Skip to main content

Víkurfréttir 47. tbl. 45. árg.

Page 1

ð i ð a l b a l Jó stu viku í næ

Við kynnum ný og vegleg apptilboð á jólavörum á hverjum degi frá 1. til 24. desember.

Verið tímanlega með efni og auglýsingar Póstfangið er vf@vf.is

Miðvikudagur 11. desember 2024 // 47. tbl. // 45. árg.

DREIFT Á SUÐURNESJUM OG Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU • ÓKEYPIS EINTAK

Viðræður um sameiningu settar á bið Verkefnisstjórn um óformlegar viðræður um sameiningu sveitarfélaganna Voga, Reykjanesbæjar og Suðurnesjabæjar leggur til við sveitarstjórnirnar að beðið verði með ákvörðun um viðræður um sameiningu sveitarfélaganna þar til fyrir liggur lágmarks yfirlýsing um að stjórnvöld muni koma til móts við sveitarfélögin varðandi þær forsendur sem þurfa að liggja fyrir áður en til afgreiðslu kemur í bæjarstjórnunum. Sameiningarmálin voru tekin fyrir í bæjarráði Suðurnesjabæjar á síðasta fundi. Í erindi verkefnastjórnarinnar er gerð grein fyrir vinnu verkefnisstjórnar og þeim forsendum sem hún telur þurfa að liggja fyrir áður en bæjarstjórnir sveitarfélaganna taka ákvörðun um framhald málsins. Bæjarráð Suðurnesjabæjar samþykkir samhljóða að beðið verði með ákvörðun um viðræður um sameiningu sveitarfélaganna.

Gleðileg jólaljós um allan bæ Það er víða búið að skreyta með litskrúðugum jólaljósum eins og hér á Reykjanesveginum í Njarðvík. Nú er verið leita að best skreyttu húsunum á Suðurnesjum, eins og sjá má í fréttum í blaðinu í dag.

Tólf milljarða stækkun og endurbætur í Svartsengi Framkvæmdir við stækkun og endurbætur jarðvarmaversins í Svartsengi hafa gengið vel á árinu þótt náttúruöflin á Reykjanesi hafi boðið upp á ýmsar áskoranir. Um 90 manns vinna nú dag hvern að framkvæmdinni en fyrsta skóflustungan var tekin fyrir sléttum tveimur árum. Verkið er nánast á áætlun en óhjákvæmilegar tafir vegna jarðhræringa, eldgosa og gasmengunar hafa að stærstum hluta verið unnar til baka þökk sé samhentu átaki og góðri samvinnu allra sem að verkinu koma. Heildarkostnaður við framkvæmdirnar er áætlaður um 12 milljarðar króna og er stefnt að gangsetningu virkjunarinnar síðla árs 2025. Sjá nánar á síðu 4.

Verktakar í Svartsengi hafa á árinu öðlast mikla reynslu í að leggja vegi yfir nýrunnið hraun. Um liðna helgi var unnið að því að leggja nýjan Grindavíkurveg yfir hraunbreiðuna sem rann við Svartsengi 21. nóvember síðastliðinn. Fyrst rann hraun yfir Grindavíkurveg í eldgosinu í febrúar. Eldgosið sem varð í lok maí tók Grindavíkurveg beggja vegna Svartsengis og vegurinn fór svo í þriðja sinn undir hraun í nóvember. Því gosi er formlega lokið og landris er hafið að nýju undir Svartsengi. Miðað við þann tíma sem síðasta landris tók má gera ráð fyrir að dragi aftur til tíðinda seint í febrúar á næsta ári. Myndina tók Ísak Finnbogason, ljósmyndari Víkurfrétta.

V I Ð S Ý N U M A L L A R E I G N I R, F Á Ð U T I L B O Ð Í F E R L I Ð.

DÍSA

ÁSTA MARÍA

HELGA

ELÍNBORG ÓSK

UNNUR SVAVA

ELÍN

HAUKUR

SIGURJÓN

PÁLL

D I S A@A L LT.I S 560-5510

A S TA@A L LT.I S 560-5507

H E LG A@A L LT.I S 560-5523

E L I N B O RG@A L LT.I S 560-5509

U N N U R@A L LT.I S 560-5506

E L I N@A L LT.I S 560-5521

H A U K U R@A L LT.I S 560-5525

S I G U R J O N@A L LT.I S 560-5524

PA L L@A L LT.I S 560-5501

16 SÍÐUR Í ÞESSARI VIKU • STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Víkurfréttir 47. tbl. 45. árg. by Víkurfréttir ehf - Issuu