Í gleðinni erum við tilbúin í allskonar SJÁ VIÐTAL Í MIÐOPNU
27.–30. júní
Miðbærinn fyllist af ferðamönnum Miðvikudagur 26. júní 2024 // 26. tbl. // 45. árg.
DREIFT Á SUÐURNESJUM OG Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU • ÓKEYPIS EINTAK
Húsfyllir hjá Hallgrími Það var þétt setinn kirkjubekkurinn í Hvalsneskirkju síðasta sunnudag. Þar fór fram sumarmessa sem helguð var minningu sr Hallgríms Péturssonar, sem þjónaði á Hvalsnesi á árunum 1644–1651. Í haust verða liðin 350 ár frá andláti hans. Félag fyrrum þjónandi presta annaðist sumarmessuna í Hvalsneskirkju en myndin var tekin að lokinni athöfn. Kirkjugestum var öllum boðið í kaffi og konfekt að lokinni messu í gamla Hvalsnesbænum. Þar verður opnað veitingaog kaffihús í lok júlí. VF/PÁLL KETILSSON
Von er á skemmtiferðaskipi til Reykjanesbæjar á laugardag með um 700 farþega. Þriðjungur þess hóps, rúmlega 200 farþegar, er á leiðinni í skipulagðar hópferðir með fólksflutningabílum frá Keflavíkurhöfn. Þá er gert ráð fyrir að allt að 400 farþegar af skipinu spásseri um í miðbæ Reykjanesbæjar og reyni að finna sér afþreyingu, kíki í verslanir og á veitingastaði. Halldór Karl Hermannsson, hafnarstjóri Reykjaneshafnar, segist í viðtali við Víkurfréttir í dag vonast til þess að fólk í þjónustu í sveitarfélaginu taki vel á móti þessum stóra hópi fólks sem verður í bænum í hálfan sólarhring. Það geta verið fín uppgrip í stórum hópi farþega skemmtiferðaskipa, sem oft verja talsverðum fjárhæðum í hverri höfn. Sjá nánar um komu skemmtiferðaskipsins á síðu 2 í blaðinu í dag.
Skemmtiferðaskip við Keflavík í ágúst 2021.
Kynna stuðningsaðgerðir fyrir grindvíska atvinnurekendur
Rífa Hópið og tugi annarra eigna í Grindavík Bæjarstjórn Grindavíkur hefur heimilað sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs að hefja undirbúningsvinnu við niðurrif á Hópinu, knattspyrnuhúsi Grindavíkur. Hópið er eitt af yfir sextíu húsum í Grindavík sem þarf meira og minna að rífa. Ástand húseigna Grindavíkurbæjar eftir náttúruhamfarir var tekið fyrir á síðasta fundi bæjarstjórnar. Forgangsraða á verkefnum og kostnaðarmeta og leggja fyrir bæjarstjórn. Að minnsta kosti 64 altjón hafa verið skráð hjá Náttúruhamfaratryggingu Íslands, að því er greint var frá á ruv.is á dögunum. Á meðal þessara eigna eru Hópið. Dvalar- og hjúkr-
unarheimilið Víðihlíð er mikið skemmt að hluta. Þá var sagt frá því að nýleg viðbygging við Hópskóla, þar sem kennsla 1. til 4. bekkjar hefur farið fram, væri skemmd og þurfi jafnvel að rífa. Fjölmargar húseignir við Víkurbraut austanverða hafa orðið fyrir altjóni og eignir í Hópshverfinu. Einnig eignir í iðnaðarhverfi austan Grindavíkurhafnar. Flestar skemmdu eignirnar standa í jöðrum þeirra tveggja sigdala sem mynduðust eftir hamfarirnar í nóvember 2023 og eftir eldgosið í janúar 2024. Vonast er til að niðurrif eigna geti hafist síðar í sumar. Ekki er heimilt að byggja aftur á þeim lóðum þar sem eignir víkja.
Hópið og Hópsskóli í Grindavík. Sprunga opnaðist í vetur í gegnum Hópið. Það hefur verið dæmt ónýtt. Þá eru skemmdir á nýrri viðbyggingu við Hópsskóla.
Grindavíkurbær, í samvinnu við fjármála- og efnahagsráðuneyti og Skattinn, mun halda kynningu fyrir rekstraraðila í Grindavík þar sem stuðningsaðgerðir ríkisins til fyrirtækja í bænum eru kynntar. Kynningin verður haldin fimmtudaginn 27. júní kl. 13 og fer eingöngu fram á Teams. Farið verður yf ir stuðningsúrræði sem eru í boði fyrir fyrirtæki í Grindavík vegna afleiðinga náttúruhamfara, þá sérstaklega þær breytingar sem gerðar hafa verið nú með nýsamþykktum lögum. Þeir sem vilja taka þátt sendi tölvupóst með þeirri beiðni á atvinnulif@grindavik.is.
V I Ð S Ý N U M A L L A R E I G N I R, F Á Ð U T I L B O Ð Í F E R L I Ð.
DÍSA
ÁSTA MARÍA
HELGA
ELÍNBORG ÓSK
UNNUR SVAVA
ELÍN
HAUKUR
SIGURJÓN
PÁLL
D I S A@A L LT.I S 560-5510
A S TA@A L LT.I S 560-5507
H E LG A@A L LT.I S 560-5523
E L I N B O RG@A L LT.I S 560-5509
U N N U R@A L LT.I S 560-5506
E L I N@A L LT.I S 560-5521
H A U K U R@A L LT.I S 560-5525
S I G U R J O N@A L LT.I S 560-5524
PA L L@A L LT.I S 560-5501
16 SÍÐUR Í ÞESSARI VIKU • STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM