Skip to main content

Víkurfréttir 16. tbl. 44. árg.

Page 1

Bleikjan komin í verslanir erlendis einum degi eftir vinnslu

AFGREIÐSLUTÍMI SUMARDAGINN FYRSTA Hringbraut

Opið 24 klst.

Tjarnabraut

09:00-23.30

- sjá miðopnu

Miðvikudagur 19. apríl 2023 // 16. tbl. // 44. árg.

Rændi Stapagrill vopnaður hnífi

Frá leik Keflavíkur og KR í Bestu deild karla á Íslandsmótinu í knattspyrnu síðasta laugardag en leikurinn fór fram á nýja gerfigrasinu við Nettóhöllina. VF/Hilmar Bragi

Sameinast um keppnisvöll í Reykjanesbæ n Fimm milljarða króna framkvæmdir við íþróttamannvirki í Reykjanesbæ næstu sjö árin Stjórnir Knattspyrnudeilda UMFN og Keflavíkur hafa tekið vel í erindi starfshóps um uppbyggingu íþróttamannvirkja og svæða í Reykjanesbæ sem gerir

ráð fyrir sameiginlegum keppnisvelli félaganna. Viðræður milli félaganna og starfshópsins um uppbygginguna eru hafnar. Þá hefur starfshópnum borist yfir-

lýsing frá báðum deildum þar sem þær styðja tillögu starfshóps um sameiginlegan keppnisvöll. Þetta kemur fram í skýrslu starfshópsins sem kynnt var fyrir

NET SÍMI SJÓNVARP

Hjá okkur er allt Ljósleiðari innifalið 10.490 kr/mán. ENGINN AUKAKOSTNAÐUR, FRÍR ROUTER Kapalvæðing • Hafnargata 21 • 421 4688 www.kv.is • kv@kv.is

bæjarstjórn Reykjanesbæjar á þriðjudag. Nánar er fjallað um málið á síðu 2 í Víkurfréttum í dag.

Leggur ljósleiðara á fjölda heimila í Garði Míla hefur óskað eftir framkvæmdaleyf i vegna lagningu ljósleiðara í Garði í Suðurnesjabæ. Framkvæmdir hef jast um miðjan apríl og er áætlaður framkvæmdatími tveir mánuðir ef vel gengur. Framkvæmdin verður unnin í tveimur áföngum og er áætlað að byrja á teningum í hús við Melteig, Kríuland og Lóuland sem

ætti að klárast á tveimur til þremur vikum. Í framhaldi verður farið í seinni áfangann, sem áætlað er að taki fjórar til fimm vikur vikur. Þar eru hús við Heiðartún, Silfurtún,Hraunholt, Lindartún, Eyjaholt, Heiðarbraut, Lyngbraut, Einholt og Urðarbraut. Nánari upplýsingar eru á heimasíðu Mílu.

Rannsókn á ráninu í Stapagrilli við Tjarnabraut í Innri-Njarðvík á mánudag miðar ágætlega. Bjarney Annelsdóttir, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Suðurnesjum, segir að verið sé að fara yfir ábendingar um hugsanlega gerendur í málinu. Einn beið yfirheyrslu í gær hjá lögreglu að sögn Bjarneyjar, en ekki er víst að viðkomandi sé sá sem framdi ránið. Vopnað rán var framið í Stapagrilli í Innri-Njarðvík um miðjan dag á mánudag. Maður með hettu, sólgleraugu, grímu fyrir munni og nefi og vopnaður hnífi ógnaði starfsfólki. Hann opnaði sjóðsvél í afgreiðslu og tók þaðan peninga. Upphæðin er um 25.000–30.000 krónur. „Það kemur hingað inn maður eða strákur í svartri úlpu. Hann var með hettu yfir sér, með sólgleraugu og buff eða eitthvað slíkt fyrir nefinu. Hann kemur að afgreiðsluborðinu og stendur þar í smá stund. Þá tekur hann upp mjög skrítinn hníf og plastpoka. Hann teygir hendina í afgreiðslukassann og opnar hann og byrjar að taka peninginn úr kassanum. Starfsstúlka hjá mér fer þá og reynir að loka kassanum en þá veifar hann hnífnum að henni og hún bakkar snögglega. Hann tekur peninginn og hleypur út og fyrir hornið og bak við húsið þar sem hann hverfur sjónum okkar,“ segir Grétar Þór Grétarsson, eigandi Stapagrills, í samtali við Víkurfréttir um ránið.

V I Ð S Ý N U M A L L A R E I G N I R, F Á Ð U T I L B O Ð Í F E R L I Ð.

DÍSA EDWARDS D I S A E@A L LT.I S | 560-5510

ÁSTA MARÍA JÓNASDÓTTIR

HELGA SVERRISDÓTTIR

ELÍNBORG ÓSK JENSDÓTTIR

UNNUR SVAVA SVERRISDÓTTIR

ELÍN FRÍMANNSDÓTTIR

PÁLL ÞOR BJÖRNSSON

A S TA@A L LT.I S | 560-5507

H E LG A@A L LT.I S | 560-5523

E L I N B O RG@A L LT.I S | 560-5509

U N N U R@A L LT.I S | 560-5506

E L I N@A L LT.I S 560-5521

PA L L@A L LT.I S | 560-5501

16 SÍÐUR Í ÞESSARI VIKU • STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Víkurfréttir 16. tbl. 44. árg. by Víkurfréttir ehf - Issuu