Skip to main content

Víkurfréttir 19. tbl. 45. árg.

Page 1

Miðvikudagur 8. maí 2024 // 19. tbl. // 45. árg.

DREIFT Á SUÐURNESJUM OG Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU • ÓKEYPIS EINTAK

Grindavík undirbýr fækkun starfsfólks Heldur til í Svartsengi og bíður eftir gosi Bílstjórinn Sigurbjörn Arnar Jónsson á sitt annað heimili í Svartsengi um þessar mundir. Hann stendur neyðarvakt allan sólarhringinn og er með tiltækan strætisvagn til að flytja á brott hótel- og baðgesti Bláa lónsins. Sigurbjörn gistir á Silica hótelinu og hefur síðasta vakt staðið yfir frá því á sumardaginn fyrsta. Víkurfréttir kíktu í heimsókn til kappans og ræddu við hann um starfið en það er mögulega einföldun á starfslýsingunni en Sigurbjörn hefur það starf þessa dagana að bíða eftir eldgosi. Viðtalið er á síðum 11–12 í blaðinu í dag. Viðtalið má einnig sjá í Suðurnesjamagasíni Víkurfrétta á föstudaginn. VF/Hilmar Bragi Bárðarson

Besta rekstrarniðurstaða hjá Reykjanesbæ um langt skeið Ársreikningur Reykjanesbæjar var samþykktur í seinni umræðu á fundi bæjarstjórnar Reykjanesbæjar þriðjudaginn 7. maí. Jákvæð rekstrarniðurstaða A-hluta bæjarsjóðs nam 1.453 milljónum króna en 2.440 milljónum króna í samanteknum ársreikningi. Í tilkynningu frá Reykjanesbæ kemur fram að aukið veltufé frá rekstri var nýtt til nauðsynlegrar innviðauppbyggingar vegna mikillar fjölgunar íbúa síðustu árin og í ýmis viðhaldsverkefni vegna

rakaskemmda. Fjárfestingar námu 4.965 milljónum króna í A-hluta bæjarsjóðs og 7.713 milljónum króna í samanteknum ársreikningi A og B hluta. Áætlun ársins með viðauka gerði ráð fyrir 707 milljónum króna jákvæðri rekstrarniðurstöðu bæjarsjóðs og er þetta því mun betri niðurstaða en gert var ráð fyrir. Munar þar mest um hærri útsvarstekjur en áætlað var enda sé það stefna Reykjanesbæjar að áætla tekjur hóflega.

Horft yfir Reykjanesbæ á fallegum vordegi. VF/Hilmar Bragi Bárðarson

Nú er unnið að margvíslegri uppbyggingu á vegum sveitarfélagsins, m.a. byggingu íþróttahúss og sundlaugar við Stapaskóla auk tveggja tveggja leikskóla sem ráðgert er að taka í notkun síðar á árinu. Þá segir í tilkynningunni að skatttekjur og framlög úr jöfn-

unarsjóði námu 919 þúsund króna á hvern íbúa á árinu 2023 í stað 848 þúsund króna á árinu 2022. Skuldaviðmið A-hluta bæjarsjóðs skv. reglugerð 502/2012 er 87,74% og samstæðu A- og B-hluta 105,96% og hefur lækkað frá árinu 2022.

Í ljósi aðstæðna er Grindavíkurbæ nauðugur einn sá kostur að gera grundvallarbreytingar á sínum rekstri, lækka kostnað og laga starfsmannahald að nýjum veruleika. Þannig sé óumflýjanlegt að fækka starfsfólki, legg ja niður störf og/eða lækka starfshlutfall þvert á stofnanir og þjónustueiningar bæjarins. Þetta kemur fram í tilkynningu frá bæjarstjórn Grindavíkurbæjar, sem hefur falið bæjarstjóra að undurbúa fækkun starfsfólks bæjarins í samráði við hagaðila í samræmi við lög um hópuppsagnir. Launagreiðslur eru langstærsti útgjaldaliður sveitarfélagsins og lætur nærri að launakostnaður sé um 50% af tekjum bæjarins. Það er mat bæjarstjórnar að í ljósi aðstæðna sé Grindavíkurbæ nauðugur einn sá kostur að gera grundvallarbreytingar á sínum rekstri, lækka kostnað og laga starfsmannahald að nýjum veruleika. Þannig sé óumflýjanlegt að fækka starfsfólki, leggja niður störf og/eða lækka starfshlutfall þvert á stofnanir og þjónustueiningar bæjarins. Nánar má lesa um þetta á vef Víkurfrétta, vf.is.

8.–12. maí

16 SÍÐUR Í ÞESSARI VIKU • STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Víkurfréttir 19. tbl. 45. árg. by Víkurfréttir ehf - Issuu