þorbjörn og Slysavarnadeildin Þórkatla í Grindavík nafnbótina.

Opnunartími Hringbraut:

Opnunartími Tjarnabraut:

Allan sólarhringinn yfir áramótin

08.00 - 16.00 Gamlársdag 12.00 - 18.00 Nýársdag

Miðvikudagur 28. desember 2022 // 46. tbl. // 48. árg.

Góðverk kom hótelstjóranum í jólaskapið Hjálpaði strandaglópum að fá húsaskjól í illviðri

Jólasveinn á rauðum traktor

E

inn af jólasveinum hennar Grýlu tók léttan rúnt á gömlum en glansandi rauðum traktor fyrir framan Aðventugarðinn í Reykjanesbæ síðdegis á Þorláksmessu. Í garðinum sjálfum var Grýla mamma hans að tala við börnin. Veðrið lék við gesti og þeir nutu jólastemmningar í Aðventugarðinum og við Hafnargötu þar sem fleiri jólasveinar komu á Rúfdolf jólarútu. Dúettinn Heiður söng í vetrarblíðunni og kaupmenn tóku brosandi á móti viðskiptavinum. Fleiri myndir og myndskeið frá Þorláksmessu má sjá á vef Víkurfrétta, vf.is.

NET SÍMI SJÓNVARP

Hjá okkur er allt Ljósleiðari innifalið 10.490 kr/mán. ENGINN AUKAKOSTNAÐUR, FRÍR ROUTER Kapalvæðing • Hafnargata 21 • 421 4688 www.kv.is • kv@kv.is

Ugla leitaði skjóls við eldhúsglugga Ugla að leita sér skjóls fyrir óve ð r i n u s e m gek k y f i r nokkrum dögum fyrir jól upp við eldhúsgluggann hjá Dagbjörtu Vilhjálmsdóttur, íbúa við Birkidal í Innri-Njarðvík. „Uglan sat þarna og starði á mig í tvær, þrjár mínútur. Sjálfsagt köld og svöng, hefði sótt handa henni nautahakk hefði hún ekki flogið í burtu,“ sagði Dagbjört í stuttu spjalli við Víkurfréttir. Myndskeið af uglunni má sjá á vf.is.

„Óveðursdagarnir hafa verið krefjandi en það hefur á sama tíma verið mjög gaman að geta hjálpað fólki í neyð. Okkar markmið er að gera okkar besta í að leysa úr einhverjum hluta vandamálsins,“ segir Steinþór Jónsson, hótelstjóri Hótels Keflavíkur. Starfsmenn hótelsins lögðu sitt af mörkum síðustu dagana fyrir jól í að hjálpa ferðamönnum sem urðu strandaglópar í flugstöðinni vegna óveðurs. „Við vorum með fjórhjóladrifnar rútur og nýttum þær til að taka á móti gestum sem voru einhver hundruð. Síðan vorum við líka að sjá um gesti sem voru að fara á önnur hótel, sem tengjast okkur ekki, vegna veikinda eða fólk með börn. Við „pikkuðum“ þau út úr röðinni og reyndum að hjálpa þeim. Við keyrðum fólkið frá flugstöðinni niður á Hótel Keflavík og gáfum því að borða á meðan við reyndum að leysa úr þeirra vandamálum.“ Þegar leið á fékk hann aðstoð frá keflvískum „höfðingjum“, eins og Steinþór orðar það. „Ég fór bókstaflega út á götu og veifaði að stórum

Fólk var flutt á ofurjeppum úr flugstöðinni til Hótels Keflavíkur.

Steinþór Jónsson í flugstöðinni fyrir jól. „monster“ trukkum en ég þekkti þessa menn ekkert fyrir og bað þá um að hjálpa mér að hjálpa fólki. Þessir miklu höfðingjar, komu og voru þarna allt kvöldið að hjálpa til. Þeir komu fólki meðal annars upp á Ásbrú sem átti gistingu þar.“ Steinþór segir þetta ekki vera í fyrsta skiptið sem aðstæður sem þessar koma upp en að þetta skiptið hafi þó verið aðeins frábrugðið. „Það hafa komið upp svona tilvik þar sem veður og annað hefur áhrif á þúsundir en á þessum 36 árum hefur það gerst ca. þrisvar, fjórum sinnum. Ef við horfum til áranna 1986 til 2010, þá voru ekki svona margar flugferðir til og frá landinu. Fjöldi ferðamanna er orðinn svo gríðarlega mikill, það eru kannski 50 flug fram og til baka í það minnsta. Vandamálið í þetta skiptið var hve lengi Reykjanesbrautin var lokuð, það var það sem gerði útslagið. Við gátum ekki beðið í nokkrar klukkustundir og sent svo fólk til Reykjavíkur eða á viðeigandi stað.“

V I Ð S Ý N U M A L L A R E I G N I R, F Á Ð U T I L B O Ð Í F E R L I Ð.

DÍSA EDWARDS D I S A E@A L LT.I S | 560-5510

ÁSTA MARÍA JÓNASDÓTTIR

HELGA SVERRISDÓTTIR

ELÍNBORG ÓSK JENSDÓTTIR

UNNUR SVAVA SVERRISDÓTTIR

ELÍN FRÍMANNSDÓTTIR

PÁLL ÞOR BJÖRNSSON

A S TA@A L LT.I S | 560-5507

H E LG A@A L LT.I S | 560-5523

E L I N B O RG@A L LT.I S | 560-5509

U N N U R@A L LT.I S | 560-5506

E L I N@A L LT.I S 560-5521

PA L L@A L LT.I S | 560-5501

16 SÍÐUR Í ÞESSARI VIKU • STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Víkurfréttir 48. tbl. 43. árg. by Víkurfréttir ehf - Issuu