FERÐATÖSKUR Á FERÐ OG FLUGI 24.–27. nóvember
FIMMTUDAG KL. 19:30 HRINGBRAUT OG VF.IS
Miðvikudagur 23. nóvember 2022 // 44. tbl. // 43. árg.
Landnámsdýragarðurinn stækki og gistihýsi við Víkingaheima
Kór Keflavíkurkirkju fagnar 80 ára afmæli á þessu ári. Í tilefni afmælisins var boðið til afmælistónleika í Keflavíkurkirkju um liðna helgi þar sem leikin voru óskalög kórsins. Húsfyllir var á tónleikunum sem fram fóru í Keflavíkurkirkju en þegar söngveislunni lauk var boðið til kaffisamsætis í Kirkjulundi. Myndin var tekin við upphaf tónleikanna. Í Suðurnesjamagasíni á fimmtudagskvöld verður boðið upp á tóndæmi frá afmælistónleikunum. VF-MYND: HILMAR BRAGI
Útlendingur ehf. hefur óskað heimildar umhverfis- og skipulagsráðs Reykjanesbæjar til að vinna tillögu að breyttu deiliskipulagi fyrir lóðina Víkingabraut 1 við Víkingaheima í Innri Njarðvík. Að megin inntaki er erindið um nýja sýningu innan núverandi byggingar, uppbyggingu á landnámsdýragarðinum sem stækki og verði opinn allt árið ásamt því að á lóðina komi nokkur gistihýsi og þjónustuhús. Ráðið hefur samþykkt heimild til að vinna tillögu að breytingu á deiliskipulagi í samráði við skipulagsfulltrúa bæjarins.
Tíu tímabundin hjúkrunarrými á HSS Beðið eftir rýmum á hjúkrunarheimilum. Stefnt að opnun deildarinnar í byrjun nýs árs. Heilbrigðisstofnun Suðurnesja auglýsir eftir hjúkrunarfræðingum, sjúkraliðum og starfsfólki í aðhlynningu vegna nýrra rýma sem opnuð verða á HSS í byrjun næsta árs. Í auglýsingunni, sem birtist í Víkurfréttum, segir að vegna mikils skorts á hjúkrunarrýmum verður tekin í notkun ný tíu rýma deild á HSS sem tímabundið úrræði til að mæta þessum vanda. „Framundan er mikil uppbygging á HSS og leitum við að metnaðarfullum og jákvæðum einstaklingum til að slást í okkar frábæra hóp og taka þátt í þessu spennandi verkefni með okkur,“ segir m.a. í auglýsingunni. Óskað er eftir að ráða hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða í vaktavinnu. Einnig er óskað eftir að ráða starfsfólk í aðhlynningu. Í öllum tilvikum
er æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf í byrjun árs 2023. Rýmin verða opnuð að beiðni heilbrigðisráðuneytisins til að bregðast við miklum skorti á hjúkrunarrýmum. Hún verður staðsett í D-álmu. Að sögn Ölmu Maríu Rögnvaldsdóttur, framkvæmdastjóra hjúkrunar hjá HSS, verða rýmin tíu notuð fyrir skjólstæðinga Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja sem hafa lokið meðferð en eru að bíða eftir að komast á hjúkrunarheimili. Alma María segir að opnun rýmanna standi og falli með því hvort takist að manna deildina, það sé mesta áskorunin. „Við erum bjartsýn á að takist að
manna sérstaklega þar sem þessi rými kalla ekki á eins margt starfsfólk eins og sjúkradeildin þar sem skjólstæðingarnir eru búin með sína meðferð og eru að bíða eftir því að komast á hjúkrunarrými. Því sé hægt að hafa færri hjúkrunarfræðinga en á móti séu fleiri sjúkraliðar og ófaglærðir, eins og hjúkrunarheimili eru mönnuð.“ Alma segir að ráða þurfi a.m.k. þrjá hjúkrunarfræðinga og þau reyni að fá sem flesta sjúkraliða til starfa. Unnið er eftir ákveðnu módeli varðandi mönnun. Ef ekki fást hjúkrunarfræðingar verður ekki hægt að opna deildina. Alma segir að þau á HSS séu bjartsýn á að ná að manna og stefnt sé að opnun deildarinnar á fyrsta fjórðungi nýs árs. Mögulega takist ekki að opna öll rýmin strax, en stefnan sé sett á tíu rými eins og
áætlanir geri ráð fyrir. Húsnæðið er tilbúið en enn vantar öll aðföng eins og sjúkrarúm og önnur húsgögn sem mun taka einhvern tíma að útvega.
NET SÍMI SJÓNVARP
Hjá okkur er allt Ljósleiðari innifalið 10.490 kr/mán. ENGINN AUKAKOSTNAÐUR, FRÍR ROUTER Kapalvæðing • Hafnargata 21 • 421 4688 www.kv.is • kv@kv.is
V I Ð S Ý N U M A L L A R E I G N I R, F Á Ð U T I L B O Ð Í F E R L I Ð.
DÍSA EDWARDS D I S A E@A L LT.I S | 560-5510
ÁSTA MARÍA JÓNASDÓTTIR
HELGA SVERRISDÓTTIR
ELÍNBORG ÓSK JENSDÓTTIR
UNNUR SVAVA SVERRISDÓTTIR
ELÍN FRÍMANNSDÓTTIR
PÁLL ÞOR BJÖRNSSON
A S TA@A L LT.I S | 560-5507
H E LG A@A L LT.I S | 560-5523
E L I N B O RG@A L LT.I S | 560-5509
U N N U R@A L LT.I S | 560-5506
E L I N@A L LT.I S 560-5521
PA L L@A L LT.I S | 560-5501
16 SÍÐUR Í ÞESSARI VIKU • STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM