Skip to main content

Víkurfréttir 9. tbl. 44. árg.

Page 1

Miðvikudagur 1. mars 2023 // 9. tbl. // 44. árg.

Óvenjulegur afli - sjá frétt úr fortíðinni

Hagkvæmasta landeldisstöð í heimi á Reykjanesi - sjá frétt á síðu 2

Rúnar hefur þurft að reima á sig skóna - sjá sportið á síðu 15

Suðurnesja Svakasýn gefur bæjarbúum á baukinn Margir kunnir bæjarbúar Reykjanesbæjar fá á baukinn og tekið er á mörgum málefnum sem brunnið hafa heitt í samfélaginu á undanförnum árum í nýrri revíu Leikfélags Keflavíkur sem ber heitið Suðurnesja Svakasýn. Miðað við undirtektir á frumsýningu síðasta föstudagskvöld er ekki ólíklegt að bæjarbúar muni leggja leið sína í Frumleikhúsið á næstunni. Hér má sjá leikarahópinn og forsvarsfólk félagsins með Eyvindi Karlssyni, leikstjóra í „sviðsmynd“ Hilmars Braga sem er einn af þeim sem fá á baukinn í revíunni.

Suðupottur fyrir fuglaflensur við Íslandsstrendur n Fuglaflensan þungt högg fyrir súlustofninn. n Fullorðnir eintaklingar hríðfalla. n Vírusar frá Ameríku og Evrópu blandast saman á Íslandi. Fuglaflensuvírusar frá Ameríku og Evrópu blandast saman á Íslandi. Þekkingarsetur Suðurnesja og Náttúrustofa suðvesturlands, sem hafa aðsetur í Suðurnesjabæ, hafa í samstarfi við bandaríska stofnun, sem sérhæfir sig í þessum málum, komist að þessari niðurstöðu. Fuglaflensa hefur frá því snemma á síðasta ári lagst þungt t.a.m. á súlustofninn við Íslandsstrendur. Fuglaflensa hefur verið að hríðfella súluna og fleiri fugla á síðustu mánuðum.

„Það voru gerðar kannanir á súlunni í Eldey og það voru ekki fallegar myndir sem komu þaðan. Súlunni almennt í Atlantshafi gekk illa og fékk þungt högg. Við vorum

að sjá fullorðna einstaklinga sem voru að hríðfalla. Þetta var ekki bara ungviði. Kollegar mínir, sem ég vinn mikið með, og voru að fara í eyjar í Skotlandi, Kanada og Noregi höfðu allir sömu sögu að segja. Það virðist sem fuglaflensan herji á þá fugla sem eru í miklum þéttleika eins og súlan var á þessum tíma. Þær virðast vera að lenda illa í því,“ segir Sölvi Rúnar Vignisson, fuglafræðingur, í viðtali við Víkurfréttir. „Við hér hjá Þekkingarsetrinu og Náttúrustofunni, sem er í sama húsi, stúderuðum fuglaflensuna og hvernig hún dreifir sér um heiminn

í samstarfi við bandaríska stofnun, sem er ein sú stærsta sem sér um þessa hluti. Í samstarfi við þá komumst við að því að evrópskir vírusar og amerískir vírusar í þessum fuglum eru að hittast á Íslandi og

blandast þar. Menn hafa hingað til verið að horfa á Kyrrahafið og Kyrrahafsleiðina í gegnum Rússland en í raun er suðupotturinn hér. Hér erum við með tegundir sem verpa í Kanada eða færast á

milli. Svo erum við með hanana okkar sem fara inn í Kyrrahafið með vetursetu þar, svo þetta er svolítill hrærigrautur hér og þessir vírusar eru að hittast hérna.“ Sjá viðtal við Sölva í miðopnu.

2.–5. mars

1 6 S Í Ð U R Í Þ ES S A R I V I K U • S T Æ R S TA F R É T TA - O G A U G LÝS I N G A B L A Ð I Ð Á S U Ð U R N ES J U M


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Víkurfréttir 9. tbl. 44. árg. by Víkurfréttir ehf - Issuu