Miðvikudagur 26. apríl 2023 // 17. tbl. // 44. árg.
Jákvæð rekstrarniðurstaða hjá Reykjanesbæ Rekstrarniðurstaða bæjarsjóðs Reykjanesbæjar 2022 eftir afskriftir og fjármagnsliði var jákvæð um 476 milljónir króna. Rekstrarniðurstaða samkvæmt samanteknum rekstrarreikningi a- og b-hluta eftir afskriftir, fjármagnsliði og tekjuskatt nam 1.084 milljónum. Þetta kom fram á bæjarstjórnarfundi 18. apríl en þá fór fram fyrri umræða um ársreikning sveitarfélagsins en hann er enn í endurskoðun og tölur gætu breyst. „Við eigum að vera stolt af þessari stöðu sem Reykjanesbær er komin í. Við höfum tekið risaskref á síðustu árum. Það er ánægjulegt að sjá margar tölur í þessum ársreikningi og við getum öll verið stolt af honum,“ sagði Friðjón Einarsson, formaður bæjarráðs. „Þetta er heilbrigður ársreikningur. Það er frábært hvað tekjur hafa aukist mikið og hvað við erum heppin eða óheppin að fá svona mikið úr Jöfnunarsjóði. Ástæðan fyrir því hvað við fáum svona mikið úr Jöfnunarsjóði er slæm en við förum betur yfir þetta í seinni umræðu um ársreikningin,“ sagði Margrét Sanders, oddviti Sjálfstæðisflokksins. Síðari umræða um ársreikninginn 2022 fer fram á bæjarstjórnarfundi 16. maí.
Sumri fagnað!
Það er áratuga hefð fyrir því að skátar fagni sumri með skrúðgöngu og fari svo í messu. Fylgt er liði með fánaberum í fararbroddi og genginn hringur frá skátahúsinu að Keflavíkurkirkju. Veðurguðirnir voru í góðu skapi og opnuðu sumarið með blíðu. VF-mynd/hilmarbragi.
Íþróttafélögin standi við stóru orðin Bæjarfulltrúar í Reykjanesbæ fögnuðu tillögu Íþrótta- og tómstundaráðs um uppbyggingu íþróttamannvirkja í Reykjanesbæ á bæjarstjórnarfundi 18. apríl. Þar er lagt upp með að félögin Keflavík og Njarðvík sameinist um notkun á mannvirkjum og aðstöðu til ársins 2030. Kostnaðurinn er áætlaður um fimm milljarðar króna. Nokkrir bæjarfulltrúar tóku til máls um málið og sögðust allir fagna því en greint var frá málinu í Víkurfréttum 18. apríl. „Þetta er stórt og mikið verkefni og ég treysti bæjarstjórn til að klára það en nú er komið að félögunum að standa við stóru orðin og vinna saman. Það hefur ekki alltaf verið auðvelt. Tilfinningar hafa oft þvælst fyrir en ég vona að okkur takist öllum að vinna saman að þessu,“ sagði Friðjón Einarsson, formaður bæjarráðs.
Sjómenn í Grindavík tóku heilsuáskorun!
Síður 8–9
Keflvískur pylsusali í Oklahoma Síða 10
Fyrir bæjarstjórnarfund var skýrsla starfshóps kynnt og voru fulltrúar frá Keflavík, Njarðvík og ÍRB á staðnum. Rúnar V. Arnarson, formaður ÍRB, sagði þetta verkefni til fyrirmyndar. „Þetta er byltingarkennd tillaga og verði hún að veruleika þá vil ég ganga alla leið og gera þetta að flottasta íþróttasvæði landsins. Það eru allir möguleikar á því. Þetta hefur hvergi verið gert svona og Reykjanesbær hefur möguleika á því að fara í fremstu röð.“
27. apríl –1. maí
16 SÍÐUR Í ÞESSARI VIKU • STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM