Miðvikudagur 5. júlí 2023 // 27. tbl. // 44. árg.
Skipslúðrar þeyttir til heiðurs Ásgeiri
Forseti Íslands um borð í safnskipinu Óðni
LAND TEKIÐ AÐ RÍSA Á NÝ Land hefur risið á Reykja n e s s k a ga u m 2,5 sentimetra frá því í apríl. Bened ikt Gunna r Ófeigss on, sérfræðingur á sviði jarðskorpu hreyfinga hjá Veðurs tofu Ís lands, segir í samtali við mbl.is að landrisið sé ekki hratt en það sé víðáttumikið og sjáist um allan Reykjanesskagann. Líklega þýðir þetta að það er kvika að safnast fyrir á svipuðum slóðum og var og hefur verið síð ustu ár. Miðjan á þessu er undir Fagradalsf jalli, á slóðunum undir gosstöðvunum sem gusu 2021 og 2022. „Það þarf alla vega að gera ráð fyrir að þetta haldi áfram og endi með öðru gosi, það er einn mögu leiki sem er ekkert ólíklegur, en tímaskalinn er mjög óljós. Það geta verið mánuðir eða ár,“ segir Benedikt. Magnús Tumi Guðmundsson, prófessor í jarðeðlisfræði við Há skóla Íslands, segir í samtali við Víkurfréttir að enn sem komið eru þetta litlar hreyfingar en mjög at hyglisverðar samt.
Hægt að fara í fyrirsjáanlega uppbyggingu „Við fögnum þessum áfanga að sjálfsögðu því samningurinn tryggir afhendingaröryggi svæð isins en stuðlar jafnframt að því að hægt verður að fara í fyrir sjáanlega atvinnuuppbyggingu á svæðinu,“ segir Tómas Már Sigurðsson, forstjóri HS Orku, um samkomulag Landsnets og Sveitarfélagsins Voga um Suður nesjalínur. „Suðurnesin eru ört vaxandi at vinnusvæði þar sem tækifærin í grænni atvinnuuppbyggingu eru fjölmörg. Við sjáum það best í þeirri uppbyggingu sem á sér stað í Auðlindagarðinum hjá okkur í HS Orku sem og hjá öðrum viðskipta vinum á svæðinu,“ sagði Tómas jafnframt. Nánar er fjallað um samkomulagið á síðu 2 í blaðinu.
S
afnskipið Óðinn þeytti skipslúðra sína skammt undan landi neðan við Útskála í Garði á sunnudagskvöld. Óðinn var á leið sinni frá Reykjavík til Vestmannaeyja þar sem skipið var til sýnis í tilefni af goslokahátíð, en 50 ár eru liðin frá lokum eldgossins í Heimaey. Ástæða þess að skipslúðrarnir voru þeyttir fyrir utan Garðinn var til að heiðra Ásgeir Magnús Hjálmarsson sem nýlega varð áttræður. Ásgeir er mikill safnamaður og er frumkvöðull að stofnun Byggðasafnsins á Garðskaga, auk þess að hafa komið upp sínu einkasafni í Garðinum. Tveir Garðmenn, þeir Ásgeir og Hilmar Bragi Bárðarson, blaðamaður Víkur-
frétta, voru á dögunum sérstakir gestir um borð í Óðni þegar áhöfnin hélt æfingu á Faxaflóa fyrir Vestmannaeyjaförina. Safnskipsmenn á Óðni vildu þar þakka þeim sitt framlag til safnamála. Ásgeir hefur m.a. safnað sjóminjum og Hilmar Bragi vann síðasta vetur að heimildamynd um björgunarafrek sem unnið var á Óðni fyrir aldarfjórðungi síðan í hafinu suður og vestur af Íslandi. Þess má til gamans geta að Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, var farþegi um borð í Óðni á sunnudagskvöld og fór með skipinu til Eyja. Ljósmyndirnar tók Hilmar Bragi af varðskipinu sem var prýtt forsetafánanum þegar það sigldi framhjá Garðinum. Á innfelldu myndinni er Ásgeir um borð í Óðni á dögunum.
n Bæjarstjórinn segir Suðurnesjabæ hliðsettan í nýrri þróunaráætlun K64
Bara gróðursett á mjög verðmætu svæði við flugstöðina? Magnús Stefánsson, bæjarstjóri í Suðurnesjabæ, segir þróun aráætlunina K64, um nærsvæði Keflavíkurflugvallar, ekki vera eins og væntingar Suðurnesja bæjar stóðu til. Í viðtali við Vík urfréttir í dag berst talið m.a. að Bergvík og svæðinu við Rósa selstorg, sem eru innan sveitar félagamarka Suðurnesjabæjar.
udagur MiðTvik L E GR Ó J L I F
19 . JÚLÍ
VÍKURFRÉTTIR KOMA Corny súkkulaði K NÆST 50 grN O S ÚT MIÐVIKUDAGINN I TUR N
19. JÚLÍ
„Við þurftum að berjast fyrir því að fá alla þessa ráðgjafa til að átta sig á því hvaða mögu leikar eru í Bergvík, þá var það tekið inn í pakkann en að öðru leyti er ekki mikið í þessari þró unaráætlun sem á beint við um Suðurnesjabæ. Talandi um K64 þá hef ég ekki verið feiminn að segja það að Suðurnesjabær er alveg hliðsettur í því plani. Ráð gjafarnir hafa horft á svæðið frá
Aðaltorgi og í áttina að Reykjavík. Fyrirfram stóð maður í þeirri trú að það væri mjög verðmætt svæði til uppbyggingar frá Rósasel storgi og upp að flugstöð, en þeir horfa alveg framhjá því. Þeirra hugmyndir voru meðal annars að gróðursetja tré samkvæmt planinu.“ Ítarlegt viðtal er við Magnús í miðopnu Víkurfrétta í þessari viku.
Á leiðinni í draumaskólann í Ameríku Síða 13
Vill bæta upplifun kylfinga í Leirunni
Síða 14
FLJÓTLEGRI KOSTURINN Mexíkóskt þema í kvöld?
Opnunartími Hringbraut: Allan sólarhringinn Opnunartími Tjarnabraut: 08.00 - 23.30 Virka daga 09.00 - 23.30 Helgar
16 SÍÐUR Í ÞESSARI VIKU • STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM