Tökum utan um unga fólkið Guðbrandur Einarsson, 1. sæti Sandra Sigurðardóttir, 2. sæti
vidreisn.is
Miðvikudagur 20. nóvember 2024 // 44. tbl. // 45. árg.
DREIFT Á SUÐURNESJUM OG Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU • ÓKEYPIS EINTAK
SÍÐUR 4-5
Sveindís er FKA konan
952 umsóknir um kaup á íbúðarhúsnæði í Grindavík Nú hafa 952 umsóknir um kaup á íbúðarhúsnæði borist Fasteignafélaginu Þórkötlu. Alls hafa 914 umsóknir verið samþykktar og þar af eru 46 umsóknir þar sem félagið féllst á að tímabundnar aðstæður hafi skýrt skráningu á lögheimili annars staðar en í hinni seldu eign. Þegar hefur verið gengið frá 907 kaupsamningnum. Þá hefur afhending farið fram í 823 tilvikum og 785 afsöl verið undirrituð. Heildarfjárfesting félagsins í þeim 907 eignum sem gengið hefur verið frá til þessa eru r 69,5 milljarðar króna. Þar ef eru kaupsamnings- og afsalsgreiðslur um 48,3 ma. kr. og yfirtekin húsnæðislán um 21,2 ma. kr.
Fimmhundruð á flugslysaæfingu Umfangsmikil flugslysaæfing var haldin á Keflavíkurflugvelli (KEF) síðasta laugardag. Þátttakendur voru um 500 talsins. Flugslysaæfingar á KEF eru með stærstu hópslysaæfingum sem haldnar eru á Íslandi, en æfingar af þessu tagi eru mikilvægur hluti af heildarviðbragðskerfi Íslands hvort sem um er að ræða flugslys eða önnur hópslys sem geta orðið.
GRINDVÍKINGAR ÓSÁTTIR MEÐ TILBOÐ ÞÓRKÖTLU Lofsungin fyrir SÍÐA 14
frábært HM
Miklu áorkað á krefjandi tímum SÍÐUR 8-9
n Eiga nú kost á takmörkuðum afnotum af húsum í Grindavík gegn 30 þúsund krona gjaldi en mega ekki gista. Margir Grindvíkingar eru ósáttir með nýtt tilboð Þórkötlu um takmörkuð afnot af húsum þeirra í GrindavíÞeir sem hafa selt Þórkötlu hús sín í Grindavík geta nú gert samning um afnot af húsinu, svo kallaðan hollvinasamning. Greiða aðeins hita og rafmagn. Gisting næturlangt eða föst búseta er ekki heimil. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Þórkötlu. Margir Grindvíkingar eru vægast sagt mjög ósáttir við þetta tilboð og hafa lýst yfir óánægju sinni á samfélagsmiðlum. Í frétt frá Þórkötlu kemur fram að þeir sem selt hafa Þórkötlu hús sín í Grindavík geti sótt um að gera samning um afnot af húsinu, svokallaðan hollvinasamning. Hollvinasamningur byggir á samstarfi Þórkötlu við seljendur húsa í Grindavík hvað varðar umhirðu, minniháttar viðhald og almennt eftirlit með eignunum. Forsenda er að öruggt sé talið að vera í eigninni og á lóðinni í kring. Með því að gera hollvinasamning ákveður „hollvinur“ að leigja aðgang að húsinu sem Þórkatla hefur keypt af þeim. Hollvinur hefur
þá heimild til þess að nota húsið innan þeirra marka sem koma fram í samningnum en meðal þess er heimild til að geyma lausafé í eigninni og sinna viðhaldi og umhirðu eftir hentugleika. Þannig geta seljendur viðhaldið tengslum sínum við húsið og í raun „gætt þess“. Meðan samningurinn er í gildi er því gengið út frá því að hollvinur heimsæki eignina og sinnir Þórkatla því ekki hefðbundnu eftirliti á meðan, nema hollvinur óski eftir því sérstaklega. Óheimilt er að gista eða dvelja í fasteigninni
næturlangt og ekki er heimilt að hafa þar fasta búsetu. Kostnaður við hollvinasamning er tvíþættur. Annars vegar borgar hollvinur mánaðarlegan kostnað af rafmagni og hita á fasteigninni. Hins vegar greiðir hollvinur 30.000 kr. einskiptis umsýslugjald þegar samningurinn er gerður. Margir Grindvíkingar hafa lýst óánægju sinni á þessu tilboði Þórkötlu og hafa tjáð sig á Facebook. Bent er á að húsin í Grindavík séu að eyðileggjast því umgengni um þau sé engin. Fyrrverandi húseigendum er boðið að geyma hluta búslóðar sinnar í húsnæðinu en Grindvíkingar fylltu allar húsgagnasölur og ruslagáma fyrr á þessu ári þegar þeim var gert að skila húsum sínum tómum. Almannavarnir telja ekki öruggt að gista í Grindavík og hafa því staðið í vegi fyrir því.
„Þetta er alveg galin nálgun hjá þeim í þessum samningi. Eitt af því sem getur einmitt bjargað grindvísku samfélagi er að afhenda fólki sem á forkaupsrétt á húsunum sínum, lyklana að þeim gegn því að borga hita og rafmagn og sjá um eðlilegt viðhald húsnæðis ásamt því að geta valið það að gista ef það vill. Þórkatla sparar ca. 4-5 milljónir á mánuði áætla ég fyrir hver 100 húsnæði sem þeir afhenda lyklana til fyrrverandi eigenda. Ágætis sparnaður hjá þeim til 1. mars 2026 sem er tíminn sem þeir mega ekki leigja eða selja öðrum eignina,“ sagði Gunnar Gunnarsson, bæjarfulltrúi í Grindavík m.a. í færslu á Facebook síðu VF. Oddvitar stjórnmálaflokkana í Suðurkjördæmi verða gestir Grindvíkinga á íbúafundi í Kvikunni í Grindavík á laugardaginn kl. 11.
16 SÍÐUR Í ÞESSARI VIKU • STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM