Skip to main content

Víkurfréttir 15. tbl. 44. árg.

Page 1

Miðvikudagur 12. apríl 2023 // 15. tbl. // 44. árg.

Brjálað að gera hjá pípurum og nám hefst við FS í haust

Nám í pípulögnum hefst í Fjölbrautaskóla Suðurnesja á næstu haustönn. Pípulagningameistarar á Suðurnesjum munu aðstoða skólann við að koma upp námsbraut en skortur hefur verið á pípulagningamönnum á svæðinu og sækja hefur þurft bóklegt nám til Hafnarfjarðar. Mikið er að gera hjá pípulagningafyrirtækjum sem og öðrum verktakafyrirtækjum á Suðurnesjum. Nánar er fjallað um málið á síðu 2 í Víkurfréttum í dag.

n Erfiðar aðstæður til slökkvistarfs í hvössum vindi þegar einbýlishús brann í Garðinum:

Mikið eignatjón í eldsvoða

Frá slökkvistarfi í Garði á föstudaginn langa. VF/Hilmar Bragi

Sextán slökkviliðsmenn börðust við eld í einbýlishúsi í Garði á föstudaginn langa. Tilkynning barst til Neyðarlínunnar kl. 16:37 þar sem tilkynnt var um mikinn svartan reyk frá íbúðarhúsi við Valbraut í Garði. Það voru nágrannar sem tilkynntu um eldinn. Bílar frá Brunavörnum Suðurnesja og lögreglunni á Suðurnesjum voru þegar send á staðinn. Þegar slökkvilið kom á staðinn var mikill hiti í húsinu. Jón Guðlaugsson, slökkviliðsstjóri Brunavarna Suðurnesja, sagði í samtali við Víkurfréttir að ljóst væri að þarna hafi eldur náð að loga lengi

áður en hans varð vart. Teymi reykkafara var þegar sent inn í húsið til leitar. Enginn reyndist í húsinu. Húsráðendur voru erlendis. Baráttan við eldinn í húsinu var erfið en hvass vindur hafði áhrif á slökkvistarfið. Einn slökkviliðsmaður slasaðist við slökkvistörf og var fluttur á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Að sögn Jóns slökkviliðsstjóra skarst slökkviliðsmaðurinn á gleri við slökkvistörf. Þegar slökkvistarfi var lokið var vettvangur afhentur lögreglu. Rannsókn beindist að mögulegum eldsupptökum í eldhúsi. Eignatjón er mikið.

Nacho Heras hefur fundið stöðugleika á Íslandi - VIÐTAL Á SÍÐU 14

„Hérna eru aðstæður til áframeldis hagstæðar“

Samherji fiskeldi hefur starfrækt áframeldisstöð fyrir bleikju á Vatnsleysuströnd í sautján ár. Sjá nánar umfjöllun á síðu 6 í blaðinu í dag.

13.–16. apríl

16 SÍÐUR Í ÞESSARI VIKU • STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Víkurfréttir 15. tbl. 44. árg. by Víkurfréttir ehf - Issuu