Unnu dag og nótt við að byggja upp veldi Vinahópur sem varð til við upprisu körfuboltans í Keflavík hittist enn og gerir margt skemmtilegt saman. Heldur „Ólympíuleika“ í Kaupmannahöfn og fer á Volksfest í Þýskalandi. – Sjá viðtal við Hrannar Hólm í blaðinu.
13.–16. október
Miðvikudagur 12. október 2022 // 38. tbl. // 43. árg.
Þúsund ungmenni kynntu sér atvinnulífið Tæplega eitt þúsund nemendur í 8. og 10. bekk úr grunnskólum á Suðurnesjum sóttu starfa kynningu í íþróttahúsi Keflavíkur í upphafi vikunnar. Á annað hundrað starfsgreinar voru kynntar í miklum fjölbreytileika atvinnulífsins. Síðustu ár, að tveimur í heimsfaraldri undan skildum, hefur kynningin verið hluti af Sóknar áætlun Suðurnesja, haldin af Sambandi sveitar félaga á Suðurnesjum (SSS) en skipulögð af Þekk ingarsetri Suðurnesja. Markmið starfsgreinakynn ingarinnar er að efla starfsfræðslu grunnskóla nemenda í 8.–10. bekk og stuðla að sambærilegri fræðslu fyrir aldurshópinn á svæðinu. Kynningin er einnig mikilvægur þáttur í því að auka starfsvitund og skerpa á framtíðarsýn ungs fólks. „Þetta hefur vaxið ár frá ári og ungmennin fá góða innsýn í atvinnulífið,“ sagði Hanna María Kristjánsdóttir, forstöðumaður Þekkingarseturs Suðurnesja. Meðfylgjandi mynd var tekin á þriðjudags morgun. Áhugasamir peyjar ræddu við starfsfólk frá Isavia á Keflavíkurflugvelli en í stofnuninni eru á annað hundrað gerðir starfa í rúmlega fimmtíu deildum eða sviðum. VF-mynd: pket
NET SÍMI SJÓNVARP
Hjá okkur er allt Ljósleiðari innifalið 10.490 kr/mán. ENGINN AUKAKOSTNAÐUR, FRÍR ROUTER Kapalvæðing • Hafnargata 21 • 421 4688 www.kv.is • kv@kv.is
Fjárveitingar til HSS hafa lækkað miðað við fólksfjölgun
Guðbrandur Einarsson, þingmaður í Suðurkjördæmi, segir fjárveitingar til Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja hafi lækkað miðað við fólksfjölgun á Suðurnesjum. Þetta kemur fram í aðsendri grein þingmannsins í Víkurfréttum. „Þegar fjárveitingar til Heilbrigðisstofnunar Suður nesja eru skoðaðar kemur í ljós að þær hafa hækkað um 10% frá árinu 2008 til 2022. Séu þessi framlög skoðuð
miðað við fjölda íbúa kemur hins vegar í ljós að framlögin hafa lækkað um 22%. Fjárveitingar vegna sjúkrasviðs sem sinnir m.a. slysaog bráðaþjónustu hafa lækkað talsvert á tímabilinu 2008 –2022 og nemur lækkunin 23% en þegar skoðuð eru framlög á hvern íbúa er lækkunin heil 45%. Á tímabilinu hefur íbúum á Íslandi fjölgað um 17% en á sama tíma hefur íbúum Suðurnesja fjölgað um 36,6%.
V I Ð S Ý N U M A L L A R E I G N I R, F Á Ð U T I L B O Ð Í F E R L I Ð.
DÍSA EDWARDS D I S A E@A L LT.I S | 560-5510
ÁSTA MARÍA JÓNASDÓTTIR
JÓHANN INGI KJÆRNESTED
ELÍNBORG ÓSK JENSDÓTTIR
UNNUR SVAVA SVERRISDÓTTIR
ELÍN FRÍMANNSDÓTTIR
PÁLL ÞOR BJÖRNSSON
A S TA@A L LT.I S | 560-5507
J O H A N N@A L LT.I S | 560-5508
E L I N B O RG@A L LT.I S | 560-5509
U N N U R@A L LT.I S | 560-5506
E L I N@A L LT.I S 560-5521
PA L L@A L LT.I S | 560-5501
16 SÍÐUR Í ÞESSARI VIKU • STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM