Miðvikudagur 13. mars 2024 // 11. tbl. // 45. árg.
Grindvíkingar búi sig undir langhlaup Magnús Tumi Guðmundsson, prófessor í jarðeðlisfræði, segir að framundan sé langhlaup í Grindavík þegar kemur að endurteknum kvikuinnskotum og eldgosum á Sundhnúkagíga röðinni. Gera verði ráð fyrir að ástandið sem nú ríkir verði við varandi í einhver ár til viðbótar. Lítið pláss er orðið eftir í jarðskorpunni og því komi meira upp af hrauni eins og hafi sýnt sig í þeim eldgosum sem orðið hafi á Sundhnúka gígaröðinni síðustu vikur. Nánar á síðu 4.
Gervigrasvöllur verði í Sandgerði
Séð yfir byggðina í Grindavík og til hafnarsvæðisins. VF/Hilmar Bragi
n Atvinnurekendur í Grindavík segja mörg mál stopp hjá stjórnvöldum varðandi starfsemi í bæjarfélaginu:
Ósáttir við stjórnvöld
„Atvinnurekendur í Grindavík eru mjög óánægðir og finnst mörgum atriðum sem snúa að því að við getum verið með starfsemi í bæjarfélaginu, ósvarað eða þau óafgreidd. Það er mikilvægt að stjórnvöld klári endurskipulagningu og kynni aðgerðir sem komi til móts við fyrirtækin,“ segir Pétur Pálsson, framkvæmda-
stjóri sjávarútvegsfyrirtækisins Vísis hf. í Grindavík. Eitt af þeim atriðum sem eru óafgreidd er tryggingavernd á því sem framleitt er í Grindavík. Dags framleiðsla getur verið nokkurra tuga milljóna virði. Pétur segir að aðgangsstýring um verðmæta björgun sé vel raunhæf. Þannig væri hægt að bjarga verðmætum á
tveimur til fimm klukkustundum þegar til goss kæmi. Ljóst sé að læra þurfi að lifa með jarðhrær ingum og eldgosum og það sé vel hægt. Forstjóri Síldarvinnslunnar hf., en Vísir hf. er í eigu SVN, sagði á fundi fyrir helgi að verið væri að fara yfir hvort raunhæft sé að vera með starfsemi af einhverju
tagi í Grindavík næstu misseri og nefndi fyrrgreind atriði eins og tryggingavernd, áskoranir í öryggi starfsfólks og aðgerðir stjórnvalda til fyrirtækja. Á miðvikudaginn 13. mars stóð til að fagna þúsundasta tonninu sem hefur verið unnið í nýrri salt fiskvinnslu Vísis hf. í Helguvík. Nánar um það á vf.is.
S-listinn í Suðurnesjabæ leggur til við bæjarstjórn að staðsetning gervigrasvallar verði á aðalvellinum í Sandgerði. „Allir nauðsynlegir innviðir eru til staðar á aðalvellinum í Sandgerði eins og til dæmis 340 manna stúka, salernisaðstaða fyrir áhorfendur, vélageymsla og plássgott félagsheimili. Auk þess leggur S-listinn til að starfshópur um uppbygg ingu íþróttamannvirkja verði skipaður hið fyrsta, geri þarfa greiningu og skili af sér tillögum um uppbyggingu til næstu ára. Starfshópurinn hafi það að leiðarljósi að jafnræðis skuli gætt milli byggðakjarna sveitar félagsins þegar kemur að frekari uppbyggingu íþróttamann virkja,“ segir í tillögu S-listans Samþykkt var samhljóða að vísa tillögu S-lista til umfjöll unar í bæjarráði enda er málið enn í vinnslu þar.
Ingibjörg Þórdísar- og Ólafsdóttir:
Lét handarmissi ekki stöðva sig og nýtur lífsins á golfvellinum
- sjá miðopnu
14.–17. mars
16 SÍÐUR Í ÞESSARI VIKU • STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM