Skip to main content

Víkurfréttir 37. tbl. 44. árg.

Page 1

Miðvikudagur 4. október 2023 // 37. tbl. // 44. árg.

MEÐAL EFNIS Síða 5 Sjúklingar á sjúkradeildinni munu allir hafa margmiðlunarskjái við rúm sín á deildinni til að horfa á sjónvarp eða flakka um netheima.

Ungt fólk á fullt erindi á Alþingi

VF/Hilmar Bragi

Síður 8–9

Bylting í aðbúnaði fyrir sjúklinga og starfsfólk á nýjum deildum HSS Ný slysa- og bráðamóttaka hefur formlega verið tekin í notkun á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Við sama tækifæri opnaði einnig ný nítján rýma sjúkradeild á stofnuninni. Willum Þór Þórsson, heilbrigðisráðherra, klippti á borða á tveimur stöðum á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja á þriðjudaginn. Dagskráin hófst á þriðju hæð stofnunarinnar þar sem undanfarin misserI hefur verið unnið að því að innrétta sjúkradeildina. Þar eru nítján rúmgóðar stofur eða herbergi með stórum baðherberg jum. Hver stofa er útbúin með sérstakri lyftu sem auðveldar rúmliggjandi sjúklingum að komast inn á baðherbergin. Þá verða settir upp margmiðlunarskjáir við öll rúm. Þar geta sjúklingar horft á sjónvarp eða vafrað um netheima. Það voru þau Willum Þór ráðherra og Bryndís Sævarsdóttir, deildarstjóri á sjúkrahússviði, sem opnuðu sjúkradeildina formlega. Bylting hefur orðið á slysa- og bráðamóttöku HSS með opnun móttökunnar á jarðhæð D-álmunnar. Starfssemin fer úr um 90 fermetra rými sem var orðið barn síns tíma og yfir í um 300 fermetra rými. Þar eru rúmgóðar bráða- og slysastofur auk einangrunarherbergja, góðrar biðstofu fyrir sjúklinga og góðrar starfsmannaaðstöðu. Aðkoma sjúkrabíla að Heil-

brigðisstofnun Suðurnesja er líka á nýjum stað með auðveldu aðgengi að slysa- og bráðamóttökunni. Þá er röntgendeildin á sama gangi og allur aðbúnaður hinn besti. Willum Þór naut aðstoðar frá Ástu Kristbjörgu Bjarnadóttur deildarstjóra við að klippa á borða við opnun slysa- og bráðamóttökunnar. Við opnun nýju slysa- og bráðamóttökunnar kom fram að komur þangað eru um 16.000 á ári hjá Heilbrigðisstofnun Suðurnesja og hafa komur aukist um 40% á tæpum áratug. Slysa- og bráðamóttakan í Keflavík er sú þriðja stærsta á landinu á eftir Landspítala í Fossvogi og slysa- og bráðamótttökunni á Selfossi. Willum Þór upplýsti að slysaog bráðamóttökunni hafi verið tryggðar aukalega 200 milljónir króna á ári af fjárlögum sem verður til að efla móttökuna enn frekar. Því var líka haldið fram við opnunina á þriðjudaginn að slysA- og bráðamóttakan sem verið væri að opna á nýjum stað á HSS væri sú glæsilegasta á landinu og heima28. september fólk mætti vera stolt af aðstöðunni –1. október sem nú væri í boði.

Lúmsk eftirköst heilahristings Síða 14

Ásta Kristbjörg Bjarnadóttir, deildarstjóri slysa- og bráðamóttöku, og Willum Þór Þórsson, heilbrigðisráðherra, klipptu á borða.

Bryndís Sævarsdóttir, deildarstjóri á sjúkrahússviði HSS, og Willum Þór Þórsson, heilbrigðisráðherra, opnuðu nýju sjúkradeildina á HSS.

Vill stækka körfuknattleiksíþróttina

Xtra ódýrt í Nettó!

Pastaveisla á undir 700 kr

16 SÍÐUR Í ÞESSARI VIKU • STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Víkurfréttir 37. tbl. 44. árg. by Víkurfréttir ehf - Issuu