Miðvikudagur 29. mars 2023 // 13. tbl. // 44. árg.
Greiddu 55 milljónir í fjárhagsaðstoð n Tvöfalt meiri fjöldi nú en á sama tíma fyrir ári Reykjanesbær greiddi fimmtíu og fimm milljónir króna í fjárhagsaðstoð til einstaklinga í febrúar. Þá fengu 365 einstaklingar greidda fjárhagsaðstoð frá Reykjanesbæ, 220 karlar og 145 konur. Fjárhagsaðstoðin var veitt til 88 heimila sem á bjuggu 184 börn. Alls voru greiddar 55.018.424 kr. í fjárhagsaðstoð eða að meðaltali 150.735 kr. pr. einstakling. Þetta kemur fram í
Marína Ósk gerir það gott í tónlistinni - VIÐTAL Á SÍÐU 8
Fermingarveislur hjá þremur ættliðum í Grindavík - VIÐTAL Á SÍÐU 16
Boða hvatagreiðslur til eldra fólks n Ekki frekari stuðningur við fjölþætta heilsueflingu 65+
Flottir í kyrtlunum á fermingardaginn.
Sveitarfélögin skoði nýja sorporkustöð Áætla má að á milli 80–85% af brennanlegum úrgangi sem fellur til á Íslandi sé á forræði sveitarfélaga á suðvesturhorni landsins. Þá segir að sorpbrennsla sem annar 100 þúsund tonnum af úrgangi á ári væri heppileg stærð. Framkvæmdastjóri Kölku fór yfir „suðvesturbrennsluna“, þ.e. nýja nálgun við uppbyggingu innviða á Íslandi á síðasta fundi stjórnar Kölku. Framkvæmdastjórinn fór yfir aðdragandann að þessu máli, frá orðum til athafna, nýjar upplýsingar og nýja nálgun. Nýja nálgunin er sú að sorpsamlögin á suðvesturhorninu hafa lýst yfir áhuga á að fá að taka þátt í að byggja nýja lausn. Samlögin vilja láta á það reyna að sveitarfélögin að baki þeim nái samstöðu um þessa uppbyggingu, þ.e. 100 þúsund tonna sorporkustöð. Fyrir liggja tilboð
gögnum velferðarráðs Reykjanesbæjar. Í sama mánuði 2022 fengu 152 einstaklingar greidda fjárhagsaðstoð frá Reykjanesbæ, 106 karlar og 46 konur. Fjárhagsaðstoðin var veitt til 34 heimila sem á bjuggu samtals 88 börn. Alls voru greiddar 24.199.275 kr. í fjárhagsaðstoð eða að meðaltali 159.205 kr. pr. einstakling.
um fjármögnun og er nú unnið að frekari greiningum á kostnaði. Hugmyndin er að sveitarfélög geti verið með í lausninni án þess að leggja fram fjármuni. Stöðin verði fjármögnuð og rekstur hennar muni standa straum af bæði fjárfestingu og rekstri. Í fundargerð Kölku segir að eftir góða umræðu hefur stjórnin ákveðið að lýsa yfir stuðningi við þær hugmyndir sem komið hafa frá samstarfsvettvangi sorpsamlaga á suðvesturhorninu um uppbyggingu nýrrar sorporkustöðvar. Stjórn hvetur sveitarfélögin á Suðurnesjum til að skoða með opnum huga þá leið sem hér er til umræðu og stefna að fullri þátttöku í þeirri vinnu sem framundan er til að leiða málið til lykta. Áætlað er að bæjarstjórnir fái fljótlega frekari kynningar á þessu efni.
Fyrstu fermingar á Suðurnesjum eru að baki og framundan eru margar fleiri og þær síðustu verða í lok apríl. Þessir myndarlegu fermingarpeyjar eru úr Njarðvík og voru fermdir um síðustu helgi frá Ytri-Njarðvíkurkirkju. Þetta eru vinirnir Sindri Már, Jóhannes Breiðf jörð, Almar Orri, Brynjar, Kristinn Einar og Logi Örn. Myndina tók ein mamman, Margrét Rut Sörensen, sem segir okkur aðeins frá hári og fermingarklippingum á bls. 15. Í blaðinu er meira áhugavert efni tengt fermingum.
Bæjarráð Reykjanesbæjar hefur hafnað erindi um tímabundna framlengingu samstarfssamnings um fjölþætta heilsuefling 65+. Við sama tækifæri bókaði bæjarráð þakkir til Janusar. „Við viljum þakka Janusi Heilsueflingu sérstaklega fyrir samstarfið á liðnum árum. Samstarfið hefur verið með miklum ágætum allt frá árinu 2017. Verkefnið hefur svo sannarlega verið frumkvöðlastarf í heilsueflingu fyrir elstu íbúa sveitarfélagsins. Ákveðið hefur verið að taka upp hvatagreiðslur fyrir eldra fólk frá janúar 2024. Þá getur hver og einn valið sína heilsueflingu á eigin forsendum, t.d. sund, golf,
líkamsrækt, Janus Heilsueflingu o.fl. Hvatagreiðslur eru ætlaðar til lækkunar á námskeiðsgjöldum. Á þennan hátt ríkir jafnræði á meðal eldra fólks í Reykjanesbæ og þeirra sem munu bjóða upp á sértæka heilsueflingu fyrir þann hóp. Það er von okkar að með þessu móti muni fleiri úr hópi eldra fólks sækja sér heilsueflingu. Það er von okkar að Janus Heilsuefling verði áfram valkostur í heilsueflingu eldra fólks í Reykjanesbæ,“ segir í bókuninni sem Friðjón Einarsson (S), Guðbergur Reynisson (D), Guðný Birna Guðmundsdóttir (S), Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir (B) og Valgerður Björk Pálsdóttir (Y) skrifa undir.
30. mars– 2. apríl
24 SÍÐUR Í ÞESSARI VIKU • STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM