Miðvikudagur 7. júní 2023 // 23. tbl. // 44. árg.
Falla frá fyrirhugaðri launahækkun bæjarfulltrúa Bæjarráðsfulltrúar í Reykjanesbæ samþykktu samhljóða á fundi bæjarráðs 1. júní að falla frá fyrirhuguðum launahækkunum samfara hækkun þingfararkaups. Samkvæmt samningum ættu laun bæjarfulltrúa Reykjanesbæjar að hækka í samræmi við þingfararkaup í júlí nk. Launin eru hlutfall af launum þingmanna og eru hlutastörf.
Frá formlegri opnun hraðhleðslugarðsins, f.v. Tómas Sigurðsson, forstjóri HS Orku, Adrian Pike, stjórnarformaður InstaVolt og stjórnarformaður HS Orku, Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku og loftslagsráðherra, Ingvar Eyfjörð, framkvæmdastjóri Aðaltorgs, og Heike Bergmann, stjórnarmaður í HS Orku. VF/Páll Ketilsson
Stærsti hraðhleðslugarður landsins opnaður við Aðaltorg
n 20 hraðhleðslustöðvar. Öflugasta hraðhleðslufyrirtæki Bretlands í samvinnu við HS Orku.
InstaVolt, öflugasta hraðhleðslufyrirtæki Bretlands hefur opnað stærsta hraðhleðslugarð landsins við Aðaltorg í Reykjanesbæ. Alls hafa verið settar upp tuttugu hleðslustöðvar við Aðaltorg og eru þær knúnar af HS Orku, sem er samstarfsaðili InstaVolt í verkefninu, en HS Orka er þriðji stærsti orkuframleiðandi landsins. Gert er ráð fyrir 200 nýjum InstaVolt hleðslustöðvum víðs vegar um land á næstu tveimur árum. Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku og loftslagsráðherra, var við opnunina, 6. júní. „Íslandi hefur tekist vel til í orkuskiptum í samgöngum á landi og er í öðru sæti á eftir Noregi í sölu á rafbílum og tengil tvinnbílum. Eigi Ísland að ná markmiðum ríkisstjórn-
arinnar um full orkuskipti fyrir árið 2040 verðum við að hraða orkuskiptunum. Fjölgun hraðhleðslustöðva ætti að auðvelda okkur að ná þeim markmiðum okkar,“ sagði ráðherra. Tómas Már Sigurðsson, forstjóri HS Orku, sagði af sama tilefni: „Við vildum tryggja okkur samstarfsaðila með langa og farsæla reynslu af hraðhleðslumöguleikum og því varð InstaVolt fyrir valinu. Við fögnum komu þeirra á íslenska markaðinn og hlökkum til að taka þátt í enn frekari innviðauppbyggingu með fyrirtækinu vítt og breytt um landið.“ Ingvar Eyfjörð, framkvæmdastjóri Aðaltorgs, sagði að með þessu skrefi hefðu Suðurnesin farið úr neðsta sæti í efsta sætið hvað varðar þjónustu við rafbílaeigendur.
SJÓMANNADAGURINN Í MÁLI OG MYNDUM – sjá síður 6 og 12 í blaðinu í dag
Brynja byggir sjö íbúðir í Reykjanesbæ Bæjarráð Reykjanesbæjar hefur samþykkt að veita 12% stofnframlag vegna verkefnis Brynju leigufélags ses. um byggingu á sjö íbúðum í Reykjanesbæ. Stofnvirðið er 335,1 milljón króna og er stofnframlag sveitarfélags því 40,2 milljónir króna.
8.–11. júní
16 SÍÐUR Í ÞESSARI VIKU • STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM