Skip to main content

Víkurfréttir 17. tbl. 45. árg.

Page 1

Miðvikudagur 24. apríl 2024 // 17. tbl. // 45. árg.

Kjarnorkukafbátur sótti vistir til Keflavíkur

Kafbátar eru ekki algeng sjón uppi í landsteinum við Ísland. Kjarnorkukafbáturinn USS New Hampshire vakti athygli þegar áhöfn hans sótti þjónustu til Reykjanesbæjar í liðinni viku. Kafbáturinn sigldi frá Garðskaga og á ytri höfnina við Keflavík í fylgd varðskipsins Þórs. Á ytri höfninni var kafbáturinn svo þjónustaður af léttabátum en skipt var um hluta áhafnar og teknar vistir. Þetta er fjórða heimsókn kafbáts á undanförnum tólf mánuðum. USS New Hampshire er orrustukafbátur af Virginia-gerð og slíkir kafbátar bera ekki kjarnavopn. Kafbátar þessarar gerðar eru í verkefnum á norðurslóðum og með samningum um þjónustu við Íslandsstrendur er viðbragðstími bátanna styttur verulega. Landhelgisgæsla Íslands leiðir framkvæmd heimsóknarinnar í nánu samstarfi við embætti ríkislögreglustjóra, Geislavarnir ríkisins og utanríkisráðuneytið í samræmi við settar verklagsreglur. Meðfylgjandi mynd var tekin á Stakksfirði og má sjá að kafbáturinn er engin smásmíði.

n Ungmenni í Njarðvík fengu í gegn lokun Reykjanesvegar en Silju Dögg sóknarnefndarformanni er ekki skemmt:

Ríkið styrki Reykjanesbæ í grindvískri barnavernd Barna- og f jölskyldustofa hefur sent frá sér beiðni um að barnaverndarþjónustur í landinu taki við vinnslu barnaverndarmála frá Grindavík vegna aðstæðna þar. Velferðarráð Reykjanesbæjar telur það sjálfsagt að styðja við sveitarfélagið Grindavík í þessum málaflokki eins og öðrum. Velferðarráð telur eðlilegt í framhaldinu að ráða inn ráðgjafa til velferðarsviðs Reykjanesbæjar og að sveitarfélagið leiti til ríkisins um styrk fyrir slíkri ráðningu vegna aukins umfangs mála sem koma til sveitarfélagsins á sama tíma. Vegna hagsmuna umræddra barna og í ljósi álags á velferðarsviðið er eðlilegt að farið verði í auknar mannaráðningar til að tryggja þessum börnum og ungmennum góða þjónustu og koma í veg fyrir aukinn biðlista eftir umræddri þjónustu.

eldgossins Líkbíllinn nær ekki þröngri vinstri beygju Krafur getur aukist verulega og þarf að fara krókaleiðir í kirkjugarðinn Sóknarnefnd Njarðvíkurkirkju telur, í erindi til Reykjanesbæjar, lokun Reykjanesvegar til suðurs óásættanlega og óskar eftir að umhverfis- og skipulagsráð Reykjanesbæjar endurskoði þessa ákvörðun og sú breyting sem verður gerð sé unnin í samvinnu við sóknarnefnd. Silja Dögg Gunna r s d ó t t i r, f o rmaður sóknarnefndar Njarðvíkursóknar, segir í erindi til bæjaryfirvalda að lokun á Reykjanesvegi við kirkjuna skapi, að mati sóknarnefndar, aukna slysahættu og óhagræði á umferð þegar margir kirkjugestir reyni að taka vinstri beygju inn á Njarðarbraut, t.d. eftir útfarir. „Líkbíllinn nær ekki að taka þessa þröngu vinstri beygju og þarf því að fara miklar krókaleiðir til að komast áleiðis í kirkjugarðinn, sem er óásættanlegt,“ segir Silja Dögg í erindinu og óskar eftir því að yfirvöld endurskoði þessa ákvörðun. Á fundi umhverfis- og skipulagsráðs 7. júlí 2023 voru kynntar tillögur ungmennaráðs um betri gönguleiðir undir liðnum Umferðaröryggi íbúa Reykjanesbæjar. Fallist var á framkomnar tillögur.

Lokunin sem sóknarnefndin er ósátt við. Þarna er notast við 1.260 kg. steina sem framleiddir eru á Ásbrú og verður vart haggað. VF/Hilmar Bragi

Lokun götunnar í samræmi við óskir ungmenna sem þekkja gönguleiðina er réttmæt ákvörðun en útfæra má lokunina betur. Afgreiðsla ráðsins er að starfsmenn umhverfis- og framkvæmdasviðs leggi fram tillögur að mögulegum lausnum.

GERÐIST AÐDÁANDI BÍTLANNA ÁÐUR EN ÞEIR URÐU FRÆGIR - sjá viðtal við Þórð í miðopnu

Landris í Svartsengi mælist á svipuðum hraða sem bendir til þess að kvikusöfnun haldi áfram. Líkanreikningar byggðir á GPS og gervitunglagögnum áætla að um 7 til 8 milljón m3 hafi bæst við í kvikuhólfið undir Svartsengi frá því að eldgosið hófst 16. mars. Í fyrri kvikuhlaupum hefur kvika hlaupið frá Svartsengi þegar á bilinu 8 til 13 milljónir m3 hafa bæst við í kvikuhólfið frá síðasta kvikuhlaupi. Haldi kvikusöfnun áfram á svipuðum hraða aukast líkur á því að kraftur eldgossins á Sundhnúksgígaröðinni aukist verulega.

24.–28. apríl

16 SÍÐUR Í ÞESSARI VIKU • STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Víkurfréttir 17. tbl. 45. árg. by Víkurfréttir ehf - Issuu