Skip to main content

Víkurfréttir 31. tbl. 44. árg.

Page 1

Miðvikudagur 23. ágúst 2023 // 31. tbl. // 44. árg.

MEÐAL EFNIS Miðopna

Myndarlegt Ljósanæturblað í næstu viku Eitt af stærri blöðum ársins hjá Víkurfréttum ár hvert er Ljósanæturblaðið. Það kemur út í næstu viku. Að vanda er blaðið stútfullt af áhugaverðu efni en síðustu daga hafa blaðamenn Víkurfrétta verið að heyra í bæjarbúum varðandi ýmislegt er tengist hátíðinni og að fá fólk til að rifja upp eitthvað gamalt sem tengist Ljósanótt eða hefðir sem hafa skapast fyrir hátíðina. Við viljum hvetja auglýsendur til að vera tímanlega með auglýsingar í blaðið og sama á við um þau ykkar sem viljið koma að efni í þetta stóra blað. Póstfangið okkar er vf@vf.is en hafa má samband við auglýsingadeildina á póstfangið andrea@vf.is.

Skólabúðir rísa á gamla malarvellinum Síður 4–5

Ljósum prýddar í Suðurnesjabæ

D

agskrá bæjarhátíðarinnar í Suðurnesjabæ hófst með ljósagöngu á mánudagskvöld þar sem íbúar byggðarkjarnanna Garðs og Sandgerðis lögðu upp í hópgöngu frá sínum kjörnum og sameinuðust svo á golfvellinum við Kirkjuból, þar sem boðið var upp á kraftmikla kjötsúpu frá Skólamat og grillaðar pylsur. Söngvarinn Hreimur kom svo Suðurnesjabæjarbúum í gírinn fyrir komandi hátíðardaga. Dagskrá bæjarhátíðarinnar er fjölbreytt og eitthvað í boði alla daga. Suðurnesjabæjardagar ná svo hámarki með fjölskylduskemmtun sem haldin verður á Garðskaga á laugardaginn. Þar verður dagskrá bæði að deginum og um kvöldið og endað með flugeldasýningu í umsjón Björgunarsveitarinnar Ægis. Suðurnesjabæjardagar hafa litaþema í bleikum og fjólubláum litum og þessar vinkonur í bæjarfélaginu voru ljósum prýddar og með réttu litina í ljósagöngunni á mánudagskvöld. Það var pínu napurt veðrið og þá kom kjötsúpan sér vel. Um helgina er einnig möguleiki á rigningu á Garðskaga, en vætuna er auðvelt að klæða af sér og hafa gleðina að vopni. Nánar má lesa um dagskrá bæjarhátíðarinnar á vef Suðurnesjabæjar. Fleiri myndir frá hátíðarhöldum í Suðurnesjabæ má sjá á vef Víkurfrétta á næstu dögum, en ljósmyndarar blaðsins heimsækja valda viðburði.

Hátíð í bæ! Nú er tímabil bæjarhátíða á Suðurnesjum en á þriggja vikna tímabili eru þrjár bæjarhátíðir. Íbúar í Sveitarfélaginu Vogum héldu fjölskyldudaga í Vogum í síðustu viku en hátíðin náði hámarki sl. laugardag með viðamikilli dagskrá í Aragerði, þar sem var söngur og gleði. Nú eru hafnir Suðurnesjabæjardagar og í næstu viku er það svo vikulöng dagskrá undir merkjum Ljósanætur. Myndirnar hér að ofan voru teknar á fjölskyldudögum í Vogum. Nánar er fjallað um hátíðina í blaðinu og fleiri myndir verða á vef Víkurfrétta, vf.is.

Vítamíndagar

Paradísin í Fjörukoti í Suðurnesjabæ Síða 11

Listakonan Eldþóra með sýningu í Vogum

24.–27. ágúst

25% afsláttur af vítamínum og bætiefnum

16 SÍÐUR Í ÞESSARI VIKU • STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Víkurfréttir 31. tbl. 44. árg. by Víkurfréttir ehf - Issuu