Miðvikudagur 28. febrúar 2023 // 9. tbl. // 45. árg.
n Borað fyrir lághita á Suðurnesjum. Ný þjóðarsorporkustöð í Helguvík gæti líka leyst mörg mál:
Varahitaveita er nauðsynleg VF/Sigurbjörn Daði Dagbjartsson
Forstjórinn á fullu með snyrtihnífinn
„Mér finnst gott að grípa stundum í hnífinn, ég er vanur þessum vinnubrögðum síðan ég vann á frystitogurum hér áður fyrr. Það er nauðsynlegt að fara stundum í grunninn, ég mér finnst þetta gaman og svona tengist ég starfsfólkinu betur,“ segir Stefán Kristjánsson, forstjóri Einhamars Seafood, sem var á fullu með snyrtihnífinn á vinnslulínunni í fyrirtækinu á þriðjudagsmorgun. Þar var verið að forsnyrta þorskflök áður en þau fóru í beinskurð. Fiskinn kom áhöfnin á Vésteini GK með að landi á sunnudaginn. Mokveiði hefur verið hjá körlunum um borð og aðeins um 20 mínútur á miðin frá Grindavík. „Það er gott að þetta sé komið af stað aftur, ég var búinn að bíða eftir þessu. Ég vil trúa að aðilar séu búnir að læra af þessum eldgosum til þessa, það þarf ekki að setja allt í lás svo vikum skiptir þegar eldgos er búið, það er nánast hægt að hefja störf daginn eftir. Við tókum
viðbragðsæfingu og gekk hún mjög vel. Á fáeinum mínútum vorum við komin upp á Nesveg. Nú vinnum við þetta með yfirvöldum og byggjum bæinn upp hægt og örugglega. Jæja, hættu nú að trufla mig,“ sagði Stefán og hélt snyrtingunni áfram.
„Við erum ennþá í þeirri stöðu að Svartsengi er þar sem það er og það er ein pípa frá Svartsengi. Við getum fengið hraun aftur yfir hana. Við munum þá bara verða að bregðast við því eins og við erum að gera núna. Til lengri tíma, og þá er ég ekki að tala um mörg ár, verðum við vonandi komin með lághitaveitur hérna við svæðið og mögulegar tengingar við annað háhitasvæði, t.d. Reykjanesið eða það svæði,“ segir Tómas Már Sigurðsson, forstjóri HS Orku aðspurður um hvort það sé hægt að koma í veg fyrir að heita vatnið fari aftur af þegar gýs í Grindavík. Hann ræðir fleiri möguleika fyrir nýja hitaveitu, m.a.byggingu nýrrar sorporkustöðvar í Helguvík sem myndi geta framleitt heitt vatn og rafmagn með brennslu á sorpi. Viðtal við Tómas Má er á síðum 8 til 10 í Víkurfréttum í þessari viku. Einnig má sjá viðtal við hann í Sjónvarpi Víkurfrétta á vf.is og í rafrænni útgáfu VF.
Unnið við tengingu á heitavatnslögn við Svartsengi.
Mælir ekki með að gist sé í Grindavík Fáir Grindvíkingar kjósa að dvelja í bænum næturlangt. Þeim er það heimilt en lögreglustjóri mælir ekki með því. Lögreglustjóri bendir á að líklegt er að það styttist í næsta gos og biður fólk um að taka tillit til þess. Fyrirvari vegna næsta eldgoss gæti orðið mjög stuttur. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Úlfari Lúðvíkssyni, lögreglustjóra á Suðurnesjum. Það er mat vísindamanna að ef til eldgoss kemur, er líklegast að kvikan leiti frá Svartsengi yfir í Sundhnúkagígaröðina og að gos komi upp á svæðinu milli Stóra-
Skógfells og Hagafells. Merki um að kvika sé að brjóta sér leið upp á yfirborðið kæmu fram í skyndilegri, staðbundinni og ákafri smáskjálftavirkni. Ef horft er til fyrri
25% appsláttur af öllum Änglamark-vörum.
eldgosa á svæðinu gæti nýtt eldgos hafist með skömmum fyrirvara, innan við 30 mínútur, allt eftir því hvar á Sundhnúksgígaröðinni kvika kemur upp. Ekki er hægt að útiloka að gos komi upp inn í Grindavík þótt það teljist ólíklegt. Viðbragðsaðilar eru við störf í Grindavík og lögregla sinnir lögbundnu eftirliti í bænum eins og verið hefur.
29. febrúar–10. mars
16 SÍÐUR Í ÞESSARI VIKU • STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM