Skip to main content

Víkufréttir 45. tbl. 45. árg.

Page 1

Sundið er lífið

SVARTUR FÖSTUDAGUR 2 fyrir 1 af öllum bleyjum og blautklútum frá

2 1

hjá Evu Margréti

fyrir

Síða 30

Tilboðin gilda aðeins föstudaginn 29. nóvember meðan birgðir endast.

Aðeins þrjú af Suðurnesjum á Alþingi? Miðvikudagur 27. nóvember 2024 // 45. tbl. // 45. árg.

DREIFT Á SUÐURNESJUM OG Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU • ÓKEYPIS EINTAK

Eldgosið ógnaði innviðum

Mikil spenna er fyrir alþingis­ kosningarnar sem fara fram laugardaginn 30. nóv­ ember. Miðað við síðustu skoðanakannanir eru verulegar líkur á því að færri Suðurnesjamenn verði kjörnir á þing en áður. Að­ eins Guðbrandur Einarsson sem er í 1. sæti hjá Viðreisn, Sigurður Helgi Pálmason hjá Flokki fólksins og Vilhjálmur Árnason sem er í 2. sæti hjá Sjálfstæðisflokki eru öruggir á þing miðað við niðurstöður úr könnunum. Flokkur fólksins og Sjálfstæðisflokkur hafa mælst stærstir í könnunum í Suðurkjördæmi en þeir og Samfylking ná hver tveimur þingmönnum á þing verði niðurstöður á laugardag í takti við kannanir.

Hvar er kosið á Suðurnesjum? Tíunda eldgosið á Reykjanesskaga ógnaði innviðum þegar hraun rann að varnargörðum við Svartsengi. Hraunstraumurinn fór yfir lögn sem flytur heitt vatn frá orkuverinu í Svartsengi að Fitjum. Lögnin hefur staðist álagið en um tíma var óttast að hraunið gæti jafnvel komist yfir varnargarða og rofið lögnina innan garðanna. Þá laskaði hraunstraumurinn raflínur að orkuverinu í Svartsengi og hefur raforkuframleiðsla þar legið niðri í viku. Unnið er að því að reisa 30 metra hátt háspennumastur við Svartsengi til að lyfta háspennustrengjum hærra yfir hraunbreiðuna. Á myndinni hér að ofan má sjá yfir byggðina í Reykjanesbæ með eldgosið á Sundhnúkagígaröðinni í baksýn. Nánar um eldgosið á síðu 8 í blaðinu. VF/Hilmar Bragi Bárðarson

Jólalukka VF í tuttugasta og annað sinn í 20 verslunum n Sjöþúsund vinningar frá fimmtíu fyrirtækjum á Suðurnesjum auk veglegra útdráttarvinninga

Tuttugu verslanir og þjónustu­ aðilar á Suðurnesjum eru með í Jólalukku Víkurfrétta 2024 sem hefst í lok vikunnar en þetta er í tuttuguasta og annað skipti sem Víkurfréttir standa fyrir þessum vinsæla skafmiðaleik í samvinnu við verslanir og þjónustuaðila í desember. Sjö þúsund vinningar verða skafðir af Jólalukkumiðum fyrir þessi jól en þeir eru frá fimmtíu fyrirtækjum.

Þá verða rúmlega fimmtíu vinningar í þremur útdráttum í desember en dregið verður úr miðum (með engum vinningi á) sem skilað er í Nettó verslanir í Njarðvík og Keflavík. Stærsti útdráttarvinningurinn er glæsilegur rafmagns hægindastóll frá Bústoð í Keflavík en tuttugu og fimm gjafabréf eru frá Nettó, frá tuttugu og fimm þúsund upp í eitthundrað þúsund krónur.

a Jólalukk

2024

Skafmiðaleikur Víkurfrétta

Glæsilegir útdráttarvinningar eru einnig frá Byko, Húsasmiðjunni,

Marriott hótelinu í Reykjanesbæ, Zolo og Co., Reykjanes Optikk, Nóa & Síríus og næst stærsti vinningurinn í Jólalukkunni er frá Hótel Keflavík, gisting á Dimond svítu ásamt kvöldverði og aðgangi að nýju SPA hótelsins. Í auglýsingum í blaðinu má sjá upplýsingar um vinninga og fyrirtæki sem bjóða upp á Jólalukku 2024.

Alþingiskosningar fara fram laugardaginn 30. nóvember. Í Reykjanesbæ verður kosið í Fjöl­ brautaskóla Suðurnesja. Kjör­ staður mun opna kl. 09:00 og loka kl. 22:00. Í Suðurnesjabæ er kjörfundur fyrir kjósendur í póstnúmerum 245 og 246 Sandgerði er í Sandgerðisskóla. Kjörfundur fyrir kjósendur í póstnúmerum 250 og 251 Garður er í Gerðaskóla. Kjörstaður opnar kl. 10:00 og lokar kl. 22:00. Í Sveitarfélaginu Vogum er kosið í Stóru-Vogaskóla og gengið inn frá leikvelli. Kjörfundur hefst kl. 10:00 og lýkur kl. 22:00. Grindvíkingar kjósa að Skógarbraut 945 á Ásbrú í Reykjanesbæ, í húsnæði Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum. Kjörstaður opnar kl. 10:00 og lokar kl. 22:00. Kjörstjórnir vekja athygli á því að kjósendur skulu framvísa persónuskilríki á kjörstað.

V I Ð S Ý N U M A L L A R E I G N I R, F Á Ð U T I L B O Ð Í F E R L I Ð.

DÍSA

ÁSTA MARÍA

HELGA

ELÍNBORG ÓSK

UNNUR SVAVA

ELÍN

HAUKUR

SIGURJÓN

PÁLL

D I S A@A L LT.I S 560-5510

A S TA@A L LT.I S 560-5507

H E LG A@A L LT.I S 560-5523

E L I N B O RG@A L LT.I S 560-5509

U N N U R@A L LT.I S 560-5506

E L I N@A L LT.I S 560-5521

H A U K U R@A L LT.I S 560-5525

S I G U R J O N@A L LT.I S 560-5524

PA L L@A L LT.I S 560-5501

32 SÍÐUR Í ÞESSARI VIKU • STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Víkufréttir 45. tbl. 45. árg. by Víkurfréttir ehf - Issuu