Skip to main content

Víkurfréttir 4. tbl. 46. árg.

Page 1

Bryndís snerti tilfinningar ráðafólks

8–9

30. janúar–9. febrúar

Allt að 25% afsláttur af um 3.000 heilsu- og lífsstílsvörum og apptilboð á hverjum degi. Ódýrt fyrir heilsuna

7 Miðvikudagur 29. janúar 2025 // 4. tbl. // 46. árg.

DREIFT Á SUÐURNESJUM OG Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU • ÓKEYPIS EINTAK

Sigurbjörg er framkvæmdaglöð og elskar að ferðast

14 Elvar Már ekki á neinum Evrópuafslætti Það snjóaði hraustlega á Suðurnesjum á mánudagskvöldið og húsagötur urðu sumar hverjar þungfærar vegna fannfergis. Þessa mynd tók Páll Ketilsson á Þjóðbraut þegar ofankoman var hvað mest. Kappklæddir gangandi vegfarendur með hund í bandi og flóðljósin lýsa upp gervigrasið við Nettóhöllina.

Sjáið myndirnar!

Þorrablótið í Garðinum

Neyðarkyndistöðvar settar upp í Rockville og við Fitjar Umhverf is- og skipulagsráð Reykjanesbæjar hefur heimilað uppsetningu neyðarkyndistöðvar á Fitjum í Reykjanesbæ með fyrirvara um samþykki landeigenda að stofnuð sé lóð undir umrædda starfsemi. Starfsemin verði tímabundin til þriggja ára frá útgáfu byggingarleyfis. Að þeim tíma liðnum verði ákvörðun endurskoðuð með tilliti til aðstæðna. Þá tekur ráðið undir nauðsyn neyðarkyndistöðvar út frá almannahagsmunum. Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið, almannavarnir, HS

Neyðarkyndistöðin sem er að rísa í Rockville þessa dagana. VF/Hilmar Bragi

Orka og HS Veitur lögðu fram erindi þann 16. janúar 2025 til bæjaryfirvalda í Reykjanesbæ varðandi neyðarkyndistöð. Þar sem ástand á afhendingu á heitu vatni á Reykjanesinu er í óvissu á meðan eldsumbrot halda áfram nærri Svartsengi

og innviðum þar á svæðinu hafa almannavarnir og umhverfisráðuneyti lagt á það kapp að tryggja afhendingu á heitu vatni ef rof verður á afhendingu frá Svartsengi. Liður í því er að setja upp neyðarkyndistöðvar við Rockville og einnig er

horft til þess að setja upp sambærilegan búnað nálægt Fitjum. Búið er að leigja búnað fyrir Rockville og einnig eitt sett af búnaði til að staðsetja við Fitjar. Eitt sett af búnaði samanstendur af u.þ.b. þremur til fjórum 40 feta gámum og u.þ.b. einum til tveimur 20 feta gámum. Í hvert sett þarf svo að tengja kalt vatn, rafmagn, tengja í fráveitu og tengja við hitaveitulögn. Allur þessi búnaður sem um ræðir er færanlegur og ekki gert ráð fyrir að standi þarna varanlega að öllu leyti.

Reynsla og traust Atvinnuljósmyndun og drónamyndataka Persónuleg og sérsniðin þjónusta Við erum hér til að gera ferlið einfalt og ánægjulegt – frá fyrsta skrefi til loka

Hafðu samband í dag og láttu okkur sjá um fasteignina þína!

allt@allt.is | 560-5500

16 SÍÐUR Í ÞESSARI VIKU • STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Víkurfréttir 4. tbl. 46. árg. by Víkurfréttir ehf - Issuu