Skip to main content

Víkurfréttir 21. tbl. 44. árg.

Page 1

Miðvikudagur 24. maí 2023 // 21. tbl. // 44. árg.

MEÐAL EFNIS

Reykjanesið er ótrúleg náttúruperla Miðopna

Heiðarskóli sigurvegari í Skólahreysti í 5. sinn n Hörð keppni milli tveggja grunnskóla úr Reykjanebæ n Holtaskóli hafnaði í öðru sæti Það voru grunnskólar úr Reykjanesbæ sem höfnuðu í tveimur efstu sætunum í úrslitakeppni Skólahreysti 2023 sem fram fór í Laugardalshöll um síðustu helgi. Heiðarskóli stóð uppi sem sigurvegari með 67 stig af 72 mögu­leg­um og Holtaskóli hafnaði í öðru sæti með 55,5 stig. Þetta er í fimmta sinn sem skólinn tryggir sér 1. sætið í Skólahreysti en þrisvar sinnum hefur skólinn orðið í 2. sæti. Eftir átta keppnir í undanriðlum kepptu tólf skólar til úrslita; Álfhólsskóli, Flóaskóli, Garðaskóli, Heiðarskóli, Holtaskóli, Hvolsskóli, Lágafellsskóli, Laugalækjarskóli, Lundarskóli, Stapaskóli, Vallaskóli og Varmahlíðarskóli. Átta sigurvegarar undanriðlana unnu sér beint rétt í úrslit auk fjögurra uppbótarskóla. Heiðarskóli vann þrjár greinar af fimm; Alísa Myrra varð þriðja í armbeygjum og þriðja í hangi, Guðlaug Emma Erlingsdóttir og Sigurpáll Magni Sigurðsson unnu hraðaþrautina á tímanum 2:09 og þá gerði Jón Ágúst Jónsson sér lítið fyrir og tók 52 upphífingar og 49 dýfur. Það liggur því ljóst fyrir að hraustustu ungmenni landsins koma úr Reykjanesbæ.

Guðmundur djákni af Ströndinni Síða 8

Helga er FKA-kona mánaðarins Síða 16

Jónas Þórhallsson

Síður 21–23

24 SÍÐUR Í ÞESSARI VIKU • STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Víkurfréttir 21. tbl. 44. árg. by Víkurfréttir ehf - Issuu