Miðvikudagur 5. júní 2024 // 23. tbl. // 45. árg.
DREIFT Á SUÐURNESJUM OG Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU • ÓKEYPIS EINTAK
Samkomulag hefur verið undirritað af Suðurnesjabæ og Skólum ehf. varðandi samningslok um rekstur leikskólans Sólborgar í Sandgerði. Samkomulagið var staðfest á fundi bæjarráðs Suðurnesjabæjar miðvikudaginn 29. maí. Í samkomulaginu felst að Suðurnesjabær mun taka yfir rekstur leikskólans eigi síðar en 30. júní 2024 og áhersla er lögð á vinna yfirfærsluna í góðu samstarfi við starfsfólk, börn og foreldra. Fundir voru haldnir með starfsfólki leikskólans og foreldrum barna í síðustu viku. „ Áhersla Suðurnesjabæjar er að tryggja gott faglegt starf leikskólans í samstarfi við öflugt starfsfólk, foreldra og börn. Framundan er vinna við að leysa úr húsnæðismálum leikskólans fram að sumarfríi með það fyrir leiðarljósi að starfsaðstæður og öryggi allra sé uppfyllt. Að loknu sumarfríi mun öll starfsemi leikskólans vera í nýju húsnæði að Grænuborg við Byggðaveg,“ segir í tilkynningu frá Suðurnesjabæ.
Gosmökkur í ýmsum litum Sprengivirkni hófst í gosinu við Grindavík þegar kvikan komst í snertingu við grunnvatn þar sem hraunstraumur fór ofan í sprungu til móts við Hagafell. Þá snögghitnar vatnið og framkallar gufusprengingar og gjóskufall. Á myndum með fréttinni má sjá hvernig dökkur reykur frá sprengingunum reis hátt til himins en um tíma var gosmökkurinn í ýmsum litum. VF/Hilmar Bragi
Gosin fara stækkandi og engin merki um að dragi úr innrennsli kviku að neðan „Gosin fara heldur stækkandi og það má skýra með því að nú er sáralítil gliðnun sem tengist gosunum. Því þarf að byggjast upp meiri þrýstingur nú en í upphafi. Þess vegna verða gosin stærri. Sprengivirknin sem við höfum séð telst minni háttar og stafaði af því að hraunið fossaði ofan í sprungu sem opnaðist og komst þar í snertingu við grunnvatnið,
Suðurnesjabær tekur aftur við rekstri Sólborgar
þá er algengt að af stað fari öflug sprengivirkni þar sem hvellsuða vatnsins tætir kvikuna í sundur. En það er engin ástæða til að ætla að við fáum raunveruleg sprengigos á þessum sprungum. Það gæti gerst ef gýs í sjó, eins og má búast við þegar gýs við Reykjanes, hvenær sem það verður. Miðað við söguna er líklegra að það gerist eftir nokkra
áratugi eða jafnvel aldir,“ segir Magnús Tumi Guðmundsson, prófessor í jarðeðlisfræði við Háskóla Íslands. Hann segir í samtali við Víkurfréttir að eldsumbrotin við Grindavík séu svipuð því sem sást í Kröflueldum, bara á öðrum tímaskala. Engin merki hafa komið fram sem benda til þess að það dragi úr innrennsli kviku að neðan.
Meðan svo er, er ekkert hægt að segja til um hve lengi þessi virkni mun standa. „Gosvirkninni sem nú er búin að vera í gangi gæti hætt í sumar, en hún gæti líka staðið í ár í viðbót. Við höfum einfaldlega ekkert í höndunum til að segja fyrir um lokin á þessum atburðum.“ Sjá nánar í viðtali á síðu 18 í blaðinu í dag.
Gervigrasið í Sandgerði Bæjarráð Suðurnesjabæjar leggur til við bæjarstjórn að gervigrasvöllur í Suðurnesjabæ fyrir bæði lið sveitarfélagsins verði reyst á aðalvellinum í Sandgerði. Allir nauðsynlegir innviðir eru til staðar á aðalvellinum í Sandgerði eins og til dæmis 340 manna stúka, salernisaðstaða fyrir áhorfendur, vélageymsla og plássgott félagsheimili.
Minningarathöfn um drukknaða sjómenn
– Sjá síður 16–17
6.–9. júní
24 SÍÐUR Í ÞESSARI VIKU • STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM