Oftar en ekki í næsta nágrenni
OPIÐ Á HRINGBRAUT ALLAN SÓLARHRINGINN
VÍKURFRÉTTAMYND: ÍSAK FINNBOGASON
Miðvikudagur 20. mars 2024 // 12. tbl. // 45. árg.
Enn gýs við Grindavík - sjöunda gosið á þremur árum
Landris heldur áfram í Svartsengi sem bendir til þess að enn streymi kvika af dýpi inn í kvikusöfnunarsvæðið undir Svartsengi ásamt því að fæða eldgosið. Eldgos hófst við Sundhnúk á laugardagskvöld kl. 20:23. Gosið er það lengsta af þeim fjórum eldgosum sem komið hafa upp í nágrenni Grindavíkur frá því í desember sl. Á þriðjudagskvöld hafði gosið staðið yfir í þrjá sólarhringa en þá gaus syðst á gossprungunni og gígbarmar voru að byggjast upp. Þó nokkur kvikustrókavirkni var í gosinu og gosórói hefur verið stöðugur sem er vísbending um að ekki hafi dregið úr krafti gossins. Aðgengi að Grindavík var lokað á mánudag en lögreglustjóri ákvað að opna fyrir starfsemi í Grindavík á þriðjudag. Lítil sem engin hreyfing er nú á hraun-
rennsli að Svartsengi og eins fyrir ofan Suðurstrandarveg. Það er mat lögreglustjóra að ekki stafi ógn af hraunrennsli inni í Grindavík við núverandi
aðstæður. Þá er fylgst vel með hraunrennsli fyrir ofan Suðurstrandarveg. Þá er einnig fylgst vel með mengun inni á merktu hættusvæði. Ef og þegar hætta er talin á að loftmengun ógni heilsu manna getur komið til þess að aðgengi inn í Grindavík verði takmarkað. Lögreglustjóri segir íbúa og starfsmenn fara inn í bæinn á eigin ábyrgð og hver og einn verði að bera ábyrgð á eigin athöfnum eða athafnaleysi. Þá tekur hann skýrt fram að
Grindavík er ekki staður fyrir barnafólk eða börn að leik. Þar eru ekki starfræktir skólar og innviðir eru í ólestri. Lögreglustjóri mælir alls ekki með því að íbúar dvelji í bænum. Fáir Grindvíkingar kjósa að dvelja í bænum næturlangt. Þeim er það heimilt en lögreglustjóri mælir alls ekki með því og getur ekki ábyrgst öryggi þeirra við núverandi aðstæður. Viðbragðsaðilar eru við störf í Grindavík og lögregla og slökkvilið sinna lögbundnu
eftirliti í bænum eins og verið hefur. Þá er sjúkrabíll staðsettur í Grindavík alla daga á dagtíma. Unnið er allan sólarhringinn við gerð varnargarða á virkum dögum. Píparagengi hóf störf að nýju á þriðjudag. Framkvæmdir við að hleypa köldu vatni á bæinn eru í undirbúningi hjá Grindavíkurbæ í samvinnu við almannavarnir. Nánari umfjöllun um eldsumbrot síðustu þriggja ára á vef Víkurfrétta, vf.is.
V I Ð S Ý N U M A L L A R E I G N I R, F Á Ð U T I L B O Ð Í F E R L I Ð.
DÍSA
ÁSTA MARÍA
HELGA
ELÍNBORG ÓSK
UNNUR SVAVA
ELÍN
HAUKUR
SIGURJÓN
PÁLL
D I S A@A L LT.I S 560-5510
A S TA@A L LT.I S 560-5507
H E LG A@A L LT.I S 560-5523
E L I N B O RG@A L LT.I S 560-5509
U N N U R@A L LT.I S 560-5506
E L I N@A L LT.I S 560-5521
H A U K U R@A L LT.I S 560-5525
S I G U R J O N@A L LT.I S 560-5524
PA L L@A L LT.I S 560-5501
16 SÍÐUR Í ÞESSARI VIKU • STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM