Miðvikudagur 9. október 2024 // 38. tbl. // 45. árg.
DREIFT Á SUÐURNESJUM OG Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU • ÓKEYPIS EINTAK
Skoða möguleika á að bora eftir vatni á Ströndinni
„Þetta er ákveðið púsluspil“
8–9
Vogar á Vatnsleysuströnd.
Framkvæmdir í Svartsengi ganga vel. Á þessari drónamynd Ragnars Axelssonar sést vel yfir í Bláa Lónið sem nýtir auðlindavökva orkuversins.
Bæjarráð Sveitarfélagsins Voga leggur til að skoðaður verði sá möguleiki að bora eftir vatni á Vatnsleysuströnd þar sem það svæði er minnst útsett fyrir jarðhræringum og eldsumbrotum. Minnisblað um mögulega mengunarhættu frá eldsumbrotum á vatnsverndarsvæði fyrir vatnsbólin á Lágasvæðinu í Grindavík og í Vogavík í Vogum var lagt fram á síðasta fundi bæjarráðs sveitarfélagsins. Minnisblaðið var tekið saman af Heilbrigðiseftirliti Suðurnesja, HS Veitum, HS Orku, Sveitarfélaginu Vogum, Umhverfisstofnun, Veðurstofu Íslands og ÍSOR. Bæjarráð þakkar í afgreiðslu málsins góða vinnu við greiningu á stöðu neysluvatnsmála í sveitarfélaginu og leggur áherslu á að unnið sé áfram að viðbragðsáætlunum til að trygg ja neysluvatn með HS veitum.
Vatnið nær tvöfalt dýrara Góður gangur í Sandgerði en Garðinum í Svartsengi n Stækkun og endurbætur orkuvers HS Orku á áætlun:
n Fasteignaeigendur í Garði greiða um helmingi lægri vatnsskatt en Sandgerðingar
Íbúar í Garði greiða um það bil helmingi lægri vatnsskatt en íbúar í Sandgerði en saman mynda þessir gömlu byggðakjarnar sveitarfélagið Suðurnesjabæ. Jón Norðfjörð, bæjarbúi í Suðurnesjabæ fjallar um málið í aðsendri grein í blaðinu. Fyrir liggur að fasteignaeigendur í Garði greiða um það bil helmingi lægri vatnsskatt en fasteignaeigendur í Sandgerði. Skýringin er sú að HS Veitur eiga vatnsveituna í Garði og rukka fasteignaeigendur þar samkvæmt gjaldskrá, en bærinn á vatnsveituna í Sandgerði og kaupir vatn af HS veitum við dælustöð og selur til fasteignaeigenda í Sandgerði sem hlutfall af fasteignamati, óháð notkunarmagni. Þannig hefur þetta verið frá sameiningunni 2018 og ljóst að eigendum fasteigna í bæjarfélaginu er mismunað. Þetta er í andstöðu við gefin fyrirheit fyrir sameiningu eins og lesa má á upplýsingasíðu vegna kosninga um sameiningu Sandgerðis og Garðs, segir í grein
Jóns um málið og hann sendi fjórar spurningar til stjórnenda Suðurnesjabæjar og spurði m.a. hvers vegna þessi mismunun væri. Hann fékk m.a. það svar að bæjarfélagið reki vatnsveituna í Sandgerði
en HS Veitur reki vatnsveituna í Garði. Samkvæmt lögum megi ekki reka vatnsveituna með halla. „Suðurnesjabær þekkir ekki rekstur HS veitna til þess að svara því til hver sé munur á rekstri og gjaldskrám vatnsveitnanna,“ sagði jafnframt í svari sveitarfélagsins. Grein Jóns er á síðu 12 í Víkurfréttum vikunnar.
Framkvæmdir við stækkun og endurbætur á jarðvarmaverinu í Svartsengi eru nánast á áætlun þrátt fyrir umtalsverðar tafir í ljósi sex eldgosa á Reykjanesi á tæpu ári. Fyrsta skóflustungan var tekin í desember 2022 og áætlanir gera ráð fyrir gangsetningu í ársbyrjun 2026. Með stækkuninni eykst framleiðslugeta orkuversins en aukningin felst fyrst og fremst í því að nýta auðlindina betur þar sem ekki verða boraðar nýjar jarðhitaholur í tengslum við stækkunina. Framkvæmdirnar miða ekki síður að því að endurnýja eldri búnað en orkuverið var byggt upp í sex áföngum á þrjátíu árum og var fyrsti hlutinn tekinn í notkun árið 1976. Framkvæmdirnar nú eru því sjöundi áfanginn í uppbyggingu versins. Tvö eldri orkuver verða tekin úr notkun þegar hið nýja kemst í gagnið
auk þess sem vonir standa til þess að endurbæturnar leiði af sér lægri viðhaldskostnað til framtíðar. Jarðvarmaverið í Svartsengi er fyrsta blandaða jarðvarmavirkjunin á Íslandi en þar er framleidd raforka, heitt vatn og kalt vatn auk þess sem fleiri auðlindastraumar eru nýttir frá verinu í Auðlindagarði HS Orku segir í tilkynningu frá félaginu.
16 SÍÐUR Í ÞESSARI VIKU • STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM