Skip to main content

Víkurfréttir 46. tbl. 45. árg.

Page 1

Allur ágóði a f sölunni rennur til lík narmála

Jólatréssala Kiwanis Kiwanis er í porti Húsasmiðjunnar á Fitjum í Njarðvík

Opið frá 7. desember:

mánudaga til föstudaga 17–20 laugardaga og sunnudaga 12–18

Jólatré - norðmannsþinur - fura - greni - leiðiskrossar - skreyttar greinar

Miðvikudagur 4. desember 2024 // 46. tbl. // 45. árg.

DREIFT Á SUÐURNESJUM OG Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU • ÓKEYPIS EINTAK

Færanleg veðursjá sett upp við Voga Veðurstofa Íslands óskaði eftir því við skipulagsyfirvöld í Sveitarfélaginu Vogum að fá að setja upp færanlega veðursjá fyrir ofan Voga. Í erindinu segir að ekki er gert ráð fyrir miklu jarðraski og er fyrirséð að ratsjáin muni sinna mikilvægu vöktunarhlutverki í næsta eldgosi á Suðurnesjum. Afgreiðsla skipulagsnefndar er að hún gerir ekki athugasemd við erindið. Hins vegar varð næsta eldgos aðeins sólarhring eftir að nefndin samþykkti erindið og því kom veðursjáin væntanlega ekki að gagni við upphaf þess goss.

4 2 0 2 r a f Súluha

Súlan, menningarverðlaun Reykjanesbæjar fyrir árið 2024, var afhent um helgina. Verðlaunin eru veitt þeim sem hafa lagt sitt af mörkum til að auðga mannlíf og menningu samfélagsins með fjölbreyttum hætti. Að þessu sinni voru veitt tvenn verðlaun. DansKompaní listdansskóli Suðurnesja og Steinn Erlingsson söngvari hlutu verðlaunin að þessu sinni. Verðlaunagripurinn er silfursúla eftir listakonuna Elísabetu Ásberg og vísar í sjófuglinn Súluna í merki Reykjanesbæjar. Það var Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir, sitjandi bæjarstjóri í Reykjanesbæ, sem afhenti gripinn. VF/pket og hbb

Tvö blöð til jóla Nú eru aðeins tvö blöð til jóla hjá Víkurfréttum. Næsta blað kemur út miðvikudaginn 11. desember. Jólablað Víkurfrétta kemur svo út miðvikudaginn 18. desember. Það verður veglegt að vanda. Þar sem vinna við stórt jólablað er tímafrek hvetjum við þau sem ætla að koma efni og auglýsingum í blaðið að vcra tímanlega á ferðinni. Póstfangið er vf@vf.is fyrir efni en andrea@ vf.is fyrir auglýsingar.

Styrkir eigi að nýtast við endurreisn samfélagsins Styrkir til Grindavíkurbæjar vegna uppbyggingar samfélagsins nema samtals um átján milljónum króna. Þetta kemur fram í gögnum bæjarráðs Grindavíkur en minnisblað um styrki til Grindavíkurbæjar í kjölfar rýmingar Grindavíkurbæjar 10. nóvember 2023 var þar til umfjöllunar. „Bæjarráð Grindavíkurbæjar færir öllum þeim sem stutt hafa við bakið á Grindvíkingum undanfarið ár einlægar þakkir. Stuðningurinn hefur verið ómetanlegur í krefjandi aðstæðum og sýnir stærð og styrk samfélagsins okkar. Hvert framlag, stórt sem smátt, hefur veitt okkur

huggun, von og kjark sem gerir okkur kleift byggja okkur upp á ný, sigrast á ótal áskorunum og halda áfram,“ segir í fundargerð bæjarráðs. Þar kemur fram að alls hafa safnast rúmlega 17.940.000 kr. inn á söfnunarreikning í eigu

Grindavíkurbæjar frá 10. nóvember 2023. Ekki hefur verið hreyft við því fjármagni. Litið hefur verið svo á að styrkirnir sem berast sveitarfélaginu eigi að nýtast við endurreisn samfélagsins og skuli þá horft til verkefna sem ekki eru lögbundin, m.a. til að efla samstöðu og fjölga samverustundum Grindvíkinga. Þá segir að Grindavíkurbær hefur ekki heildaryfirsýn yfir aðrar safnanir sem fóru af stað í kjölfar hamfaranna síðasta vetur.

Vegur yfir hraunið Vegagerð er hafin yfir hraun sem rann yfir Grindavíkurveg þann 21. nóvember. Slóði hefur verið lagður yfir glóandi heitt hraunið, sem þó er aðeins fær stórvirkum vinnuvélum. Ekki liggur fyrir hvenær fólksbílafær vegur verður lagður yfir hraunið en núna er aðeins hægt að komast til Grindavíkur með því að aka Nesveg eða Suðurstrandarveg. Myndina hér að ofan tók ljósmyndari okkar, Ísak Finnbogason, síðasta sunnudag. Þar sem slóðinn liggur yfir hraunið er það margra metra þykkt en hraunið sem rann að varnargörðunum við Svartsengi hefur verið mælt allt að níu metra þykkt.

16 SÍÐUR Í ÞESSARI VIKU • STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Víkurfréttir 46. tbl. 45. árg. by Víkurfréttir ehf - Issuu