N ja r ða r b r au t 1 1 a Engar tímapantanir
rétti f r a g e l g Da Miðvikudagur 24. september 2025 // 29. tbl. // 46. árg.
DREIFT Á SUÐURNESJUM OG Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU • ÓKEYPIS EINTAK
r!
vf is
Sjö af hverjum tíu nemendum í Háaleitisskóla eru innflytjendur n Í Háaleitisskóla eru töluð allt að 30 tungumál og nemendur koma frá um 40 löndum. n Aðstoðarskólastjórinn er frá Litháen og segir tungumálið ekki stærstu áskorunina.
Unnar Stefán Sigurðsson, skólastjóri Háaleitisskóla innan um hressa nemendur og kennara.
Háaleitisskóli á Ásbrú í Reykjanesbæ er einstakur skóli á landsvísu. Af um 370 nemendum skólans eru um 250 með annað móðurmál en íslensku. Það þýðir að sjö af hverjum tíu nemendum eru innflytjendur eða börn með erlendan bakgrunn. Unnar Stefán Sigurðsson, skólastjóri segir fjölbreytileikann bæði áskorun og tækifæri og starfið gangi mjög vel. Sum börn hafa jafnvel aldrei áður gengið í skóla. „Það getur verið áskorun en með réttum stuðningi gengur þetta. Í síðustu viku bættust níu nýir nemendur í hópinn, þar af tveir frá Úkraínu,“ bætir hann við. Það eru alltaf að bætast við nýir nemendur og ekki mikil vissa með
framhaldið en það helst í hendur við ástand heimsmálanna.“ Í Háaleitisskóla eru töluð allt að 30 tungumál og nemendur koma frá um 40 löndum. „Þetta er fjölbreyttur hópur og það er mikið ríkidæmi fyrir skólann,“ segir Unnar. Þegar börnin koma úr Friðheimum sem er móttökudeildin, fara þau í bekk en halda áfram í íslensku sem öðru máli. Það tryggir að þau haldi áfram að ná framförum í tungumálinu, á sama tíma og íslensku börnin fá að halda sínu hraða. Jurgita Milleriene, aðstoðarskólastjóri Háaleitisskóla, flutti til Íslands frá Litháen árið 2001 eða fyrir nær aldarfjórðungi. Hún segir fjölmenninguna vera styrk skólans
og að mikilvægt sé að bæði börn og foreldrar fái stuðning til að ná fótfestu í íslensku samfélagi. Aðspurð um helstu áskoranir í starfinu segir Jurgita að þær snúist ekki eingöngu um tungumál: „Tungumál er hægt að vinna með. Það sem getur verið erfiðara eru bakgrunnsaðstæður barnanna, fjölskyldumál, skilnaður eða félagslegar aðstæður. Þessu þarf að taka á og styðja börnin í gegnum slíkt. Við erum þjálfuð í því og hjálpum nemendunum í gegnum það.“ Víkurfréttir heimsóttu Háaleitisskóla og í miðopnu blaðsins má sjá umfjöllun eftir þá heimsókn. Skólinn verður líka í sviðsljósinu í Suðurnesjamagasíni í vikunni.
Geta áfram gist í Grindavík
Hér er Ragnar að sleppa krumma eftir sólarhringsdvöl og gott atlæti hjá honum. Raggi gerði tilraun til að sleppa krumma sem flaug af stað en kom stuttu síðar og bað bjargvætt sinn um meiri aðstoð.
Fasteignafélagið Þórkatla hefur ákveðið að framlengja heimild hollvina til þess að gista í eignum félagsins í Grindavík. Gistiheimildin gildir nú til 31. mars 2026. Hollvinir Þórkötlu, þ.e. fyrrum eigendur sem hafa selt Þórkötlu eign sína í Grindavík og gert samning um afnot af þeim, hafa í sumar haft tækifæri til að gista í fyrrum eignum sínum í Grindavík. Í byrjun september höfðu 74 hollvinir undirritað viðauka við hollvinasamning sem heimilar gistingu í eignum Þórkötlu. Stærstur hluti þeirra undirritaði samning í maí og júní sl. Um var að ræða tímabundið verkefni til reynslu í sumar og var
markmiðið að ýta undir að Grindvíkingar haldi tengslum við bæinn. Heimildin var hugsuð til sumardvalar en ekki til fastrar búsetu. Reynslan af verkefninu hefur heilt yfir verið góð og vill starfsfólk Þórkötlu koma á framfæri þakklæti til þeirra hollvina sem varið hafa tíma í Grindavík í sumar, hlúað að fyrrum eignum sínum og görðum. Viðauki við hollvinasamning um gistingu átti að renna út þann 30. september nk. en í ljósi þess hve vel verkefnið hefur gengið verður því haldið áfram. Áfram geta þeir hollvinir sem ekki hafa sótt um viðauka um gistingu sótt um slíka heimild á heimasíðu félagsins.
Krummi krúnkaði hjá Ragnari bjargvætti Ragnar Guðleifsson, meindýraeyðir fær margvísleg verkefni inn á borð til sín. Hann bjargaði krumma sem tilkynnt var um í vandræðum á Hafnargötunni í Keflavík á sunnudag. Krumminn var eitthvað lítill í sér og gat ekki flogið. Raggi er vanur að fást við hin ýmsu dýr og fangaði því krumma og flutti hann í búri í aðstöðu sem hann er með í Reykjanesbæ. Þar fékk fuglinn vatn að drekka og var fóðraður á innmat eins og nýrum og ferskri lifur úr nýslátruðu. Eftir sólarhring í umsjón Ragga hafði krummi náð góðum styrk og því var látið á það reyna hvort hann
væri ekki til í að taka flugið. Það gerði sá svarti og flaug á brott. Hann fór þó ekki langt því stuttu seinna var krummi mættur aftur og bankaði uppá hjá Ragnari, því þar hafði hann fengið góðan matarbita og vonaðist eftir því að fá meira. Raggi tók aftur á móti krumma semvar greinilega ekki alveg orðinn góður, alla vega var hann svangur. Nú voru góð ráð dýr en Raggi hafði samband við sitt fólk hjá Húsdýragarðinum sem bað hann um að gefa fuglinum lýsi og koma svo með hann. Krummi var fluttur í borg óttans en nú er hann að jafna sig í Húsdýragarðinum eftir veislu hjá Ragnari.
Réttað var í Þórkötlustaðarétt í Grindavík sl. sunnudag og sóttu grindvískir bændur um 900 fjár af fjalli að þessu sinni sem er nokuð minna en undanfarin ár. Fjölmargir sóttu þennan skemmtilega viðburð og Jón Steinar Sæmundsson skellti dróna á loft og myndaði.
16 SÍÐUR Í ÞESSARI VIKU • STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM