Miðvikudagur 20. september 2023 // 35. tbl. // 44. árg.
MEÐAL EFNIS
Mikið tap hjá flugskóla Tap Iceland Aviation Academy ehf., sem rekur flugskólann Flugakademíu Íslands, nam 203 milljónum króna í fyrra, samanborið við um átta milljóna króna tap 2021. Þetta kemur fram í ársreikningi Iceland Aviation Academy fyrir 2022. Félagið er í eigu Keilis, miðstöðvar vísinda, fræða og atvinnulífs ehf., og Eignarhaldsfélags Suðurnesja ehf. Frá þessu er greint í Morgunblaðinu. Samanlagt tap félagsins síðast liðin fimm ár nemur yfir 520 millj ónum króna. Eigið fé félagsins var í lok síðasta árs neikvætt um rúmar 393 milljónir króna. Í skýrslu stjórnar segir að þrátt fyrir jákvæðar horfur í flugrekstri á Íslandi og um allan heim hafi áætlanir Flugakademíunnar ekki staðist vegna ónógra umsókna frá nemendum í samtvinnað atvinnu flugnám, ítrekaðra ófyrirséðra at vika í flugrekstri félagsins og glímu við afleiðingar rekstrarerfiðleika fyrri ára.
Lífið byrjaði upp á nýtt við að koma út úr skápnum Síða 7 Síða 14
Réttir í Grindavík ÞÓRKÖTLUSTAÐARÉTTIR fóru fram á mánudaginn en frístundabændur í Grindavík smöluðu afrétt sinn á sunnudaginn. Þá hafði smalamennsku verið frestað um sólarhring vegna veðurs en ekki viðraði til smölunar á laugardaginn vegna rigningar og skyggnis í fjöllunum austan Grindavíkur þar sem grindvískar rollur hafa sumarsetu. Það var ekki annað að sjá en fé kæmi vænt af fjalli. Fleiri myndir frá Þórkötlustaðarétt eru í blaðinu í dag en einnig er fjallað um réttirnar í Suðurnesjamagasíni Víkurfrétta sem verður birt á vf.is á föstudaginn.
Hugmyndasmiðurinn á bak við hinn geysivinsæla sjónvarpsþátt Körfuboltakvöld
Ítrekar áhyggjur af einhliða áformum ríkisins „Bæjarráð Suðurnesjabæjar ítrekar áhyggjur af einhliða áformum ríkisins og lýsir vonbrigðum með að afstaða sveitarfélagsins virðist ekki hafa nein áhrif í því sambandi,“ en samskipti við Vinnumálastofnun varðandi áform um búsetu umsækjenda um alþjóðlega vernd í Suðurnesjabæ voru til umfjöllunar á síðasta fundi bæjarráðs Suðurnesjabæjar.
Í ljósi þess að Vinnumálastofnun hefur til kynnt að unnið sé að því að koma upp búsetu fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd í Suð urnesjabæ, ítrekaði bæjarráð á síðasta fundi bókun sína frá 12. júlí 2023 sem komið var á framfæri við ráðherra og fleiri aðila í stjórn kerfinu. Þar koma m.a. fram áhyggjur bæjar ráðs Suðurnesjabæjar af því að með þessu muni verða miklar áskoranir gagnvart inn
viðum sveitarfélagsins og að sú þjónusta sem sveitarfélagið heldur úti fyrir íbúana muni ekki standa undir því að fá fjölda umsækjenda um alþjóðlega vernd til búsetu í sveitarfélaginu. Þá benti bæjarráð á að Suðurnesjabær annast það verkefni að veita fylgdarlausum börnum skjól og þjónustu, sem felur í sér mikla áskorun sérstaklega fyrir félagsþjónustu og barnavernd.
Allt um náttúruvá á Reykjanesskaga Síður 4–5
Hvort á barnið að læra um kynlíf í skóla eða á netinu? Sólborg Guðbrandsdóttir í viðtali í miðopnu Víkurfrétta
21.–24. september
16 SÍÐUR Í ÞESSARI VIKU • STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM