Skip to main content

Víkurfréttir 39. tbl. 45. árg.

Page 1

Félagsskapurinn er aðalatriðið

8–9

17.–20. október

Tímamörk við kirkjugarðinn Miðvikudagur 16. október 2024 // 39. tbl. // 45. árg.

DREIFT Á SUÐURNESJUM OG Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU • ÓKEYPIS EINTAK

BLÓÐRAUÐ NORÐURLJÓS

Það var mikil ljósadýrð á himni þegar væn kórónuskvetta frá sólinni skall á himinhvolfinu og bauð upp á einstaka norðurljósavirkni síðasta fimmtudagskvöld. Myndin hér að ofan var tekin á Garðskaga þar sem blóðrauð norðurljós dönsuðu á himni. Sævar Helgi Bragason, betur þekktur sem Stjörnu-Sævar, segir kórónuskvettur vera skeifulaga flóðbylgjur eða ský úr hraðfleygum rafhlöðnum ögnum, aðallega rafeindum. Rafeindirnar skella á segulsviði jarðar, streyma eftir segulsviðslínum inn í efri hluta andrúmsloftsins og örva þar atóm og sameindir sem byrja að glóa. Rauð norðurljós frá örvuðum súrefnisatómum verða til í 200–400 km. hæð. Græn norðurljós verða til í um 100 km. hæð. Það var mikið sjónarspil þegar rauðu ljósin lögðust yfir en þau sáust víða á norðurhveli jarðar. VF/Hilmar Bragi Bárðarson

Nýr ísfisktogari Þorbjarnar kominn til Grindavíkur Nýr ísfisktogari útge rð a r i n n a r Þ o rb j a r n a r, Hu l d a Björnsdóttir GK-11, sigldi í heimahöfn í hádeginu á þriðjudag. Skipið mun brátt halda á bolfiskveiðar en hvað verður um skipið þegar Þorbirni verður skipt upp í þrjár sjálfstæðar einingar, er ekki komið á hreint að sögn Hrannars Jóns Jónsonar, útgerðarstjóra hjá Þorbirni. Skipið sem var smíðað í Gijon á Spáni, er 58 metrar að lengd og

13,6 metrar að breidd. Skrúfa skipsins er fimm metrar í þvermál en skipið var hannað með sparneytni í huga. Skipið verður gert út á ísfiskveiðar og geti þá dregið tvær botnvörp­ ur samtímis. Fjórtán til fimmtán verða í áhöfn Huldu Björnsdóttur GK. Skipið fær nafn sitt frá Huldu Björnsdóttur, eiginkonu eins af stofnendum Þorbjarnar, Tómasar Þorvaldssonar, en hún lést árið 2008.

Hulda Björnsdóttir GK 11 í Grindavíkurhöfn. VF/Eva Björk

Þau sem eiga erindi í kirkjugarðinn við Aðalgötu í Keflavík verða að skipuleggja tíma sinn vel. Þar verður ekki leyft neitt droll, ef viðkomandi mætir á bíl á svæðið. Tímamörkin eru þó ekki gestum kirkjugarðsins til höfðuðs, heldur þeim sem nýta bílastæðin til langtímageymslu á ökutækjum. Stjórn Kirkjugarða Keflavíkur hefur óskað heimildar bæjaryfir­ valda í Reykjanesbæ til að merkja bílastæði við Hátún og Hrauntún við kirkjugarðinn með hámarks­ tímalengd tvo tíma. Umhverfis- og skipulagsráð samþykkir erindið með fyrirvara um grenndarkynningu án at­ hugasemda. Þá er gerð tillaga að lóðarstækkun svo bílastæðin verið innan lóðar kirkjugarðsins.

Byggja 800 íbúðir á Ásbrú Byggðar verða 800 íbúðir auk samfélagslegra innviða, almenningsrýmis og nýrra bygginga undir aðra þjónustu fyrir íbúa á Ásbrú. Kadeco og Reykjanesbær hafa komist að samkomulagi um verkefnið. „Eftirspurn eftir íbúðarhús­ næði á Suðurnesjum hefur aukist mikið og aðstæður á Ásbrú gera það að verkum að þar er hægt að byggja hraðar upp sjálfbært íbúðahverfi en víða annars staðar. Markmið samningsins er m.a. að mæta aukinni eftirspurn eftir hús­ næði, skapa fyrirsjáanleika og hefja þéttingu og þróun byggðar á Ásbrú,“ segir í til­ kynningu frá Kadeco. Greint var frá byggingu 150 íbúða á öðru svæði í júlí sl. en það er á svokölluðum Suður­ brautarreit.

V I Ð S Ý N U M A L L A R E I G N I R, F Á Ð U T I L B O Ð Í F E R L I Ð.

DÍSA

ÁSTA MARÍA

HELGA

ELÍNBORG ÓSK

UNNUR SVAVA

ELÍN

HAUKUR

SIGURJÓN

PÁLL

D I S A@A L LT.I S 560-5510

A S TA@A L LT.I S 560-5507

H E LG A@A L LT.I S 560-5523

E L I N B O RG@A L LT.I S 560-5509

U N N U R@A L LT.I S 560-5506

E L I N@A L LT.I S 560-5521

H A U K U R@A L LT.I S 560-5525

S I G U R J O N@A L LT.I S 560-5524

PA L L@A L LT.I S 560-5501

16 SÍÐUR Í ÞESSARI VIKU • STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Víkurfréttir 39. tbl. 45. árg. by Víkurfréttir ehf - Issuu