Skip to main content

Víkurfréttir 1. tbl. 46. árg.

Page 1

Annálar 2024 Fréttaannáll í miðopnu Íþróttaannáll á síðum 14 og 15

Mörg stór mál að klárast á árinu Miðvikudagur 8. janúar 2024 // 1. tbl. // 46. árg.

DREIFT Á SUÐURNESJUM OG Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU • ÓKEYPIS EINTAK

Ef áætlanir ganga eftir mun Reykjanesbær t aka í notkun 2 nýja leikskóla á árinu og hefja byggingu þess þriðja. Auk þess verður opnuð glæsileg 25 metra innisundlaug og almenningsbókasafn í Stapaskóla í Innri Njarðvík og í lok árs nýtt 80 rúma hjúkrunarheimili við Nesvelli í samvinnu við ríkið. Þetta kom fram í nýársræðu Kjartans Más Kjartanssonar, bæjarstjóra Reykjanesbæjar í Keflavíkurkirkju á nýarsdag. Ræðuna má sjá í heild á vf.is. Kjartan Már nefndir fleiri stór mál á vegum Reykjanesbæjar á nýju ári. „Ráðhúsið við Tjarnargötu verður uppfært að innan og endurbygging Holta- og Myllubakkaskóla mun halda áfram. Mörg fleiri framkvæmdaverkefni eru í gangi í þeim tilgangi að mæta mikilli íbúafjölgun og bæta þjónustu,“ sagði bæjarstjórinn sem hefur hafið störf í hlutastarfi en stefnir að því að mæta í fullu starfi 1. febrúar nk. eftir veikindaleyfi.

Fækkar í öllum sveitarfélögum nema Jólin kvödd á þrettándagleði Suðurnesjabæ Jólin voru kvödd með þrettándafagnaði í Reykjanesbæ á mánudagskvöld. Bæjarbúar fjölmenntu á viðburðinn og skemmtu sér konunglega með púkum, tröllum og álfum þrátt fyrir ískulda. Aflýsa þurfti þrettándabrennu sem tendra átti á tímamótunum vegna þess að vindur var óhagstæður. Það kom ekki að sök þar sem glæsileg flugeldasýning Björgunarveitarinnar Suðurnes af Berginu gladdi gesti. Fleiri myndir á vf.is.

Vilja leita að jarðhita fyrir baðlón á Fitjum Erindi frá fyrirtækinu Í toppformi ehf. um heimild til jarðhitaleitar í tengslum við uppbyggingu hótels og baðlóns á Fitjum og þau álitaefni sem því tengjast var tekið fyrir á síðasta fundi atvinnu- og hafnaráðs Reykjanesbæjar. Ráðið fól Halldóri K. Hermannssyni, sviðsstjóra atvinnuog hafnarsviðs að vinna málið áfram á grundvelli þeirrar umræðu sem fram fór á fundinum en lögmaður Reykjaneshafnar sat einnig fundinn. Þá hefur bæjarráð Reykjanesbæjar falið Halldóru Fríðu Þorvaldsdóttur bæjarstjóra og Guðnýju Birnu Guðmundsdóttur formanni bæjarráðs að vinna áfram í málinu. Greint hefur verið frá því að stærsta heilsuræktarstöðvarkeðja

landsins, World Class, mun hefja byggingu á 8400 fermetra húsnæði undir heilsuræktarstöð og heilsuhótel á Fitjum í Njarðvík. Þá verður starfsemin tengd baðlóni, útisturtum, heitu pottum, gufu og potti fyrir sjósund. Heilsuhótelið verður fjögurra stjörnu og með 80 herbergjum og þar verður boðið upp á margvíslega þjónustu eins og snyrti- og nuddstofu auk veitingaþjónustu. Ætlunin að tvinna saman ferðaþjónustu og líkamsrækt.

Tölvuteikningar frá Úti Inni Arkitektum sem sýna hótelið og líkamsræktina með baðlóninu á Fitjum í Njarðvík.

Fækkun er í öllum sveitarfélögum Suðurnesja milli mánaða nema Suðurnesjabæ. Íbúum Grindavíkur fækkar hlutfallslega mest. Fækkunin er upp á 56 einstaklinga eða 4% íbúa frá 1. desember 2024 til 1. janúar 2025. Á sama tímabili fækkar íbúum Reykjanesbæjar um 60 manns eða 0,4% og í Sveitarfélaginu Vogum fækkaði um einn einstakling á tímabilinu eða 0,1%. Fjölgun varð í Suðurnesjabæ um 16 manns á þessum mánuði. Samtals er fækkun á Suðurnesjum um 101 manns á tímabilinu. Íbúar Suðurnesja eru í dag 31.631 talsins samkvæmt samantekt Þjóðskrár. Það er 982 færra en fyrir ári síðan en 1. desember 2023 voru Suðurnesjamenn 32.613. Ef skoðaður er íbúafjöldi eftir sveitarfélögum þá eru íbúar Reykjanesbæjar 24.253 talsins. Í Suðurnesjabæ búa 4.234, í Sveitarfélaginu Vogum eru 1.792 og Grindavík er með 1.352 skráða íbúa. Frá því náttúruhamfarir urðu í Grindavík hefur íbúum með lögheimili þar fækkað um 2.368 manns.

16 SÍÐUR Í ÞESSARI VIKU • STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Víkurfréttir 1. tbl. 46. árg. by Víkurfréttir ehf - Issuu