Skip to main content

Víkurfréttir 2. tbl. 46. árg.

Page 1

10-11

16.–19. janúar

Mynd: Brunavarnir Suðurnesja

Búa í Grindavík en guttinn sækir Stapaskóla í Reykjanesbæ

Miðvikudagur 15. janúar 2025 // 2. tbl. // 46. árg.

DREIFT Á SUÐURNESJUM OG Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU • ÓKEYPIS EINTAK

Einangruð en aldrei ein Slysið sem umturnaði lífi Elínborgar Björnsdóttur Sjá viðtal í miðopnu

Mikið af eldfimum efnum í alelda skúr Slökkvilið Brunavarna Suðurnesja var á sunnudagskvöld kallað að Efri-Flankastöðum við Sandgerði vegna eldsvoða í útihúsi eða skúr á svæðinu. Þegar fyrsti dælubíllinn kom á vettvang blasti við talsverður reykur og eldur, þar sem útihúsið var fullt af eldfimum efnum. Á svæðinu eru engir brunahanar, svo kalla þurfti eftir tankbíl til að flytja vatn á vettvang. Auk dælubíls og tankbíls var slökkvilið með þjónustubifreið á staðnum sem m.a. er notuð til að fylla á reykköfunarkúta á meðan verkefninu stóð. Slökkvistarfi lauk um miðnætti en skúrinn varð fyrir miklu tjóni. Notast var við um 26.000 lítra af vatni við slökkvistarfið, segir í samantekt frá Brunavörnum Suðurnesja.

Fráveita uppfyllir ekki lágmarkskröfur og mengun í jarðvegi verði kortlögð Íþróttafólk Reykjanesbæjar verðlaunað Sjá íþróttasíðu

Heilbrigðiseftirlit Suðurnesja telur mikilvægt að Reykjanesbær ráðist í greiningarvinnu og kortlagningu á mengun í jarðvegi á fyrirhuguðum byggingarreit við Hrannargötu á Vatnsnesi áður en frekari uppbygging hefst á íbúðum og öðrum byggingum ætluðum almenningi þar sem sterkar líkur eru á mengun í jarðvegi fyrirfinnist víðsvegar á svæðinu. Þetta kemur fram í athugasemdum við deiliskipulagstillögu fyrir Hrannargötu 2-4. Þá segir að Heilbrigðiseftirlit Suðurnesja hefur áður bent sveitarfélaginu á að fráveita á þessu svæði uppfylli ekki lágmarkskröfur í reglugerð um fráveitur og

skólp. Stór hluti skolps frá svæðinu rennur ómeðhöndlað ýmist rétt út fyrir flæðarmál eða í klettabelti meðfram strandlengjunni í gegnum fjölda útrása.

Þann 2. nóvember 2022 óskaði embættið eftir lýsingu, stöðuskýrslu og úrbótaáætlun um fráveitu sveitarfélagsins. Óskað var eftir að gögnin bærust fyrir 30. mars 2023. Umbeðin gögn hafa enn ekki borist til Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja. Embættið segir einnig í ljósi þess að áformuð er 1250 manna byggð á skipulagssvæðinu er mikilvægt að fráveita á svæðinu uppfylli ákvæði reglugerðar um fráveitur og skólp

áður en frekari uppbygging hefst á skipulagssvæðinu. Heilbrigðiseftirlitið leggur til að tekið sé tillit til þessara þátta við skipulagsvinnsluna. Þá hefur embættið tekið til skoðunar þá þætti sem helst eiga við starfssvið þess og gerir ekki frekari athugasemdir við breytingu á aðalskipulaginu. Sjá einnig frétt um fjölgun íbúða á Vatnsnesi í 1.250 á síðu 2 í blaðinu í dag.

16 SÍÐUR Í ÞESSARI VIKU • STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook