PERSÓNULEG ÞJÓNUSTA studlaberg.is // 420-4000
Miðvikudagur 4. janúar 2023 // 1. tbl. // 44. árg.
Enn stærra hjúkrunarheimili á Nesvöllum
Fjölga nýjum rýmum úr 60 í 80
Gönguskíðabrautir á Ásbrú og í Leiru opnar Gönguskíðagarpar á Suðurnesjum geta nú notast við gönguskíðabraut við golfvöllinn á Ásbrú og á golfvellinum í Leiru en þar voru opnaðar brautir á dögunum. Í tilkynningu á síðu Reykjanesbæjar kemur fram að sporin séu ekki fullkomin eftir fyrstu umferð en til stendur að laga þau þegar færi gefst.
Skoða frían frístundaakstur í Suðurnesjabæ Íþrótta- og tómstundaráð Suðurnesjabæjar leggur til við bæjarstjórn Suðurnesjabæjar að farið verði í tilraunaverkefni á vorönn 2023 þar sem boðið verður upp á frían frístundaakstur milli kl. 13:30 og 16:30 á milli byggðarkjarna í Suðurnesjabæ og til Reykjanesbæjar. Þátttaka barna í íþróttum og frístundabíll voru til umræðu á síðasta fundi íþrótta- og tómstundaráðs Suðurnesjabæjar. Freyja Þorvaldardóttir starfsmaður Maskínu var gestur á fundinum og kynnti niðurstöður könnunar sem lögð var fyrir í október og nóvember 2022 fyrir foreldrum grunnskólabarna um frístundastarf og frístundaakstur í Suðurnesjabæ.
Gleðilegt nýtt ár! Vetur konungur hefur heldur betur minnt a sig síðustu daga. Mesti snjór á Suðurnesjum í áratugi hefur fallið frá því í vikunni fyrir jól. Berta Svansdóttir tók þessa táknrænu vetrarmynd í Reykjanesbæ af vetrarsól og snjó.
Drög að viðauka við samning milli heilbrigðisráðuneytis og Reykjanesbæjar um byggingu hjúkrunarheimilis á Nesvöllum í Reykjanesbæ voru lögð fram á síðasta fundi bæjarráðs Reykjanesbæjar. Viðaukinn felur meðal annars í sér fjölgun hjúkrunarrýma úr 60 í 80. Bæjarráð samþykkti viðaukann á fundinum og felur Kjartani Má Kjartanssyni bæjarstjóra að undirrita samninginn. Velferðarráð Reykjanesbæjar tók m.a. fjölgun hjúkrunarrýma til umfjöllunar á fundi ráðsins í desember, þar sem meirihluti ráðsins bókaði: „Meirihlutinn í velferðarráði fagnar því að samkvæmt fundargerð öldungaráðs sem haldinn var þann 8. desember sl. er unnið að nýju hjúkrunarheimili. Einnig að á 1395. fundi bæjarráðs Reykjanesbæjar þann 1. desember sl. hafi verið samþykkt að fjölga hjúkrunarrýmum úr 60 í 80. Þarna er verið að horfa í að þörfin sé brýn og nauðsynleg svo að vinda þarf ofan af biðlistum og horfa til
framtíðar. En til þess að allt þetta gangi upp þurfa Reykjanesbær og heilbrigðisráðuneytið að vinna vel saman t.d. að deiliskipulagi og komast að samkomulagi um kostnaðarskiptingu milli sveitarfélagsins og ríkisins.“ Undir bókunina rita þau Sigurrós Antonsdóttir, Andri Fannar Freysson og Birna Ósk Óskarsdóttir.
Willum Þór Þórsson, heilbrigðisráðherra, Betsý Ásta Stefánsdóttir, formaður Ungmennaráðs Reykjanesbæjar og Guðrún Eyjólfsdóttir, formaður Félags eldri borgara á Suðurnesjum tóku fyrstu skóflustunguna að hjúkrunarheimilinu um miðjan maí á síðasta ári. VF-mynd/pket.
Aukin umsvif á alþjóðaflugvellinum í Suðurnesjabæ – segir Magnús Stefánsson bæjarstjóri í Suðurnesjabæ í áramótapistli
„Eftir samdráttartíma frá falli WOW Air 2019 og síðan heimsfaraldur Covid-19 sem hófst í ársbyrjun 2020, sem olli samdrætti í atvinnustarfsemi og miklu atvinnuleysi á svæðinu þá hefur á örstuttum tíma orðið alger viðsnúningur. Eftir að öll höft voru aflögð og alþjóðaflug fór aftur á flug, hafa umsvif á alþjóðaflugvellinum í Suðurnesjabæ aukist mjög mikið
með jákvæðum áhrifum á ýmsa afleidda atvinnustarfsemi og m.a. leitt til fjölgunar starfa. G e r t e r rá ð fyrir að mikil aukning verði á umsvifum á og við flugvöllinn í nánustu framtíð, en nú standa yfir
miklar framkvæmdir við stækkun Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar til að mæta þeim auknu umsvifum sem fyrirsjáanlegt er að verði,“ segir Magnús Stefánsson, bæjarstjóri í Suðurnesjabæ, í áramótapistli sem hann skrifar á vef sveitarfélagsins. Þá segir í pistlinum: „Sjávarútvegurinn hefur gengið vel og atvinnustarfsemi almennt hefur gengið vel á árinu. Allt hefur þetta orðið til að
fjölga störfum og skapa eftirspurn eftir vinnuafli, sem hefur haft mjög jákvæð áhrif ef litið er til atvinnustigs og atvinnuþátttöku á svæðinu. Með mikilli fjölgun ferðamanna sem sækja Ísland heim hefur ferðaþjónustan blómstrað á nýjan leik og fjölgaði veitingastöðum í Suðurnesjabæ á árinu þegar tveir nýir veitingastaðir hófu starfsemi.“ — Sjá nánar á vf.is.
Hver er Suðurnesjamaður ársins 2022? Hver verður maður ársins á Suðurnesjum 2022? Ábendingum um verðuga einstaklinga til að hljóta nafnbótina „Suðurnesjamaður ársins 2022“ má senda á tölvupóstfangið vf@vf.is. Á síðasta ári hlutu Björgunarsveitin Þorbjörn og Slysavarnadeildin Þórkatla í Grindavík nafnbótina.
5.–8. janúar
16 SÍÐUR Í ÞESSARI VIKU • STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM