Skip to main content

Víkurfréttir 38. tbl. 44. árg.

Page 1

Sameining Keflavíkur FLJÓTLEGRI og Njarðvíkur:

FLJÓTLEGRI KOSTURINN

Gunnar opnar K pandóruboxiðO S T U R I N N

Mexíkóskt þema í kvöld?

Corny súkkulaði 50 gr

14

Opnunartími Hringbraut: Allan sólarhringinn Opnunartími Tjarnabraut: 08.00 - 23.30 Virka daga 09.00 - 23.30 Helgar

Miðvikudagur 11. október 2023 // 38. tbl. // 44. árg.

Stöðugildum fjölgaði mest á Suðurnesjum og Suðurlandi Byggðastofnun h e f u r f rá á ra mótum 2013/2014 gert árlega könnun á staðsetningu starfa á vegum ríkisins. Með störfum á vegum ríkisins er átt við stöðugildi greidd af Fjársýslunni, stöðugildi hjá opinberum hlutafélögum og stofnunum og stöðugildi hjá stofnunum sem hafa meirihluta rekstrartekna sinna af fjárlögum. Þetta kemur fram í frétt frá stofnuninni. Fyrir liggja nú tölur um fjölda stöðugilda við áramót 2022/2023 og eru þær birtar í skýrslunni Hvar eru ríkisstörfin 31.12.2022? Einnig hefur mælaborð þar sem hægt er að skoða fjölda stöðugilda eftir landshlutum, sveitarfélögum og málaflokkum ráðuneyta verið uppfært með nýjustu gögnum. Stöðugildi á vegum ríkisins voru 27.694 þann 31. desember 2022, þar af voru 18.015 (65%) skipuð af konum og 9.679 (35%) af körlum. Á árinu 2022 fjölgaði stöðugildum um 788 á landsvísu eða 2,9%. Flest stöðugildi á vegum ríkisins eru staðsett á höfuðborgarsvæðinu, enda er meirihluti landsmanna búsettur þar. Hins vegar er hlutfall stöðugilda á höfuðborgarsvæðinu (70%) hærra en hlutfall landsmanna sem þar býr (64%). Mest hlutfallsleg fjölgun stöðugilda varð á Suðurnesjum 10,7% og næst mest á Suðurlandi 9,1%. Á Suðurnesjum fjölgaði mikið hjá ISAVIA og lögreglunni á Suðurnesjum sem má eflaust rekja til upprisu ferðaþjónustunnar eftir heimsfaraldur og nokkur fjölgun varð hjá Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Á Suðurlandi fjölgaði meðal annars hjá Heilbrigðisstofnun Suðurlands og þjóðgarðinum á Þingvöllum.

Með vindinn í fangið á leið í Gerðar Það eru margar áhugaverðar gönguleiðir suður í Garði. Göngustígur liggur t.a.m. með ströndinni frá Garðskagavita og inn að Gerðum þaðan sem leiðir liggja til allra átta. Heiðurshjónin Kristín Guðmundsdóttir og Sigurður Ingvarsson gengu með vindinn í fangið frá Útskálakirkju og að Sjólyst, húsi Unu Guðmundsdóttur, á dögunum. Þessa gönguleið hafa Garðmenn gengið um aldir, enda byggðin öll með ströndinni á árum áður. Í Garði hefur mönnum líka borið gæfa til þess að raska ekki strandlínunni frá Garðskaga að Gerðum með nýrri byggð og því fær víðáttan að njóta sín í öllum veðrum. VF/Hilmar Bragi

Lóðarleiga í Reykjanesbæ alltof há Íbúar í Reykjanesbæ hafa lengi kvartað yfir hárri lóðarleigu og ekki að ósekju, enda búa þeir við langhæstu lóðaleigu á landinu. Lóðarleiga er hluti þeirra fasteignag jalda sem greidd eru á hverju ári. Annað sem fellur þar undir eru fasteignaskattar, sorphirðugjald og fleira. Kjörnir fulltrúar í sveitarstjórn Reykjanesbæjar hafa lengi verið meðvitaðir um þessa stöðu og hafa leitað leiða til að finna ásættanlega lausn. Hún hefur enn ekki fundist þrátt fyrir að viðræður hafi átt sér stað bæði við landeigendur og fulltrúa frá ríkinu.

Á hvorugum þessa aðila var að finna nokkurn vilja til þess að koma til móts við íbúa. Þetta kemur fram í grein sem Guðbrandur Einarsson, þingmaður Viðreisnar í Suðurkjördæmi, ritar í Víkurfréttir í dag. Byggðastofnun gefur út skýrslu á hverju ári um fasteignagjöld sem má finna á vef Byggðastofnunar. Þar kemur m.a. fram að meðaltal lóðarleigu á Íslandi sé kr. 49.435. Er þar verið að miða við lóðarleigu á lóð sem er 808 fermetrar að stærð. Reykjanesbær er hins vegar langt frá þessu meðaltali og með langhæstu lóðar-

leiguna á Íslandi, þar sem hæsta lóðarleigan í Keflavík er kr. 149.655 og í Njarðvík kr. 139.275. Þau sem greiða lóðarleigu til sveitarfélagsins og njóta 25% afsláttar greiða hins vegar kr. 112.241 í Keflavík og kr. 104.456 í Njarðvík. Í Grindavík er verið að greiða kr. 41.570 fyrir sambærilega lóð. „Ég nefndi það fyrr í þessari grein að meðaltal lóðarleigu á landinu væri rúmar 49 þúsund króna og þá er það ekki ásættanlegt að Reykjanesbær rukki 112 þúsund í Keflavík og 104 þúsund í Njarðvík sem er tvöfalt hærra en meðaltalið,“ segir Guðbrandur m.a. í greininni sem lesa má í heild sinni á síðu 12 í blaðinu í dag.

V I Ð S Ý N U M A L L A R E I G N I R, F Á Ð U T I L B O Ð Í F E R L I Ð.

DÍSA

ÁSTA MARÍA

HELGA

ELÍNBORG ÓSK

UNNUR SVAVA

ELÍN

HAUKUR

SIGURJÓN

PÁLL

D I S A@A L LT.I S 560-5510

A S TA@A L LT.I S 560-5507

H E LG A@A L LT.I S 560-5523

E L I N B O RG@A L LT.I S 560-5509

U N N U R@A L LT.I S 560-5506

E L I N@A L LT.I S 560-5521

H A U K U R@A L LT.I S 560-5525

S I G U R J O N@A L LT.I S 560-5524

PA L L@A L LT.I S 560-5501

16 SÍÐUR Í ÞESSARI VIKU • STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Víkurfréttir 38. tbl. 44. árg. by Víkurfréttir ehf - Issuu