Miðvikudagur 6. september 2023 // 33. tbl. // 44. árg.
Þúsundir á vindasamri Ljósanótt
MEÐAL EFNIS Síða 11
Epoxy gólf farið að ryðja sér til rúms á heimilum Síða 13 Þúsundir voru svo saman komnar á stór tónleikum Ljósanætur í á laugardagskvöld þar sem veðurguðirnir voru búnir að hrista úr sér mestu skapvonskuna og sýndu á sér sparihliðina. Stemmningin á svæðinu var gríðarlega góð enda boðið upp á frábæra
tónleika sem einnig var útvarpað. Ljósin á Berginu, sem hátíðin dregur nafn sitt af, kviknuðu við mikil fagnaðarlæti í lok magn aðrar flugeldasýningar. Munu þau lýsa upp myrkasta skammdegið í vetur og minna á sköpunargleðina og kraftinn í samfélaginu
sem kristallast svo vel á Ljósanótt. Svip myndir frá Ljósanótt eru í miðopnu Víkur frétta. Einnig bendum við á myndasöfn á vf.is og nokkur myndskeið frá hátíðinni. Ljósmynd: Omar Ricardo Rondon Guerrero
Fjögurþúsund í Suðurnesjabæ
Húsnæði Byggðasafns Reykjanesbæjar í Rammanum á Fitjum.
Skipt á Ramma og gamla hersjúkrahúsinu? Viljayfirlýsing Reykjanesbæjar og QN55 ehf. um möguleg skipti á Ramma [Seylubraut 1] annars vegar og fyrrum hersjúkrahúsi Varnarliðsins [ bygging 710 á Ásbrú] hins vegar var lögð fyrir fund bæjarráðs Reykjanesbæjar þann 31. ágúst síðastliðinn. Bæjarráð samþykkti tillöguna og fól Kjartani Má Kjartanssyni, bæjarstjóra, að undirrita viljayfirlýsinguna og vinna áfram í málinu. Samkvæmt heimildum Víkurfrétta yrði gamla hersjúkrahúsið varðveisluhús Reykjanesbæjar og söfn og safnamunir frá byggðasafni, ljósmynda, listasafni og fleiri söfnum fara í gamla sjúkrahúsið. Það er um fjögur þúsund fermetrar að flatarmáli.
Suðurnesjabær er ört vaxandi sveitarfélag og íbúum fjölgar jafnt og þétt. Samkvæmt upp lýsingum Þjóðskrár er íbúa fjöldi í Suðurnesjabæ kominn yfir 4.000, nánar tiltekið alls 4.005 í byrjun síðustu viku. Þegar Suðurnesjabær varð til við sameiningu Sandgerðisbæjar og Sveitarfélagsins Garðs fyrir fimm árum var íbúafjöldinn um 3.400. Íbúum hefur því fjölgað um 600 manns á þessum árum, eða um 17,5%. Fjögurþúsundasti íbúinn er hinn fimm ára gamli Filip Mrozinski. Þar sem Filip var í leikskólanum komu foreldrar hans, þau Mo-
nika og Andrzej, og hittu Magnús Stefánsson, bæjarstjóra, sem færði þeim blómvönd af þessu tilefni og bauð fjölskylduna velkomna til búsetu í Suðurnesjabæ.
Magnús Stefánsson, bæjarstjóri, og foreldrar Filip, þau Monika Tesarska og Andrzej Mrozinski.
Þjálfari fatlaðra nýtir reynslu sína í leikskólastarfi Síða 14
Naflaskoðun í kjölfar erfiðleika opnaði augun
Heilsu- og lífsstílsdagar 31. ágúst–10. september
Gamla hersjúkrahúsið á Ásbrú.
Glæsileg tilboð á heilsuvörum
ALLT AÐ
25%
TTUR AFSLÁILB OÐ Á OG APPT DEGI HVERJUM
16 SÍÐUR Í ÞESSARI VIKU • STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM