Skip to main content

Víkurfréttir 7. tbl. 44. árg.

Page 1

Miðvikudagur 15. febrúar 2023 // 7. tbl. // 44. árg.

Komin yfir 31.000 Suðurnesjabær nálgast 4.000 íbúa markið

Viðbúið að menn fái aðeins á trýnið! Hér leggur Sturla GK í hann út frá Grindavík síðdegis á mánudaginn. Það voru SSA 10 metrar og þungur sjór í honum ennþá eftir að síðasta lægð gekk yfir. Ölduduflið við Grindavík sagði ölduhæðina 7,3 metra. Við svona aðstæður er viðbúið að menn fái aðeins á trýnið. Þorbjörn hf. í Grindavík gerir út Sturlu GK en útgerðin keypti skipið frá Vestmannaeyjum á vordögum 2020. Það var Jón Steinar Sæmundsson sem tók þessa mögnuðu mynd en fleiri myndir af skipinu má sjá á fésbókarsíðu Jóns Steinars undir heitinu Bátar og bryggjubrölt.

Bregst við áskorunum í starfsmannamálum með því að greiða fyrir meirapróf Framkvæmdir við stækkun húsnæðis Skólamatar í Reykjan e sb æ e r u l a n gt komnar en fyrirtækið hefur stækkað jafnt og þétt frá stofnun. Starfsmönnum hefur fjölgað að sama skapi og eru nú 165 talsins. Vel hefur gengið að ráða í flest störf en ekki öll og hefur fyrirtækið brugðið á það ráð að greiða meiraprófið fyrir bílstjóra gegn því að viðkomandi skuldibindi sig í starfi í hið minnsta tvö ár.

Fanný S. Axelsdóttir, mannauðsog starfsmannastjóri Skólamatar segir að með hröðum vexti komi upp ýmsar áskoranir og þá sérstak-

lega í starfsmannamálum. „Þetta fyrirkomulag að bjóða umsækjanda styrk eða greiða meiraprófið að fullu er nýjung hjá okkur en við vonum að

það skili sér og til okkar komi nýir og kraftmiklir starfsmenn til Skólamatar. Við höfum verið að stækka hratt og opnum á næstu vikum eitt fullkomnasta eldhús landsins með besta tækjabúnaði sem völ er á. Vinnuaðstaða starfsfólks mun batna enn frekar en það hefur verið skýr stefna hjá okkur að huga vel að fólkinu okkar á fjölskylduvænum vinnustað, t.d. með góðum og fyrirsjáanlegum vinnutíma þar sem fólk er búið snemma á daginn og engin kvöld eða helgarvinna,“ segir Fanný.

Íbúar Suðurnesja voru 31.219 talsins um síðustu mánaðamót og hefur fjölgað um 257 frá því 1. desember 2022. Þetta kemur fram í tölum frá Hagstofunni. Íbúar Reykjanesbær eru 22.157 og hefur fjölgað um 159 á tveimur mánuðum. Grindvíkingar eru 3.697 talsins og fjölgar um 36 frá 1. desember. Íbúar Suðurnesjabæjar eru 3.956 og fjölgaði um 47 á þessu tveggja mánaða tímabili. Íbúafjöldinn í Suðurnesjabæ ætti því að fara yfir 4.000 íbúa markið með vorinu, verði fjölgun íbúa áfram á sömu nótum. Íbúum í Sveitarfélaginu Vogum hefur fjölgað um fimmtán frá 1. desember og voru Vogamenn 1.409 talsins um síðustu mánaðamót. Þegar skoðaðar eru nokkrar tölur á landsvísu þá hefur íbúum Reykjavíkurborgar fjölgað um 601 íbúa á tímabilinu frá 1. desember 2022 til 1. febrúar 2023 og íbúum Kópavogsbæjar fjölgaði á sama tímabili um 99 íbúa. Íbúum Akureyrarbæjar fækkaði á tímabilinu um 18 íbúa, í Reykjanesbæ hefur fjölgað um 159 íbúa og í Sveitarfélaginu Árborg fjölgaði um 88 íbúa.

Sögur sagðar á Garðskaga – sjá síðu 12 og Suðurnesjamagasín

SUÐURNESIN MUNU HALDA ÁFRAM AÐ VAXA OG DAFNA „Þegar fólk vill flytja á ákveðinn stað þá leiðir það til eftirspurnar eftir húsnæði og þegar eftirspurn er fyrir hendi þá hækkar verðið, það er einfalt lögmál sem mun aldrei breytast,“ segir Páll Þorbjörnsson, eignadi Allt fasteigna í viðtali við Víkurfréttir í dag. Sjá miðopnu.

16.–19. febrúar

16 SÍÐUR Í ÞESSARI VIKU • STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Víkurfréttir 7. tbl. 44. árg. by Víkurfréttir ehf - Issuu