Miðvikudagur 23. október 2024 // 40. tbl. // 45. árg.
DREIFT Á SUÐURNESJUM OG Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU • ÓKEYPIS EINTAK
Sólin rís í Grindavík Grindavík var opnuð upp á gátt snemma á mánudagsmorgun og heimafólk vill meina að nú sé sólin að rísa að nýju í Grindavík eftir að bærinn hefur verið lokaður meira og minna síðan 10. nóvember í fyrra. Myndin var tekin við sólarupprás á þriðjudagsmorgun yfir spegilslétta höfnina í Grinavík. Nýjasta skipið í Grindavíkurflotanum, Hulda Björnsdóttir GK-11, er þarna bundin við bryggju og verið er að gera skipið klárt á veiðar. VF/Sigurbjörn Daði
Gestastofa við Reykjanesvita opnar á Safnahelgi „Þetta eru mjög ánæg juleg tímamót. Það hefur lengi verið beðið eftir opnun gestastofu við Reykjanesvita og ljóst að þetta mun breyta miklu í þjónustu við gesti og ferðamenn á Reykjanesi sem nú geta nýtt salernisaðstöðu sem er alltaf opin og fengið sér kaffiveitingar í mögnuðum umhverfi,“ sagði Árni Sigfússon, verkefnastjóri hjá Bláa Lóninu og stjórnarmaður í Þjónustumiðstöðinni Reykjanes. Þjónustuhús eða gestastofa hefur verið í umræðunni og á teikniborðinu síðustu ár en lengi hefur vantað upp á að geta sinnt gestum og ferðamönnum sem koma út á Reykjanes. Árni sagði í ræðu sinni við opnun Safnahelgar á Suðurnesjum sem var í nýja gestahúsinu að Grímur Sæmundsen og Bláa Lónið hafi tekið málið að sér fyrir
nokkru síðan, ekki síst sem samfélagslegt verkefni og stuðning til ferðaþjónustunnar og lagt til fjármagn til að laga íbúðarhúsið með byggingu gestastofu sem nú hefur verið opnuð. „Við munum hafa opið í vetur, kannski ekki á hverjum degi en það
mun koma í ljós. Alla vega verður kominn ársopnunartími frá og með næsta vori,“ sagði Árni. Í gestastofunni er sýning um sögu vitanna og vitavarðanna á Reykjanesi en í næsta húsi, gamla vélahúsinu, er glæsileg sýning um sögu sjóslysa á Íslandi sem voru
mörg við Reykjanesið og suðvesturströnd landsins á síðustu öld. Víkurfréttir munu gera gestahúsinu, sýningunum á Reykjanesi og Safnahelgi á Suðurnesjum betri skil í Suðurnesjamagasíni og á vf.is í vikunni.
Ásmundi boðin sæti hjá öðrum framboðum „Ég er drullu svekktur,“ segir Ásmundur Friðriksson, þingm a ð u r, e f t i r að honum var hafnað á framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi fyrir komandi alþingiskosningar. Ásmundur sóttist eftir þriðja sæti á lista flokksins, eins og Birgir Þórarinsson. „Við klúðruðum þessu sjálfir,“ segir Ásmundur og vísar til sjálfstæðismanna á Suðurnesjum og baráttu þeirra fyrir sætum á framboðslistanum. Suðurnesjamenn eiga nú Vilhjálm Árnason í öðru sæti og næstur er Guðbergur Reynisson í sjötta sæti. „Það var ekki hlustað á varnaðarorð okkar,“ segir hann. Eftir að ljóst var að Ásmundi hafði verið hafnað af Sjálfstæðisflokknum í Suðurkjördæmi hefur verið leitað til hans frá öðrum framboðum. Heimildir Víkurfrétta herma að bæði Miðflokkurinn og Flokkur fólksins hafi leitað til Ásmundar. „Mér var boðið öruggt sæti og ég þakka fyrir það. Ég sé mér hins vegar ekki fært að yfirgefa Sjálfstæðisflokkinn laskaðan á þessum tímamótum,“ segir Ásmundur. Hann segist ekki vera sestur í helgan stein. Hann sé fullur af starfsorku og ætli sér út á vinnumarkaðinn eftir þingsetuna.
Suðurnesjamönnum fækkar á þingi Ljóst er að Suðurnesjamönnum fækkar á þingi. Oddný Harðardóttir hefur ákveðið að hætta hjá Samfylkingu. Tvö efstu sætin þar nú eru ekki skipuð Suðurnesjamönnum. Búið er að fastsetja fyrstu tvö sætin hjá Framsókn án Suðurnesjafólks en Jóhann Friðrik Friðriksson var áður í öðru sæti þar. Nokkuð öruggt er talið að Guðbrandur Einarsson skipi efsta sæti Viðreisnar í kjördæminu og sé því eini Suðurnesjamaðurinn sem skipar oddvitasæti flokks í kjördæminu. Þá hefur Hólmfríður Árnadóttir verið orðuð við oddvitasæti hjá Vinstri grænum en VG náði ekki inn manni síðast og er langt frá því núna miðað við skoðanakannanir.
SÍÐA 10
Guðný Birna Guðmundsdóttir, forseti bæjarstjórnar Reykjanesbæjar, setti formlega Safnahelgi á Suðurnesjum 2024. VF/Páll Ketilsson
Gunnar stígur til hliðar í Vogum
24 SÍÐUR Í ÞESSARI VIKU • STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM