Skip to main content

Víkurfréttir 10. tbl. 45. árg.

Page 1

i k u a ð a l b r a g n Fermi

Oftar en ekki í næsta nágrenni

OPIÐ Á HRINGBRAUT ALLAN SÓLARHRINGINN

Miðvikudagur 6. mars 2023 // 10. tbl. // 45. árg.

Áframhaldandi landris og auknar líkur á eldgosi Um 1,3 milljón rúmmetrar af kviku fóru úr kvikuhólfinu undir Svartsengi yfir í kvikuganginn á laugardaginn 2. mars. Kvikugangurinn sem myndaðist í kjölfarið var um 3 km langur og náði frá Stóra-Skógfelli að Hagafelli. Áframhaldandi landris mælist á GPS mælum eftir kvikuinnskotið. Kvikuflæði undir Svartsengi heldur því áfram og líkanreikningar sýna að um hálf milljón rúmmetra af kviku safnast á sólarhring. Þrýstingur í kvikuhólfinu heldur því áfram að byggjast upp og auknar líkur eru á nýju kvikuhlaupi yfir í Sundhnúksgígaröðina og jafnvel eldgosi á næstu dögum.

Njóta heitra lauga í ljósaskiptunum Suðurnesjafólk komst að því á dögunum að heitt vatn er ekki eins sjálfsagður hlutur og margir halda. Þegar svokölluð Njarðvíkuræð, sem flytur heitt vatn frá Svartsengi og að Fitjum í Reykjanesbæ, rofnaði undan hraunrennsli frá eldgosi við Sundhnúka voru sundlaugarnar á svæðinu eitt af því fyrsta sem lokaði og voru síðastar til að opna að nýju. Meðfylgjandi mynd var tekin við Sundmiðstöð Reykjanesbæjar, Vatnaveröld, í ljósaskiptunum á mánudagskvöld. VF/Hilmar Bragi

n Hefja fyrstu augnskimun við augnsjúkdómum af völdum sykursýki á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja í samstarfi við RetinaRisk:

HSS leiðir byltingu í augnskimun með gervigreind RetinaRisk, sem er fyrirtæki í forystuhlutverki í notkun gervigreindar í heilbrigðisþjónustu, er komið í samstarf við Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (HSS) um að hefja fyrstu augnskimun við augnsjúkdómum af völdum sykursýki með gervigreind. Skimun hefst í næsta mánuði. Þetta skref markar tímamót í heilbrigðisþjónustu á Íslandi, þar sem HSS tekur í notkun byltingarkennda tækni til að bæta heilbrigðisþjónustu við sína sjúklinga.

Fulltrúar Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja og RetinaRisk í verkefninu.

Augnskimun með gervigreind frá RetinaRisk mun gera stofnuninni kleift að greina sjónskerðandi augnbotnabreytingar af völdum sykursýki á gríðarlega skilvirkan hátt á stofnunni sjálfri og tilvísa aðeins þeim með staðfestan grun um kvilla til augnlæknis. Þetta

minnkar kostnað gríðarlega fyrir sjúklingahópinn í heild sinni ásamt því að stórbæta aðgengi að skimun og til augnlækna fyrir þá sjúklinga sem þurfa á því að halda. „Við erum gríðarlega ánægð með samstarfið við HSS og er stofnunin að sýna mikinn nýsköpunarkraft

í að taka þessa tækni í notkun,“ sagði Ægir Þór Steinarsson, framkvæmdastjóri RetinaRisk. „Samstarf okkar mun ekki aðeins gera HSS kleift að bjóða upp á skilvirkari greiningu fyrir sjúklinga, heldur einnig að draga verulega úr byrði á heilbrigðiskerfið í heild sinni.“ Heilbrigðisstofnun Suðurnesja rekur eina stærstu sykursýkissmóttöku landsins með vel yfir 1000 manns í eftirfylgni og hefur getið sér gott orð fyrir einstaklega vel skipulagða nálgun við það starf. Nánar á vf.is.

V I Ð S Ý N U M A L L A R E I G N I R, F Á Ð U T I L B O Ð Í F E R L I Ð.

DÍSA

ÁSTA MARÍA

HELGA

ELÍNBORG ÓSK

UNNUR SVAVA

ELÍN

HAUKUR

SIGURJÓN

PÁLL

D I S A@A L LT.I S 560-5510

A S TA@A L LT.I S 560-5507

H E LG A@A L LT.I S 560-5523

E L I N B O RG@A L LT.I S 560-5509

U N N U R@A L LT.I S 560-5506

E L I N@A L LT.I S 560-5521

H A U K U R@A L LT.I S 560-5525

S I G U R J O N@A L LT.I S 560-5524

PA L L@A L LT.I S 560-5501

24 SÍÐUR Í ÞESSARI VIKU • STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Víkurfréttir 10. tbl. 45. árg. by Víkurfréttir ehf - Issuu