Anna Lára lék Hvað gerist sinn fyrsta 21. nóvember? A-landsleik
Takið daginn frá og fylgist með á netto.is
n Sjá síðu 22
DREIFT Á SUÐURNESJUM OG Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU • ÓKEYPIS EINTAK
Hefur alla burði til að vera til fyrirmyndar
Forsetahjónin Halla Tómasdóttir og Björn Skúlason heimsóttu Grindavík á sunnudagskvöld og tóku þátt í samverustund í Grindavíkurkirkju. Tilefnið var að ár var liðið frá miklum náttúruhamförum í Grindavík þar sem rýma þurfti bæinn. Nánar er greint frá samverustundinni í blaðinu í dag og sagt frá fleiri viðburðum í Grindavík. MYND: INGIBERGUR ÞÓR JÓNASSON
„Ég er mjög bjartsýn fyrir h ö n d H e i lbrigðisstofnunar Suðurnesja á þessum merku tímamótum þegar stofnunin fagnar sjötíu ára afmæli. Ég veit að hún hefur alla burði til að vera til algjörrar fyrirmyndar,“ segir Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir en hún var skipuð forstjóri HSS til fimm ára frá 1. mars á þessu ári. Guðlaug segir ótrúlega mörg tækifæri sem þessi stofnunin hafi. „Ég sé það þannig að Heilbrigðisstofnun Suðurnesja geti verið heilbrigðisstofnun til fyrirmyndar.. Það er margt í starfsemi stofnunarinnar sem er mjög burðugt og við getum vel byggt á. Engu að síður þurfum við að bjóða upp á fjölbreyttari þjónustu.“ Víkurfréttir fjalla ítarlega um HSS á þessum merku tímamótum á blaðsíðum 10-15 í blaðinu.
Miðvikudagur 13. nóvember 2024 // 43. tbl. // 45. árg.
Mikil fækkun flóttafólks Í lok október voru um 400 einstaklingar í þjónustu Vinnumálastofnunar í Reykjanesbæ en það er fækkun um 700 einstaklinga. Vinnumálastofnun gerði ráð fyrir að fjöldinn væri enn um 1.100 á þessum tímapunkti. Skömmu eftir að ferðatakmörkunum vegna Covid létti varð gríðarleg fjölgun einstaklinga sem leituðu til Íslands eftir alþjóðlegri vernd. Vinnumálastofnun að undirlagi félags- og vinnumarkaðsráðuneytis, kaus að búa flestum í þessum hópi samastað í Reykjanesbæ og vorið 2023 var Vinnumálastofnun með um 1.100 einstaklinga í þessari viðkvæmu stöðu í þjónustu í Reykjanesbæ. Þetta og frekar um málið kemur fram í grein bæjarfulltrúa Framsóknarflokksins í Reykjanesbæ í blaði vikunnar.
n Sjá síðu 20
Sundlaugin í Grindavík opnuð n Sjá síðu 2
Ekki búið að leysa fyllilega úr húsnæðisvanda Grindvíkinga ári eftir hamfarir Fannar Jónasson, bæjarstjóri í Grindavík, segir í ítarlegu viðtali við Víkurfréttir, þar sem tíminn frá 10. nóvember á síðasta ári er rifjaður upp, að það hafi verið erfiðast að horfa upp á að ekki hafi allir fengið viðunandi húsnæði og að ennþá sé ekki búið að leysa fyllilega úr því vandamáli nú þegar ár er liðið frá náttúruhamförunum. „Það þarf kannski ekki að koma á óvart þegar 1.200 fjölskyldur
eða að minnsta kosti íbúðaeiningar, sem kallast svo hér í Grindavík, urðu yfirgefnar og þurfti að finna húsnæði annars staðar á yfir fullum markaði. Þetta var erfiðasta verkefnið vegna þess að þetta skiptir gríðarlega miklu máli fyrir íbúana, að fá húsnæði við hæfi,“ segir Fannar í viðtalinu. Fannar segir að ríkið hefði mátt gera betur í húsnæðismálum Grindvíkinga. „Það var viðhorfið
að þetta myndi sjálfsagt leysast af sjálfu sér. Það bjóst enginn við því að núna, ári eftir að ósköpin dundu yfir, að ástandið væri með þeim hætti að það væru fáir íbúar hérna. Svo gerðist það bara ekki og þetta varð miklu lengri tími heldur en búist var við. Eftir á að hyggja hefði verið betra að rösklegra hefði verið tekið á húsnæðismálum en gert var.“ Aðspurður hvernig næstu mánuðir verði í rekstri Grindavíkur-
bæjar sagði Fannar: „Við sjáum fram á það að geta rekið bæinn út næsta ár, 2025, að óbreyttu. Þá fer að halla undan fæti. Við vonumst nú til að að við séum komin á betri stað með þessar náttúruhamfarir þegar horft er fram á næsta ár án þess þó að vita nokkuð um það. Við erum nokkuð keik enn sem komið er hvað fjárhaginn varðar.“
n Sjá viðtal á síðum 16–18
V I Ð S Ý N U M A L L A R E I G N I R, F Á Ð U T I L B O Ð Í F E R L I Ð.
DÍSA
ÁSTA MARÍA
HELGA
ELÍNBORG ÓSK
UNNUR SVAVA
ELÍN
HAUKUR
SIGURJÓN
PÁLL
D I S A@A L LT.I S 560-5510
A S TA@A L LT.I S 560-5507
H E LG A@A L LT.I S 560-5523
E L I N B O RG@A L LT.I S 560-5509
U N N U R@A L LT.I S 560-5506
E L I N@A L LT.I S 560-5521
H A U K U R@A L LT.I S 560-5525
S I G U R J O N@A L LT.I S 560-5524
PA L L@A L LT.I S 560-5501
24 SÍÐUR Í ÞESSARI VIKU • STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM