Lækkað verð BEITUSALI SEM BÝÐUR UPP Á ÓDÝRAR BOLTAFERÐIR
Fimmtudagur 4. apríl 2024 // 14. tbl. // 45. árg.
VF/ÍSAK FINNBOGASON
Afmælishátíð Hljómahallar á laugardaginn Hljómahöll fagnar tíu ára afmæli næstkomandi laugardag, 6. apríl, en Hljómahöll var formlega opnuð þann 5. apríl 2014. Af því tilefni verður opið hús á milli 14:00 og 17:00. Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, flytur afmælisávarp. Tónlist verður flutt í Stapa, Bergi og á Rokksafni Íslands. Á meðal þeirra sem koma fram eru Páll Óskar, Bríet, Friðrik Dór, Fríða Dís, Bambalína og fjöldi atriða frá Tónlistarskóla Reykjanesbæjar. Vínylplötumarkaður verður á staðnum í tilefni dagsins og verður Tónlistarskóli Reykjanesbæjar með opið hús og sýnir aðstöðuna sína. Myndasýningar verða frá starfi Hljómahallar undanfarin tíu ár. Boðið verður upp á léttar veitingar. Þá verður ókeypis aðgangur að Rokksafni Íslands um afmælishelgina dagana 5.–7. apríl.
Sögu Hljómahallar má lesa á þremur síðum í blaðinu í dag.
Hitaveita með eldgos í bakgarðinum Eldgosið við Sundhnúksgígaröðina, sem hófst að kvöldi laugardagsins 16. mars, er enn í gangi og hefur staðið í næstum þrjár vikur. Gossprungan var í upphafi goss um 3,5 kílómetrar. Á fyrstu klukkustundum gossins rann hraun yfir Grindavíkurveg norðan varnargarða við Svartsengi. Nú gýs aðeins í tveimur gígum við Sundhnúk og hraunrennslið er til suðurs. Varnargarðar við Grindavík hafa sannað gildi sitt. Ef þeirra hefði ekki notið má gera ráð fyrir að hrauntungur, sem garðarnir hafa leitt frá bænum, hefðu náð inn í byggð. Ekki hefur reynt á varnargarða við Svartsengi. Þeim er ætlað að verja orkuverið og þá innviði sem þar eru. Í Svartsengi er framleitt heitt vatn fyrir byggðina á Suðurnesjum. Á myndinni að ofan má sjá eldgosið í bakgarði orkuversins og hluta af varnargarðinum sem er ætlað að verja innviðina í Svartsengi.
Þórkötlu boðnar 550 fasteignir í Grindavík
n Bæjarfulltrúinn Gunnar Már Gunnarsson spyr hvort bæjarbúar séu tilbúir til að tvístra Grindavík. Fasteignafélaginu Þórkötlu ehf. hafa borist óskir frá um 550 Grindvíkingum um kaup á íbúðarhúsnæði í Grindavík. Úrræði félagsins getur náð til um 900 fasteigna í Grindavík og þ.a.l. hefur Þórkötlu verið boðið að kaupa rúman helming fasteigna einstaklinga í Grindavík. Félagið stefnir að því að hefja kaupin í byrjun apríl. Vinna stendur yfir hjá félaginu, Stafrænu Íslandi og sýslumönnum við undirbúning á uppgreiðslu lána, afléttingu kvaða og nauðsynlega skjalagerð. Í tilkynningu frá félaginu segir að mörgum fyrirspurnum frá Grindvíkingum hefur verið svarað og unnið er að greiningu og flokkun umsókna.
Í reglugerð um framkvæmd kaupanna segir að afhendingardagur húsnæðis skuli vera einum til þremur mánuðum eftir undirritun kaupsamninga. Þannig má reikna með að fyrstu eignirnar verði afhentar fasteignafélaginu í byrjun maí. Endanlegur afhendingardagur verður ákveðinn í samráði við seljendur. Gunnar Már Gunnarsson, bæjarfulltrúi Miðflokksins í bæjarstjórn Grindavíkur, skrifaði ítarlegan pistil á samfélagsmiðla um páskana þar sem hann veltir upp stöðu mála og spyr spurninga. „Erum við of fljót á okkur í þessum uppkaupum? Það eru ekki sex mánuðir liðnir frá 10. nóvember og við erum komin með um 2/3 þeirra sem falla
undir þann rétt að geta nýtt sér uppkaup á húsnæði sínu hafa nú þegar sótt um. Sumir sjá hag í því að gera það þar sem brunabótamat er mun hærra en verðmat á húsnæðinu þeirra. Aðrir eru bara alls ekki í það góðum málum,“ skrifar Gunnar Már og bætir við: „Ég hef engan áhuga á því að flytja frá mínu samfélagi og búa einhversstaðar annarsstaðar en í Grindavík. Það sem við áttum hér saman öll var dýrmætt og flott samfélag af harðduglegu fólki hvort sem er í vinnu
eða sjálfboðaliðum. Erum við tilbúin til að tvístra því og reyna að bindast öðru samfélagi þar sem það þarf að skipuleggja alla vinahittinga barnanna með fyrirvara, allir með lykla eða kóða af nýja húsnæðinu sínu þar sem enginn þorir að hafa ólæst lengur og geta treyst á nágrannan að fylgjast með ef þú fórst eitthvað í lengri tíma. Þannig samfélög heilla mig ekki og það að horfa upp á íþróttafélögin okkar leysast upp hægt og hægt eins og litlu og meðalstóru fyrirtækin okkar í Grindavík á meðan ekkert er gert til uppbyggingar er virkilega sárt að horfa upp á.“ Færslu Gunnars Más Gunnarssonar má lesa í ítarlegri útgáfu af þessari frétt á vf.is.
V I Ð S Ý N U M A L L A R E I G N I R, F Á Ð U T I L B O Ð Í F E R L I Ð.
DÍSA
ÁSTA MARÍA
HELGA
ELÍNBORG ÓSK
UNNUR SVAVA
ELÍN
HAUKUR
SIGURJÓN
PÁLL
D I S A@A L LT.I S 560-5510
A S TA@A L LT.I S 560-5507
H E LG A@A L LT.I S 560-5523
E L I N B O RG@A L LT.I S 560-5509
U N N U R@A L LT.I S 560-5506
E L I N@A L LT.I S 560-5521
H A U K U R@A L LT.I S 560-5525
S I G U R J O N@A L LT.I S 560-5524
PA L L@A L LT.I S 560-5501
16 SÍÐUR Í ÞESSARI VIKU • STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM