Miðvikudagur 3. júlí 2024 // 27. tbl. // 45. árg.
Skessan vakti athygli hjá skipagestum n Skemmtiferðaskip með 600 farþega stoppaði í einn dag í Reykjanesbæ. n „Vonandi upphafið að einhverju meiru,“ segir hafnarstjóri „Þetta gekk alveg ljómandi vel en auðvitað eru alltaf einhverjir smá hnökrar eða lærdómur sem maður þarf að taka inn þegar verið er að byrja á einhverju. Það helsta sem talað var um að vantaði var meiri upplýsingagjöf fyrir farþega skipsins þegar þeir komu í land. Við munum bæta það áður en næsta skip kemur,“ sagði Halldór Karl Hermannsson, hafnarstjóri Reykjaneshafnar en síðasta laugardag kom snemma að morgni skemmtiferðaskipið Azamara Quest með um 600 farþega sem lang flestir fór í land í Keflavíkurhöfn. Farþegarnir voru ferjaðir í land með léttabátum frá skipinu sem lagði skammt frá Keflavíkurhöfn. Um þriðjungur þeirra fóru í skipulagðar ferðir um svæðið en aðrir fóru sjálfir um bæinn, tóku leigubíla eða gengu og einhverjir fengu sér bílaleigubíl til að fara á um svæðið að sögn Halldórs. Reykjaneshöfn í samvinnu við Markaðsstofu Reykjaness hefur frá árinu 2017 unnið markaðsvinnu í þeim tilgangi að fá minni skemmtiferðaskip til Reykjanesbæjar. Halldór segir að gestirnir hafi verið mjög ánægðir, m.a. hópur sem fór í skipulagða skoðunar- og fræðsluferð undir leiðsögn heimamanneskju eftir strandlengjunni í Keflavík og endaði við Skessuhelli í smábátahöfninni. „Það voru margir
hrifnir af skessunni, einni af fornsögulegum íbúum landsins og einhverjir höfðu á orði að hún þyrfti að leita læknishjálpar vegna vindgangs,“ segir Halldór og svarar því til að það sé margt sem útlendingar hafi áhuga á að skoða þegar þeir koma, t.d. gamli bærinn, húsin, sagan og fleira. Aðilar í verslun og þjónustu og ferðaþjónustu á svæðinu fengu sent fréttabréf áður en skipið kom með upplýsingum um komu þessara farþega. „Við sáum allnokkra gesti með poka með varningi í og við vitum að gestirnir fóru víða um bæinn og nýttu sér þjónustu og veitingastaði. Skipið er búið að bóka heimsókn aftur á næsta ári og svo þurfum við að vinna áfram í markaðsmálum. Það myndi skipta
svæðið talsverðu máli að fá fimm til sex skipaheimsóknir á ári. Það myndi skapa helling án þess að yfirkeyra eitthvað. Þetta er vonandi upphafið að einhverju meiru,“ sagði hafnarstjórinn. Farþegar á skipinu voru frá unga aldri upp í eldri borgara og allt þar á milli en þeir komu frá þrjátíu þjóðlöndum. Skipið er í Íslandsferð og kom frá Grundarfirði til Keflavíkur en kom fyrst til Seyðisfjarðar.
Farþegar komu í land með léttabátum og veðurguðirnir brostu sínu blíðasta. VF/Hilmar Bragi
16 SÍÐUR Í ÞESSARI VIKU • STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM