Skip to main content

Víkurfréttir 12. tbl. 44. árg.

Page 1

30% APPSLÁTTUR AF TGI FRIDAYS VÖRUM Í MARS

Bakarinn Guðrún Erla í viðtali:

Kaka ársins úr Vogum

Opnunartími Hringbraut: Allan sólarhringinn Opnunartími Tjarnabraut: 08.00 - 23.30 Virka daga 09.00 - 23.30 Helgar

30% Afsláttur í formi inneignar í appinu. Sæktu appið og safnaðu inneign.

Miðvikudagur 22. mars 2023 // 12. tbl. // 44. árg.

Enn finnst raki í Myllubakkaskóla n Ástandsskoða allt húsnæði bæjarins vegna raka og myglu. n Stjórnendur Njarðvíkurskóla vilja úttekt á húsnæði skólans. Sagað var úr gólfplötu í kjallara D-álmu Myllubakkaskóla og er töluverður raki undir gólfinu. Þetta kemur fram í fundargerð byggingarnefndar frá 9. mars síðastliðnum. Þar kemur fram að saga þurfi gólfið upp, rakaverja og steypa nýja gólfplötu. Á sama fundi var farið yfir tillögur hönnuða að utanhússklæðningu. Samþykkt var að halda áfram með hönnun miðað við framlagðar hugmyndir en boðað verður fljótlega til fundar með hönnuðum vegna utanhússklæðningar á Myllubakkaskóla. Stjórnendur Njarðvíkurskóla hafa óskað eftir að gerð verði markviss úttekt og ástandsskoðun á byggingum skólans sem notuð

MINJAFÉLAG VATNSLEYSUSTRANDAR var stofnað árið 2005 með það að markmiði að stuðla að varðveislu minja í sveitarfélaginu Vogum. Meðal merkilegra minja sem félagið varðveitir er gamalt skólahúsnæði að Kálfatjörn. Það var til sýnis á safnahelgi á Suðurnesjum sem fram fór um nýliðna helgi. Fleiri myndir frá helginni eru í blaðinu. VF/Hilmar Bragi

NET SÍMI SJÓNVARP

verði til að forgangsraða viðhaldi og uppbyggingu. Tekin hafa verið fjöldi sýna á undanförnum árum og brugðist hefur verið við þar sem skemmdir hafa fundist og unnar endurbætur en viðhaldsþörf og vandamál eru enn til staðar. Byggingarnefndin samþykkti á fundi sínum þann 9. mars að farið verði í ástandsskoðun á öllu húsnæði sveitarfélagsins sem hefjist í sumar. Þessi ástandsskoðun verði grundvöllur viðhalds sem farið verður í. Byrjað verður á verkefninu í Njarðvíkurskóla. Þá samþykkti nefndin einnig að farið verði í áframhaldandi framkvæmdir á húsnæði Bjarkarinnar við Njarðvíkurskóla. Byggingarnefndin tók einnig við erindi frá bæjarráði sem

vísaði þarfagreiningu vegna leikskólans Garðasels til nefndarinnar. Þá var einnig farið yfir niðurstöður úttektar á húsnæðinu Afreksbraut 10 (íþróttaakademían/fimleikaakademían). Farið hefur verið í viðgerðir á skemmdum í votrými sem er ekki að fullu lokið.

Gestum fækkar en dvalartími lengist Tveir af hverjum þremur erlendum ferðamönnum heimsóttu Reykjanesið (66%) frá maí til desember 2022. Það er fækkun frá árinu áður þegar um 75% heimsóttu svæðið á sama tíma en meðaldvalarlengd jókst úr 0,7 gistinóttum (2021) í að jafnaði 1,8 nætur. Þetta kemur fram í niðurstöðum könnunar Ferðamálastofu sem gerð var meðal erlendra ferðamanna.

Í samantektinni kemur fram að flestir gesta sem koma til landsins eru að koma frá Bandaríkjunum,

Hjá okkur er allt Ljósleiðari innifalið 10.490 kr/mán. ENGINN AUKAKOSTNAÐUR, FRÍR ROUTER Þessir erlendu ferðamenn voru í miðbæ Keflavíkur í vikunni. VF/pket

Kapalvæðing • Hafnargata 21 • 421 4688 www.kv.is • kv@kv.is

Bretlandi, Þýskalandi og Frakklandi. Helsta ástæða komunnar er að njóta náttúrunnar í fríi. Yfir helmingur svarenda tók ákvörðun um ferðina innan árs frá komunni til landsins. Meðaldvalarlengd svarenda á landinu var 7,6 nætur á þessu tímabili. Flestir heimsóttu höfuðborgarsvæðið (91%) og gistu þar að jafnaði 3,3 nætur. Þegar ferðamenn voru spurðir hvaða svæði á Íslandi þeir vilji heimsækja í næstu ferð sögðust eingöngu 13% vilja heimsækja Reykjanes en þess ber að geta að 66% erlendra ferðamanna höfðu heimsótt svæðið í þeirri ferð sem könnunin var unnin. 18% vildu heimsækja Reykjavík en 91% heimsóttu borgina þegar könnunin var gerð.

V I Ð S Ý N U M A L L A R E I G N I R, F Á Ð U T I L B O Ð Í F E R L I Ð.

DÍSA EDWARDS D I S A E@A L LT.I S | 560-5510

ÁSTA MARÍA JÓNASDÓTTIR

HELGA SVERRISDÓTTIR

ELÍNBORG ÓSK JENSDÓTTIR

UNNUR SVAVA SVERRISDÓTTIR

ELÍN FRÍMANNSDÓTTIR

PÁLL ÞOR BJÖRNSSON

A S TA@A L LT.I S | 560-5507

H E LG A@A L LT.I S | 560-5523

E L I N B O RG@A L LT.I S | 560-5509

U N N U R@A L LT.I S | 560-5506

E L I N@A L LT.I S 560-5521

PA L L@A L LT.I S | 560-5501

16 SÍÐUR Í ÞESSARI VIKU • STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook