PERSÓNULEG ÞJÓNUSTA studlaberg.is // 420-4000
Miðvikudagur 30. nóvember 2022 // 45. tbl. // 43. árg.
H Á M A R KA Ð U VIRÐI ÞINNAR FASTEIGNAR FÁÐU TILBOÐ Í SÖLUFERLIÐ FRÍ LJÓSMYNDUN OG FASTEIGNASALI S Ý N I R A L LA R E I G N I R
Hannes sló garðinn í upphafi aðventunnar Þegar flestir nágrannar Hannesar Friðrikssonar við Freyjuvelli í Keflavík voru að hengja upp jólaseríur, þá sá Hannes ástæðu til að slá. Verðlaunagarðurinn hjá kappanum var líka kafloðinn og iðagrænn eftir einmuna veðurblíðu síðustu vikur. Hannes hafði síðast tekið fram sláttuvélina seint í september og átti svo sem ekkert von á því að þurfa að taka hana fram aftur á þessu ári. Þegar 25. nóvember rann upp gat Hannes ekki meira, sótti sláttuvélina og sló garðinn. Hannes hafði á orði að hann hafi aldrei slegið svona mikið gras í sínum garði en losa þurfti pokann á sláttuvélinni í þrígang. Nánar er fjallað um garðsláttinn í Suðurnesjamagasíni Víkurfrétta á Hringbraut og vf.is á fimmtudagskvöld kl. 19:30. VÍKURFRÉTTAMYND: HILMAR BRAGI BÁRÐARSON
Bókasafnið í Rokksafnið?
Flaggað fyrir Jodie Foster?
– og Hljómahöll verði Menningarhús Reykjanesbæjar
Minnisblað þar sem lagt er til að Bókasafn Reykjanesbæjar verði flutt í Hljómahöll í aðstöðu Rokksafnsins og að Rokksafni Íslands verði fundinn annar staður var lagt fram í bæjarráði Reykjanesbæjar á dögunum. Þetta er liður í því að Hljómahöll verði Menningarhús Reykjanesbæjar til framtíðar.
Bæjarráð Reykjanesbæjar hefur falið Kjartani Má Kjartanssyni, bæjarstjóra, að vinna áfram í málinu og að kannað verði með hugsanlegan kostnað og tilhögun við færslu Bókasafnsins. Fulltrúi Sjálfstæðisflokksins, Margrét Sanders, leggur áherslu á að þarfagreining og kostnaðaráætlun liggi fyrir áður en lokaákvörðun er tekin, segir í gögnum bæjarráðs Reykjanesbæjar.
PÁLL ÞOR BJÖRNSSON LÖ G G I LT U R F A S T E I G N A S A L I
PA L L@A L LT.I S | 560-5501
FLJÓTLEGT OG GOTT! 53% VF-MYND: HILMAR BRAGI
Það hefur mikið umstang verið í Reykjanesbæ síðustu daga en nú standa yfir tökur á fjórðu þáttaröð True Detective, sem HBO framleiðir og skartar m.a. stórstjörnunni Jodie Foster. Hafnargatan í Keflavík er hluti af leikmynd þáttanna sem eiga að gerast í ímyndaða bænum Ennis í Alaska. Á þriðjudaginn var bandaríska fánanum flaggað í skrúðgarðinum í Keflavík en bandarískir fánar blakta víða og eru hluti af leikmyndinni. Aldrei áður hefur öðrum þjóðfána en þeim íslenska verið flaggað í fánastönginni í skrúðgarðinum. Nánar er fjallað um tökurnar í blaðinu í dag.
198 kr/pk áður 429 kr
NÝTT Doritos Double Pepperóní og Triple Cheese Pizza 170 g
199 kr/stk
30% 279 kr/stk áður 399 kr
Barebells próteinstykki Saltkaramellu
áður 349 kr
43%
Opnunartími Hringbraut: Allan sólarhringinn Opnunartími Tjarnabraut: 08.00 - 23.30 Virka daga 09.00 - 23.30 Helgar
Monster
Ultra White og Ultra Gold 500 ml
24 SÍÐUR Í ÞESSARI VIKU • STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM