Skip to main content

Víkurfréttir 21. tbl. 45. árg.

Page 1

Fimmtudagur 23. maí 2024 // 21. tbl. // 45. árg.

Flugumferð gæti farið yfir byggð í Reykjanesbæ – vegna framkvæmda við akbraut á Keflavíkurflugvelli í sumar

Heiðarskóli og hluti Heiðarhverfisins í Keflavík. Barnafólki er að fjölga í hverfinu og 460 börn eru skráð til skólavistar í Heiðarskóla í haust. Þau voru 407 síðasta haust. VF/HBB

Íbúum Voga fjölgað um 22% og börnum fjölgar í Heiðarhverfi Íbúum með skráð lögheimili í Sveitarfélaginu Vogum fjölgaði um 12,2% á árinu 2023 og voru þeir 1.500 talsins í árslok. Frá síðustu áramótum hefur íbúum með skráð lögheimili fjölgað um tæp 9% en að meðtöldum þeim íbúum sem hafa skráð aðsetur í Vogum en lögheimili í Grindavík nemur fjölgunin um 22% frá síðustu áramótum. Í heild eru íbúar í Vogum nú um 1.830 talsins en samkvæmt mannfjöldatölum Hagstofu Íslands voru íbúar í sveitarfélaginu 1.337 talsins í ársbyrjun síðasta árs. Íbúar Suðurnesja voru um síðustu mánaðamót 32.599 talsins og hafði fækkað um fjórtán einstaklinga frá 1. desember 2023. Það að íbúum

Suðurnesja fjölgi ekki á tímabilinu má rekja til þess að Íbúum Grindavíkurbæjar fækkar um 266 á þessu tímabili eða um 7,2%. Í

Reykjanesbæ hefur fjölgað um 161 einstakling frá því í desember og í Suðurnesjabæ um 34. Í tölum fyrir Reykjanesbæ og Suðurnesjabæ er ekki gert ráð fyrir þeim Grindvíkingum sem mögulega eru sestir þar að en eru með lögheimili skráð ennþá í Grindavík. Í viðtali við Lóu Björg Gestsdóttur, skólastjóra Heiðarskóla í Keflavík, í Víkurfréttum í dag kemur fram að í skólahverfi Heiðarskóla er barnafólki að fjölga

mikið. í Haust eru 460 nemendur skráðir í Heiðarskóla en voru 407 á sama tíma í fyrra. Lóa segir að m.a. séu mörg börn úr Grindavík sem hafa byrjað nám í Heiðarskóla nú eftir áramót og fleiri séu skráð til skólavistar í haust. Þetta er fjölgun um þrjár bekkjardeildir á milli ára og Heiðarskóli, eins og margir aðrir skólar, glímir nú við húsnæðisskort.

Vegna framkvæmda við akbraut Echo-1 á Keflavíkurflugvelli má gera ráð fyrir að aukning verði í flugumferð yfir byggð í Reykjanesbæ í sumar. Framkvæmdir á akbrautinni, sem liggur meðfram flugbraut 01/19, hófust nú í maímánuði. Frá júní og fram í lok ágúst hefjast seinni áfangar þessara framkvæmda sem fela í sér gerð á nýrri stofnlagnaleið meðfram aukbrautinni, endurnýjun á slitlagi, innleiðingu miðlínuljósa, endurnýjun skilta og breikkun á beygju í enda akbrautar. Á framkvæmdatímabilinu gæti því þurft að nota flugbraut 10/28 meira en ella sem mun þýða að flogið verður meira yfir byggð nærri Keflavíkurflugvelli. Öllum mótvægisaðgerðum verður beitt til að koma í veg fyrir það, en ljóst er að einhverja daga gætu íbúar á svæðinu orðið fyrir ónæði vegna flugumferðar. Framkvæmdirnar sem um ræðir skipta miklu máli til að bæta megi flæði og öryggi flugbrautakerfisins á Keflavíkurflugvelli. Íbúum er bent á hljóðmælingakerf ið á vef Isavia þar sem hægt er að koma athugasemdum á framfæri um ónæði vegna flugumferðar.

Stærsti róður lífsins

Arnar Magnússon bjargaði félaga sínum úr sjávarháska úti fyrir Garðskaga. – Sjá síðu 10

23.–26. maí

24 SÍÐUR Í ÞESSARI VIKU • STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Víkurfréttir 21. tbl. 45. árg. by Víkurfréttir ehf - Issuu