Sjómannslíf
Stríðsástand við flugstöðina Viðtal við talsmann A-stöðvarinnar á síðum 12–13
Stútfullt blað af sjómannadagsviðtölum
Miðvikudagur 29. maí 2024 // 22. tbl. // 45. árg.
DREIFT Á SUÐURNESJUM OG Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU • ÓKEYPIS EINTAK
Þórkatla tekur við 200 fasteignum í Grindavík í maí
Íslandsmeistarar!
Keflavík varð Íslandsmeistari kvenna í körfubolta eftir sigur á Njarðvík í úrslitum Subway-deildarinnar. Fögnuður stúlknanna var mikill eins og sjá má á mynd Jóhanns Páls. Nánar inni í blaðinu.
Fjárfestingar í nýjum innviðum fyrir 50 til 60 milljarða króna n Drögum að samþykkt um gjaldtöku innviða- og byggingarréttargjalds í Reykjanesbæ vísað til seinni umræðu bæjarstórnar Bæjarráð Reykjanesbæjar telur að ef fram heldur sem horfir, og íbúafjölgun í Reykjanesbæ verður jafn ör næsta áratuginn og þann síðasta, megi gera ráð fyrir að fjárfestingar í nýjum innviðum s.s. leik- og grunnskólum, íþróttamannvirkjum,
menningarhúsum, margvíslegum úrræðum á vegum félagsþjónustunnar o.fl. muni nema 50-60 milljörðum til ársins 2035. „Það er alveg ljóst að þrátt fyrir að rekstur sveitarfélagsins gangi smám saman betur mun veltufé frá rekstri úr grunnstarfsemi A-hluta
bæjarsjóðs ekki duga til að standa straum af slíkum fjárfestingum. Þá mun frekari lántaka og skuldsetning heldur ekki vera æskileg,“ segir í afgreiðslu bæjarráðs. Bæjarráð hefur samþykkt drög að samþykkt um gjaldtöku innviða- og byggingarréttargjalds í
Reykjanesbæ og vísað til fyrri umræðu í bæjarstjórn. Fyrri umræðan fór fram í bæjarstjórn Reykjanesbæjar í þessari viku. Þar var málinu fylgt úr hlaði og vísað til seinni umræðu bæjarstjórnar 4. júní nk.
Fulltrúar Þórkötlu fasteignafélags eru nú í óða önn að taka við eignum í Grindavík af seljendum þeirra. Afhendingin fer fram á sérstökum skilafundum. Þórkatla tók á móti um 30 eignum í síðustu viku og áætlað er að taka við 170 til viðbótar í þessari viku. „Stór hluti eignanna er í góðu ástandi. Það er töluvert um nýleg vel byggð hús í Grindavík sem sloppið hafa vel frá hamförunum hingað til. Svo eru vissulega hús inn á milli sem þarfnast lagfæringa og einhver hús sem eru mjög illa farin og eiga sér litla framtíð. Við munum þurfa að vinna þétt með Náttúruhamfaratryggingu Íslands við að skoða tryggingarstöðu Þórkötlu vegna þeirra eigna sem eru illa farnar,“ segir Örn Viðar Skúlason, framkvæmdastjóri Þórkötlu. Útlit er fyrir að heildarfjárfesting Þórkötlu í húsnæði í Grindavík verði allt að 75 milljarður í heildina eða um 14 milljörðum króna meiri en áætlað var við setningu laganna um úrræðið. Aukinn kostnaður skýrist að mestu af hækkun brunabótamats á eignum í bænum.
KVIKUSÖFNUN HELDUR ÁFRAM
Kvikusöfnun heldur áfram undir Svartsengi og gæti kvikuhlaup og eldgos hafist með skömmum fyrirvara. Merki um nýtt kvikuhlaup væru líkt og áður, staðbundin smáskjálftahrina í og við kvikuganginn, hröðun í aflögun og þrýstingsbreytingar í borholum á svæðinu.
V I Ð S Ý N U M A L L A R E I G N I R, F Á Ð U T I L B O Ð Í F E R L I Ð.
DÍSA
ÁSTA MARÍA
HELGA
ELÍNBORG ÓSK
UNNUR SVAVA
ELÍN
HAUKUR
SIGURJÓN
PÁLL
D I S A@A L LT.I S 560-5510
A S TA@A L LT.I S 560-5507
H E LG A@A L LT.I S 560-5523
E L I N B O RG@A L LT.I S 560-5509
U N N U R@A L LT.I S 560-5506
E L I N@A L LT.I S 560-5521
H A U K U R@A L LT.I S 560-5525
S I G U R J O N@A L LT.I S 560-5524
PA L L@A L LT.I S 560-5501
32 SÍÐUR Í ÞESSARI VIKU • STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM