Miðvikudagur 14. ágúst 2024 // 30. tbl. // 45. árg.
DREIFT Á SUÐURNESJUM OG Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU • ÓKEYPIS EINTAK Ragnar með körfuboltann með geitungabúinu.
Víkurfréttir eru 44 ára í dag Víkurfréttir eiga afmæli í dag, 14. ágúst. Fyrsta tölublað Víkurfrétta kom út á þessum degi árið 1980. Á þessum tíma lætur nærri að 2.200 tölublöð hafi komið út. Víkurfréttir eru aðgengilegar frá fyrsta tölublaði á timarit.is. Þar geta áhugasamir grúskað í sögunni og sett sig inn í tíðarandann á þessum 44 árum sem liðin eru frá fyrsta tölublaði.
Geitungabúið er mikil listasmíði. VF/pket
Geitungabú á körfubolta „Geitungabúin eru oft á ýmsum stöðum en að velja körfubolta er líklega það skrýtnasta sem ég hef séð,“ segir Ragnar Guðleifsson, meindýraeyðir þegar hann sýndi blaðamanni geitungabú sem var fast ofan á körfubolta sem hafði verið úti í garði á heimili í Reykjanesbæ. Ragnar hló þegar hann var spurður hvort þetta hafi verið körfuboltageitungar en það sé kannski ekki skrýtið í ljósi vinsældar íþróttarinnar á Suðurnesjum. Sjá mátti nokkur bú í bíl
Elín sér um að upptökur frá Ólympíuleikunum gangi fullkomlega upp
Sjá viðtal í miðopnu!
Ragnars sem hann hafði eytt síðustu daga en meindýraeyðirinn mætir vopnaður sérstöku eitri í brúsa sem hann spreyjar yfir búið. Þegar hann er búinn að því er búið dautt innan tuttugu sekúndna. Á veraldarvefnum kemur fram að geitungar séu félagsskordýr. Þeir byggja bú úr pappírskvoðu sem þeir fá með því að naga timbur. Í hverju geitungabúi er ein drottning og mörg hundruð vinnugeitungar. Drottningin verpir eggjum í sérstök hólf. Úr eggjunum þroskast
lirfur sem síðan verða að púpum. Úr púpunum skríða aðeins vinnugeitungar yfir sumartímann. Vinnugeitungar annast lirfur og viðhalda búinu. Yfir vetrartímann liggja geitungadrottningar í dvala. Hér á landi fara þær yfirleitt aftur á kreik seinnihlutann í maí og leggja þá drög að byggingu bús á hentugum stað. Geitungabúið er síðan „lifandi“ oftast vel inn í ágúst og september en þá afleggur drottningin búið og íbúar þess flosna upp frá því. Á haustin verða til nýjar drottningar sem lifa af veturinn.
Fjölskyldudagar haldnir í Vogum Fjölskyldudagar Sveitarfélagsins Voga eru haldnir frá fimmtudegi til sunnudags en þeir eru ávallt haldnir þriðju helgina í ágúst ár hvert. Þar er boðið upp á fjölbreytta dagskrá fyrir alla fjölskylduna og aðgangur að öllum viðburðum hátíðarinnar er ókeypis. Hátíðin hefst á fimmtudag með tónleikum í Háabjalla. Aðalhátíðisdagurinn er svo á laugardag þar sem fer fram fjölbreytt dagskrá í Aragerði. Nánar má sjá um fjölskyldudagana á vef Víkurfrétta, vf.is
Fjölbreytileikanum fagnað á Suðurnesjum
Gangbraut fjölbreytileikans var máluð við ráðhús Reykjanesbæjar við Tjarnargötu í síðustu viku. Gangbrautin var fyrst máluð á þessum stað árið 2021. Það voru ungmenni frá Vinnuskóla Reykjanesbæjar sem sáu um málningarvinnuna og nutu aðstoðar bæjarfulltrúanna Halldóru Fríðu Þorvaldsdóttur og Guðnýjar Birnu Guðmundsdóttur. Í Suðurnesjabæ var risastór regnbogafáni málaður á götuna við Vörðuna í Sandgerði. Þar naut Magnús Stefánsson bæjarsjóri aðstoðar annars starfsfólks bæjarins við málningarvinnuna. VF/Hilmar Bragi
16 SÍÐUR Í ÞESSARI VIKU • STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM