Miðvikudagur 10. apríl 2024 // 15. tbl. // 45. árg.
Gummi Kalli sækist eftir biskupskjöri Guðmundur Karl Brynjarsson sækist eftir kjöri í embætti biskups Íslands en biskupskjör hefst 11. apríl og því lýkur 16. apríl. Gummi Kalli, eins og hann er alltaf kallaður, er Keflvíkingur sem ólst m.a. upp í Holtunum í Keflavík. Hann hlustaði á pönktónlist, féll ítrekað á mætingu í Fjölbrautaskóla Suðurnesja og segir í samtali við Víkurfréttir að um tíma hafi hann verið afhuga kristinni trú. Útsendarar Víkurfrétta hittu Gumma Kalla í Keflavík á dögunum. Hann er í viðtali í blaði vikunnar en ítarlegt viðtal er í þættinum Suður með sjó sem verður aðgengilegur á vf.is á föstudag. Þátturinn verður einnig aðgengilegur sem hlaðvarp á helstu hlaðvarpsveitum.
n Grindavíkurbær fagnar 50 ára kaupstaðarafmæli
Lágstemmd hátíðarhöld í skugga náttúruhamfara „Það eru allir að gera sitt besta en það er óvissan sem hefur verið okkar versti óvinur, að vita ekkert hvað framtíðin ber í skauti sér. Við erum að halda í horfinu, það er ánægjulegt að atvinnustarfsemi sé hafin og einhverjir Grindvíkingar eru nú þegar búsettir heima og aðrir stefna þangað. Ég get ekki annað en verið ánægður með það en Grindvíkingar verða að haga sínum málum á eigin forsendum, gæta alls öryggis og fylgja því sem almannavarnir og yfirvöld segja,“ segir Fannar Jónasson, bæjarstjóri Grindavíkur í viðtali við Víkurfréttir, í tilefni af 50 ára kaupstaðarafmæli Grindavíkurbæjar. Hátíðarhöldin eru lágstemmd og haldin í skugga náttúruhamfara. Það er leyfilegt að gista í Grindavík en lögreglustjórinn á Suðurnesjum mælir ekki með því eins og nú er ástatt og hann varar við jarðsprungum í bænum. „Okkur ber að vinna þessi mál með yfirvöldum og ég vil meina að það hafi gengið vel til þessa. Auðvitað vill meirihluti bæjarbúa flytja heim þegar fram líða stundir og bærinn telst öruggur til búsetu og þá mun bæj-
arstjórn Grindavíkur ekki láta sitt eftir liggja. Unnið hefur verið að viðgerðum á innviðum. Þegar búið verður að kortleggja sprungur og ráðist verður í að laga þær, varanlega eða til bráðabirgða og yfirvöld gefa út að öruggt sé að búa í Grindavík, skólar og leikskólar lagaðir, þá ættu smám saman að skapast forsendur fyrir því að við flytjum heim. Þetta verður hver
og einn að fá að ákveða fyrir sig og sína fjölskyldu, við verðum að sýna þeim sem treysta sér ekki til að flytja strax eða hugsanlega aldrei aftur til Grindavíkur, skilning. Allar tilfinningar og skoðanir eiga rétt á sér. Sömuleiðis ber að fagna
því að sumir séu nú þegar fluttir heim eða séu á leiðinni, þar með eru ljósin kveikt og frábært hve atvinnulífið hefur tekið vel við sér,“ sagði Fannar sem er í lengra viðtali á bls. 10. VF-mynd: Ísak Finnbogason
Keflvíkingurinn Guðmundur Karl Brynjarsson er í kjöri til embættis biskups Íslands.
Barnadagar 11.–21. apríl
20% appsláttur af ótal barnavörum
16 SÍÐUR Í ÞESSARI VIKU • STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM