Miðvikudagur 10. maí 2023 // 19. tbl. // 44. árg.
Síða 14
Katla Rún svekkt eftir tímabilið
100 ára Gunnar umvafinn ást
Agnar og ættfræðin
Gunnar Jónsson fagnaði 100 ára afmæli um nýliðna helgi. Hann er einn sex núlifandi Suðurnesjamanna sem eru 100 ára eða eldri og það má fullyrða hér að sú staða hafi ekki komið upp áður hér suður með sjó. Á myndinni að ofan er Gunnar með dætrum sínum í afmælisfagnaðinum sem fram fór á Nesvöllum. Á myndinni eru f.v.: Kolbrún Jenný, Sigríður, Hulda Sigurbjörg, Gunnar, Jóhanna Helga og Lovísa Steinunn. Fleiri myndir úr afmælinu eru í blaðinu í dag. Þá verður sýnt frá afmælinu í Suðurnesjamagasíni Víkurfrétta í næstu viku. VF/pket
Síða 11
n Íþróttahús og sundlaug Stapaskóla í Reykjanesbæ:
Framkvæmdir eru töluvert á eftir áætlun
Framkvæmdir við annan áfanga Stapaskóla, fullbúið íþróttahús með áhorfendasvæði sem tekur 1.100 manns í sæti og 25 metra innilaug ásamt útisvæði með heitum pottum, eru töluvert á eftir áætlun. Reykjanesbær og Íslenskir aðalverktakar undirrituðu samning um verkið í september árið 2021. Fullkláraður mun þessi áfangi kosta rúma 2,4 milljarða króna en tilboð Íslenskra aðalverktaka hljóðaði upp á 92% af kostnaðará ætlun, sagði í frétt um samningana á sínum tíma. Guðlaugur Helgi Sigurjónsson, sviðsstjóri umhverfissviðs Reykja
nesbæjar, segir verkið töluvert á eftir áætlun en að samkvæmt ný uppfærðri verkáætlun verktaka sé stefnt á að taka húsnæðið í notkun í ágúst. „Það verður mjög hæpið en á meðan við höfum ekki annað frá verktakanum þá verðum við að trúa því,“ segir hann. Nú nýverið var íþróttasalnum lokað og þá getur innivinna hafist þar fljótlega. Með byggingu annars áfanga Stapaskóla fær skólinn ekki aðeins vel búna aðstöðu til íþróttakennslu heldur mun byggingin einnig stór bæta aðstöðu til almennrar íþrótta iðkunar og með tengingu við bóka safnið þjóna íbúum bæjarins sem einskonar hverfismiðstöð.
Svona er umhorfs um þessar mundir við Stapaskóla. Myndin vat tekin um síðustu mánaðamót. Búið er að loka íþróttahúsinu en þak er ekki ennþá komið á sundlaugarmannvirkið. VF/Hilmar Bragi
50% appsláttur
11.–14. maí
16 SÍÐUR Í ÞESSARI VIKU • STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM