Skip to main content

Víkurfréttir 35. tbl. 45. árg.

Page 1

Suðurnesjamagasín og blað vikunnar:

Ert þú meðal þeirra 80.000 appnotenda sem fá lægsta verðið í Nettó með appinu?

80 ára afmæli Garðskagavita

4

Miðvikudagur 18. september 2024 // 35. tbl. // 45. árg.

DREIFT Á SUÐURNESJUM OG Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU • ÓKEYPIS EINTAK

Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, er kominn í veikindaleyfi. Hann mun þó áfram sinna ýmsum sérverkefnum í samráði við Halldóru Fríðu Þorvaldsdóttur, formann bæjarráðs og staðgengil bæjarstjóra, sem mun taka við stjórnartaumunum fram að áramótum. Kjartan Már greindist með krabbamein í sumar. Horm­ ónameðferð hófst strax í kjölfar greiningar og er stefnt að geislameðferð í október og nóvember. Gert er ráð fyrir að Kjartan Már taki aftur við starfi bæjarstjóra eftir áramót.

Harma upplifun Vina Hljómahallar „Meirihluti bæjarráðs og fulltrúi Umbótar harmar að meðlimir í Vinum Hljómahallar upplifi að flutningur Bókasafns Reykjanesbæjar í Hljómahöll muni hafa neikvæð áhrif á þá starfsemi sem er til staðar í húsinu nú þegar.“ Þetta segir í bókun fulltrúa Framsóknarflokks, Samfylkingar, Beinnar leiðar og Umbótar í bæjarráði Reykjanesbæjar þann 5. september þegar lagður var fram undirskriftalisti frá Vinum Hljómahallar. Í bókuninni segir að bæjarstjóri og formaður bæjarráðs hafi átt fund með fulltrúa Vina Hljóma­ hallar 5. júlí sl. þar sem farið var yfir verkefnið og fulltrúanum boðið að taka þátt í þeirri vinnu sem fram undan er í Rokksafni Íslands sem fulltrúa hagsmuna­ aðila safnsins. „Þar stendur meðal annars til að flytja sýninguna til í húsinu og fjárfesta í nútímalegri og upp­ færðri gagnvirkri sýningu. Vill meirihluti bæjarráðs taka undir orð framkvæmdastjóra Hljóma­ hallar sem birtist á vef Víkurfrétta 4. september 2024 og á prenti í Ljósanæturblaði Víkurfrétta. Þar kemur m.a. fram að sýningin komi til með að taka breytingum og verða enn glæsilegri á næst­ unni, að tækifæri séu til staðar til að gera Hljómahöll að enn glæsi­ legra menningarhúsi og að safnið hafi fengið rausnarlega fjárveit­ ingu til að endurnýja sýninguna,“ segir í bókuninni.

Kjartan Már í veikindaleyfi til áramóta

Ívar settur í embætti djákna Ívar Valbergsson var settur í embætti djákna við Keflavíkurkirkju í innsetningar- og sjálfboðaliðamessu síðasta sunnudagskvöld. Messan var auk þess tileinkuð þeim einstaklingum sem eru í sjálfboðinni þjónustu við Keflavíkurkirkju. Fyrir messu var sjálboðaliðum boðið til stundar í Kirkjulundi þar sem Guðmundur Brynjólfsson, djákni, ræddi sjálfboðastarfið innan kirkjunnar. Þá var boðið upp á ljúfa tóna, auk þess sem Skólamatur bauð í súpu og Soho bauð upp á brauðmeti og álegg. Á myndinni hér að ofan má sjá þau Hans Guðberg Alfreðsson, prófast í Kjalarnesprófastsdæmi, séra Erlu Guðmundsdóttir, sóknarprest í Keflavíkurkirkju, og Ívar Valbergsson, djákna. VF/Hilmar Bragi

Þekkjum einkennin og tölum um heilabilun

8

Viðræður um hönnun á gervigrasvelli í Suðurnesjabæ Bæjarráð Suðurnesjabæjar hefur samþykkt samhljóða að fela bæjarstjóra að eiga viðræður við VSÓ Ráðgjöf um hönnun gervigrasvallar. Minnisblað bæjarstjóra um verðkönnun varðandi hönnun gervigrasvallar var tekið fyrir á fundinum. Gert er ráð fyrir að gervigrasvöllurinn rísi þar sem aðalvöllur Reynis stendur í dag. Talsverð átök hafa verið innan sveitarfélagsins um málefni gervi­ grasvallarins og t.a.m. féll meiri­ hlutinn í Suðurnesjabæ fyrr í sumar vegna málsins.

Grindvíkingurinn Guðlaugur Eyjólfsson er framkvæmdastjóri Alzheimersamtakanna

V I Ð S Ý N U M A L L A R E I G N I R, F Á Ð U T I L B O Ð Í F E R L I Ð.

DÍSA

ÁSTA MARÍA

HELGA

ELÍNBORG ÓSK

UNNUR SVAVA

ELÍN

HAUKUR

SIGURJÓN

PÁLL

D I S A@A L LT.I S 560-5510

A S TA@A L LT.I S 560-5507

H E LG A@A L LT.I S 560-5523

E L I N B O RG@A L LT.I S 560-5509

U N N U R@A L LT.I S 560-5506

E L I N@A L LT.I S 560-5521

H A U K U R@A L LT.I S 560-5525

S I G U R J O N@A L LT.I S 560-5524

PA L L@A L LT.I S 560-5501

16 SÍÐUR Í ÞESSARI VIKU • STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook