Skip to main content

Víkurfréttir 25. tbl. 45. árg.

Page 1

14 Fimmtudagur 20. júní 2024 // 25. tbl. // 45. árg.

DREIFT Á SUÐURNESJUM OG Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU • ÓKEYPIS EINTAK

Finnst æðislegt að keppa á mótum

n Fundu rúmlega 70 gráðu heitt vatn á Miðnesheiði:

Frostfrí Suðurnes með lághita úr Rockville

Borun eftir lághita við Rockville á Miðnesheiði hefur skilað góðum árangri. Þar streymir nú upp vatn sem er yfir 70 gráðu heitt. Auður Agla Óladóttir, jarðfræðingur hjá ÍSOR, segir holuna sem var boruð við Rockville vera mjög vel heppnaða.

Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri og Friðrik Georgsson við stuðlabergið þar sem nafn Friðriks hefur nú verið skráð í hóp þeirra sem dregið hafa þjóðfánann að húni á 17. júní. VF/Hilmar Bragi

Friðrik dró fánann að húni í Reykjanesbæ Það kom í hlut Friðriks Georgssonar, rafvélavirkjameistara, að draga þjóðhátíðarfánann að húni í skrúðgarðinum í Keflavík á þjóðhátíðardaginn á 80 ára afmæli lýðveldisins. Friðrik er áttræður á þessu ári og því jafnaldri lýðveldisins Íslands. Eftir að Friðrik hafði dregið fánann að húni með aðstoð skáta úr skátafélaginu Heiðabúum fór hann að stuðlaberginu í skrúðgarðinum og afhjúpaði þar nafn sitt á steininum. Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri, flutti honum svo þakkarorð. n Fleiri myndir frá 17. júní á síðu 11

Friðrik Georgsson dregur þjóðfánann að húni í skrúðgarðinum í Keflavík á 17. júní.

Þurfum að byrja strax á næsta verkefni n Guðný Birna, forseti bæjarstjórnar, í viðtali í miðopnu

Í vetur var ráðist í neyðarverkefni á vegum Almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra. Lagt var upp með að bora þrjár djúpar tilraunaholur í leit að lághita og koma upp vara hitaveitu ef röskun verður á starfsemi hitaveitunnar í Svartsengi vegna eldsumbrota. Að borunum standa HS Orka, Ísor og Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra. Holurnar eru svo boraðar í samstarfi Jarðborana og Ræktunarsambands Flóa og Skeiða. Í vetur var boruð hola á Njarðvíkurheiði, nálægt Stapafellsvegi. Hún er að gefa um 30 sekúndulítra af um 40 gráðu heitu vatni. Í byrjun sumars var svo ráðist í borun á Miðnesheiði við Rockville. „Það er mjög vel heppnuð hola. Hún er að gefa um 30 sekúndulítra af yfir 70 gráðu heitu vatni. Ef holan er notuð til skamms tíma má ná mun meira magni úr henni á sekúndu,“ segir Auður Agla í samtali við Víkurfréttir. Holan við Rockville gjörbreytir stöðunni í heitavatnsmálum á Suðurnesjum til betri vegar. Vatnið er salt og verður notað til að hita upp kalt ferskvatn. Að sögn Auðar

Jarðborinn að störfum í byrjun mánaðarins. VF/Hilmar Bragi

Öglu mun það magn sem fæst úr holunni við Rockville nýtast til að halda húsum á Suðurnesjum frostfríum komi upp svipuð staða og í vetur þegar Njarðvíkuræðin brast undan hraunstraumi. Nú á eftir að bora eina tilraunaholu til viðbótar við Vogshól áður en framhaldið verður ákveðið. Möguleikar eru á að bora fleiri holur við Rockville og ná upp meira magni af heitu vatni þar. Það er hins vegar verkefni framtíðarinnar og er utan þess neyðarverkefnis sem almannavarnir réðust í á svæðinu.

Borteigurinn í Rockville. Í baksýn sést til Reykjanesbæjar og til fjallanna við Grindavík þar sem nú gýs. VF/Hilmar Bragi

16 SÍÐUR Í ÞESSARI VIKU • STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Víkurfréttir 25. tbl. 45. árg. by Víkurfréttir ehf - Issuu