Skip to main content

Víkurfréttir 34. tbl. 45. árg.

Page 1

Miðvikudagur 11. september 2024 // 34. tbl. // 45. árg.

DREIFT Á SUÐURNESJUM OG Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU • ÓKEYPIS EINTAK

ð u k k u l Vel ósanótt Lj

Tugþúsundir gesta nutu tónlistar á stóra sviði Reykjanesbæjar, glæsilegrar flugeldasýningar og lýsingu Bergsins á laugardagskvöldi. Dagskrá Ljósanætur náði hápunkti um kvöldið og fór vel fram í góðu veðri. Sjá svipmyndir frá hátíðinni í miðopnu.

Unnið við sprungufyllingar í Grindavík á mánudaginn. VF/Sigurbjörn Daði

Framkvæmdir hafnar við sprungufyllingar í Grindavík Framkvæmdir við sprungufyllingar eru hafnar á fimm stöðum í Grindavík, þ.e. við Sjávarbraut, Eyjasundi, Víkurbraut, Verbraut og Víkurtúni. Áætlað er að framkvæmdunum ljúki í október. Framkvæmdirnar eru hluti af aðgerðaáætlun um viðgerðir á götum, opnum svæðum og öðrum innviðum í Grindavík. Aðgerðirnar

miða að því að tryggja virkni og öryggi innviða, þar á meðal á gatnakerfi, lögnum og opnum svæðum. Þá er einnig hafin vinna við að girða af óörugg svæði innanbæjar en áætlað er að lagðir verði 6,8 km af mannheldum girðingum. Gert er ráð fyrir að hægt sé að leggja 350 metra af girðingum á dag.

Árangur af jarðhitaleit vel umfram væntingar Árangur af jarðhitaleit á Reykjanesi er vel umfram væntingar og með þeim þremur holum sem boraðar voru í leitinni að svokölluðum lághita er hægt að halda öllu íbúðarhúsbæði á Reykjanesskaga frostfríum og líklega anna eðlilegri lágmarksnotkun til skemmri tíma. Næstu skref eru frekari mælingar, útfærsla á dælum, varmaskiptum og lögnum svo holur verði tiltækar til vinnslu. Sjá nánar á síðu 4.

Myndar manneskjur eins og þær eru Ljósmyndarinn Adam Dereszkiewicz setti upp áhugaverða ljósmyndasýningu á Ljósanótt þar sem afgreiðslufólk við Hafnargötu í Reykjanesbæ voru viðfangsefni sýningarinnar. Sjá síðu 10.

Með barnavernd á bakinu í aðdraganda eldgoss „Ég tel mig ágætlega vel gefna og treysti mér fullkomlega til að meta öryggi barnanna minna,“ segir Grind­ víkingurinn Gréta Dögg Hjálmarsdóttir en hún lenti í þeirri leiðinlegu reynslu að barnavernd taldi sig þurfa hafa afskipti af börnum hennar þar sem ekki þótti öruggt að vera með börn í Grindavík í aðdraganda síðasta eldgoss. Fjölskyldan gafst að lokum upp og hefur fest kaup á húsnæði í Reykjanesbæ. Sjá viðtal á síðum 12–13.

16 SÍÐUR Í ÞESSARI VIKU • STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Víkurfréttir 34. tbl. 45. árg. by Víkurfréttir ehf - Issuu